Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Qupperneq 72
föstudagur 13. júní 200872 Helgarblað DV
Tónlist
Aflýsir Evróputúr
söngkonan M.I.a. hefur nú aflýst Evróputúr sínum
sem áætlaður var í sumar en söngkonan átti með-
al annars að koma fram á Hróarskelduhátíðinni í
danmörku. Enn hefur þó engin tilkynning borist frá
hátíðinni varðandi afboðunina né frá útgáfufyrir-
tæki söngkonunnar en M.I.a. segist vera orðin svo
örmagna að hún sé á mörkum þess að missa vitið.
uMsjón: krIsta Hall krista@dv.is
Mús Mos í Mosó
Á morgun, laugardag, verða
haldnir útitónleikar í Álafoss-
kvosinni í Mosfellsbæ milli
klukkan fjögur og átta sem
bera heitið Mús Mos. Á tón-
leikunum koma fram hressir
mosfellskir músíkantar allt frá
röppurum til harðkjarnarokk-
ara. Fram koma sigurvegarar
Músíktilrauna 2007, Shogun,
Gummzter, Bob Gillan og
Ztrandverðirnir, Furry Strang-
ers, Hreindís Ylva og félagar
ásamt fjölda annarra ungra og
hæfileikaríkra tónlistarmanna.
Með Mús Mos vilja krakkarnir
vekja upp stemninguna sem
myndaðist á fánadeginum
á árum áður í Álafosskvos-
inni. Það er frítt á tónleikana
og gefst gestum kostur á að
gæða sér á grilluðum pylsum
og fleira góðgæti meðan þeir
hlýða á skemmtilega tónlist.
Airwaves í
tíunda sinn
Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin í tí-
unda skipti nú í október. Þorsteinn Stephen-
sen, eigandi Hr.Örlygs sem hefur veg og
vanda af hátíðinni, tilkynnti í gær um
nokkra erlenda listamenn sem bókað hafa
komu sínu á Airwaves í ár.
Undanfarnar vikur hefur ýmis-
legt birst í fjölmiðlum sem fjallar
um bága og erfiða stöðu fyrirtæk-
isins Hr. Örlygs sem hefur veg og
vanda af Iceland Airwaves-hátíð-
inni. Umfjallanirnar hafa meðal
annars ýtt undir það að hátíðin sé
í hættu.
Hr. Örlygur boðaði til blaða-
mannafundar í gær þar sem Þor-
steinn Stephensen, eigandi fyr-
irtækisins, staðfesti að Iceland
Airwaves yrði nú haldin í tíunda
sinn í október.
„Hátíðin er stærsta árlega
menningarverkefni á Íslandi sem
rekið er af einkaaðilum. Enginn
viðburður á Íslandi fær viðlíka
umfjöllun í heimspressunni og
Iceland Airwaves og enginn við-
burður laðar að fleiri ferðamenn
til landsins,“ sagði Þorsteinn með-
al annars á fundinum og greindi
einnig frá því að hátíðin yrði hald-
in á sama tíma og síðustu níu ár.
„Iceland Airwaves hefur frá upp-
hafi farið fram þriðju helgina í okt-
óber. Á því verður engin breyting
í ár.“
fyrst haldin í flugskýli
Hr. Örlygur var stofnað árið
1999 og hefur alla tíð einbeitt sér
að tónleikahaldi og annarri tón-
listartengdri starfsemi og hefur
fyrirtækið flutt inn meira en þrjú
hundruð listamenn til landsins.
„Airwaves-hátíðin er komin
langan veg frá litla viðburðinum
í flugskýli 4 sem markaði upp-
haf hátíðarinnar árið 1999. Fjöldi
listamanna, fagfólks og gesta hef-
ur aukist gríðarlega og umfang og
þjónusta í tengslum við hátíðina
hefur stóraukist,“ sagði Þorsteinn
og bætti því við að mikið hefði
verið spurt um umfang hátíðar-
innar í ár:
„Ljóst er að í harðnandi árferði
hallæris, andspænis veiku gengi
og hækkandi verðlagi, er nauðsyn-
legt að finna nýja fleti á rekstrin-
um. Það er engan bilbug að finna
á Hr. Örlygi og öðrum aðstand-
endum hátíðarinnar í ár. Iceland
Airwaves 2008 mun verða stærsta
og glæsilegasta hátíðin hingað til.“
„Ljóst er að í harðnandi árferði
hallæris, andspænis veiku gengi
og hækkandi verðlagi, er nauðsyn-
legt að finna nýja fleti á rekstrin-
um. Það er engan bilbug að finna
á Hr. Örlygi og öðrum aðstand-
endum hátíðarinnar í ár. Iceland
Airwaves 2008 mun verða stærsta
og glæsilegasta hátíðin hingað til.“
Css á Airwaves
Nú þegar hafa þó nokkrir er-
lendir listamenn staðfest komu
sína á hátíðina ár. Meðal þeirra
er brasilíka indí-rokksveitin CSS,
kanadíska elektró-pönkhljóm-
sveitin Crystal Castles, Simian
Mobile Disco frá Bretlandi, Junior
Boys frá Kanada, Dirty Projectors
frá Svíþjóð og Florence and the
Machine sem tónlistartímaritið
NME telur vera eitt heitasta band-
ið í heiminum í dag.
