Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Page 83
DV Sviðsljós föstudagur 13. júní 2008 83
ReykiR eins
og stRompuR
Slæm fyrirmynd
Það er ekki töff að reykja.
Jessica Biel er ein mest öfundaða stúlka í
heimi. Hún er gullfalleg, með ótrúlega flottan
kropp og Justin Timberlake er kærasti hennar.
Jessica er ein af þessum stúlkum sem er bara full-
komin - nema hvað að undanfarið hefur hún alls
ekki litið vel út.
Það er almennt vitað að allar stúlkur líta að-
eins betur út með smá maskara, en þetta er bara
alrangt. Jessica lítur alltaf út eins og hún sé á dán-
arbeðnum. Hún er náföl í framan, greyið. Við
skulum vona að hún sé ekki komin á mér-er-al-
veg-sama-hvernig-ég-lít-út-því-ég-á-kærasta-
stigið. Það væri mjög slæmt.
Kannski hefur Jessica alls engan áhuga á að
líta betur út, kannski er hún fullkomlega sátt og
hamingusöm. Það skiptir auðvitað mestu máli.
Hva ko fyrir?
leikkonan JeSSica Biel:
nýkomin úr flugi jessica
Biel hefur litið betur út.
fárveik? Við skulum vona
að jessica hafi verið fárveik
því þetta er ekki gott.
falleg kona justin
timberlake er
heppinn maður.
Í sama kjólnum jessica Biel
heldur greinilega mikið upp á
þennan sumarkjól en hún sást
síðast í honum í noregi á síðasta ári.
Á tennisleik
Lítur jessica Biel
ekki út eins og
að það sé að
líða yfir hana?
týndu 70
mínútuRnaR á dVd
Scarlett Johansson og for-
setaframbjóðandinn Barack
Obama eru í miklu tölvupósts-
sambandi. Scarlett er ein af fjöl-
mörgum stjörnum sem lýst hafa
yfir stuðningi við Barack Obama.
Hún hefur komið fram í enda-
lausum stuðningsmyndböndum
fyrir demókrataframbjóðand-
ann, haldið fjáröflunarsamkom-
ur og jafnvel sagt að hún sé trú-
lofuð Barack Obama.
„Ég vil ekki líta út fyrir að vera
heilagri en næsti maður. Við höf-
um öll þau sömu réttindi að kjósa
og sérstaklega á þessari tækni-
öld þar sem hver og einn getur
komið skoðunum sínum á fram-
færi. Við höfum öll það tækifæri
að fá aðra til að kjósa þann sem
við trúum á. Ef ljóskastaranum
er beint að mér get ég alveg eins
beint honum að þeim málefnum
sem ég trúi á.“
Sumir halda því fram að Scarl-
ett Johansson sé Marilyn Monroe
Baracks Obama. En þeir eru ör-
ugglega bara repúblikanar.
skRifast á í
tölVupósti
Scarlett JohanSSon og Barack oBama:
næsti forseti
Bandaríkjanna?
Barack Obama hefur
fengið marga þekkta
Bandaríkjamenn til
liðs við sig.
Scarlett Johansson Elskar
Barack Obama og er í stöðugu
tölvupóstssambandi við hann.
meiRa
gossip giRl
Vegna vinsælda unglingaþátt-
anna Gossip Girl er í pípunum
að framleiða systurþátt þar sem
hin unga Jenny Humphrey, sem
leikin er af Taylor Momsen, verði
í aðalhlutverki. En þá væri verið
að fylgja Gossip Girl-bókaseríunni
til hins ítrasta þar sem Jenny fer
í heimarvistarskóla eftir skandal
sem átti sér stað í einkaskólan-
um í New York. Ekki er vitað hvort
eitthvað verði af þessum þáttum,
en það þykir mjög líklegt þar sem
Gossip Girl-þættirnir hafa slegið
í gegn um heim allan. Ekki má þó
búast við þeim í haust þar sem
sjónvarpsstöðin CW mun sýna
nýja Beverly Hills-þáttinn og aðra
seríu Gossip Girl og One Tree Hill.
fót- og
HandsnyRting
fyRiR leik
Körfuboltaleikarinn Kobe Bryant er
kannski algjör nagli á vellinum en heima
fyrir finnst honum betra að eyða tíma
sínum í að snyrta á sér neglurnar bæði
á tám og fingrum. Donna Nieves, nagla-
snyrtir hjá Mario Russo-snyrtistofunni
í Boston, segir að Kobe hafi beðið hana
um að koma á Four Season-hótelið fyrir
leik tvö í NBA-úrslitunum og hún hafi
snyrt á honum fæturna og hendurnar á
meðan kappinn horfði á kvikmyndina
21 í sjónvarpinu. Nieves segir Kobe hafa
verið áhyggjufullan vegna útlits handa
og fóta. Nieves tekur einnig fram að
Kobe fari í fót- og handsnyrtingu reglu-
lega. Ef Boston-menn vilja vinna næsta
leik eiga þeir einfaldlega að komment-
era á hversu illa farnar neglurnar á Kobe
eru. Þannig vinna þeir meistaratitilinn.