Að auki hefur verið gengið frá
samningum við nokkra íslenska
listamenn. Þeirra á meðal eru
Gus Gus, Skakkamanage, Seabear,
Hjaltalín, Reykjavík!, Steed Lord,
Sprengjuhöllin og Hjaltalín.
„Á næstu dögum mun Hr. Ör-
lygur senda frá sér upplýsingar
um umsóknarferli fyrir íslenskar
hljómsveitir sem hafa áhuga á að
spila á hátíðinni í ár,“ sagði Þor-
steinn að lokum.
Hryllingstónleikar á Organ
„Tónleikarnir koma fyrst og fremst
til vegna þess að þessi hljómsveit,
Skarkári sem er samsett úr hljóm-
sveitunum Ask The Slave og Mal-
neirophrenia, hefur bara spilað einu
sinni áður á RIFF í fyrra. Það gekk
sem sagt svo vel að það var troð-
ið út úr dyrum svo við höfum verið
að leita að svona réttu ástæðunni til
að koma aftur saman og spila þessa
hryllingsmyndatónlist,“ segir Gunn-
ar Theodór Eggertsson, meðlimur í
hljómsveitinni Malneirophrenia.
Gunnar og félagar hans í hljóm-
sveitinni Skarkára ætla að blása til
hryllingstónleika á Organ í kvöld.
„Þegar við fundum út að þetta yrði
föstudagurinn þrettándi fannst okk-
ur alveg tilvalið að koma aftur sam-
an. Við ætlum að flytja nokkurn veg-
inn sama prógram og á Organ. Við
í Skarkára leikum bara kvikmynda-
tónlist úr hryllingsmyndum en auk
þess spila þrjár aðrar sveitir sína tón-
list. Við spilum tónlist úr tólf hryll-
ingsmyndum sem komu út á árun-
um 1971 til 2005 svo þetta er mjög
fjölbreytt. Það er svo skemmtilegt við
þessa hryllingsmyndatónlist að hún
er oftast útsett fyrir alvöru rokksveit-
ir og hentar því vel á rokktónleikum,“
segir Gunnar.
Tónleikarnir hefjast klukkan ell-
efu og er aðgangur ókeypis. „Við ætl-
um aðeins að skreyta staðinn í til-
efni kvöldsins. Til dæmis ætlum við
að henda þarna inn gömlum sjón-
varpstækjum og láta gamlar hryll-
ingsmyndir rúlla í þeim á staðnum.“
krista@dv.is
Gunnar Eggertsson í hljómsveitinni
skarkára Hljómsveitin
flytur tónlist úr tólf
hryllingsmyndum í kvöld.
TónlisT á RiFF
Alþjóðleg kvikmyndahá-
tíð í Reykjavík, RIFF, fer fram
í fimmta skipti í haust. Í þetta
skiptið verður lögð sérstök
rækt við samband tónlistar og
kvikmynda. Í því skyni stendur
til að tileinka einn flokk á há-
tíðinni tónlistartengdum kvik-
myndum, en jafnframt verður
staðið að ráðstefnu um tónlist
og kvikmyndir, komið á fót
markaði þar sem framleiðend-
ur kynna myndir í framleiðslu
fyrir dreifingaraðilum á þessu
sviði og halda kvikmyndatón-
leika. Ástæðan ku vera gott
gengi tónlistarkvikmynda að
undanförnu á borð við Sigur
Rósarmyndina Heima.
specials á
Víkingahátíð
Víkingahátíðin í Hafnafirði
var sett með pomp og prakt í
gær. Þessi árlegi viðburður lað-
ar að sér víkinga og ferðamenn
alls staðar að úr heiminum en
í ár verða yfir tvö hundruð vík-
ingar frá ellefu þjóðlöndum á
svæðinu. Rúsínan í pylsuend-
anum eru svo tónleikar hljóm-
sveitarinnar Specials sem líkt
og síðasta ár sér um stuðið
á dansleikjum hátíðarinnar
föstudags- og laugardagskvöld.
.
lovefoxxx í hljómsveitinni
Css
Brasilíska indírokk-sveitin Css
er meðal þeirra sem fram
koma á airwaves í ár.
Þorsteinn stephensen,
eigandi Hr. Örlygs
segir Iceland airwaves 2008
verða stærstu og glæsilegustu
hátíðina til þessa.
Hljómsveitin Skarkári flytur tónlist úr
hryllingsmyndum frá árinu 1971 til 2005 á
Organ í kvöld: