Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 84
föstudagur 13. júní 200884 Helgarblað DV
Skilur
„Ég er nýkominn heim frá Marokkó. Franc-
esca, vinkona mín, ákvað að bjóða öllum vin-
um sínum í fimmtugsafmæli sitt með fjög-
urra daga óvissuferð til Fez í Marokkó,“ segir
Krummi og er enn agndofa yfir ferðinni.
„Þetta var mesta og besta upplifun sem ég
hef nokkurn tímann upplifað. Mörgum af mín-
um mestu og bestu vinum var boðið þannig að
þetta var geggjað,“ segir Krummi enn frem-
ur en hann segir upplifunina í Marokkó hafa
einnig verið trúarlega. „Ég er orðinn múslími,“
segir hann í gamni, en Krummi og Svala systir
hans eru fæddir og uppaldir kaþólikkar.
Krummi segir þó sjálfur að hann hafi fund-
ið sig í Marokkó. Þegar blaðamaður spyr hvort
hann hafi verið að taka Cat Stevens á þetta
svarar hann hreinskilnislega: „Nei, en ég skil
hann vel. Fólkið þarna er svo fallegt. Þarna
kemur svo mikil fegurð. Lítil börn eru hlaup-
andi um göturnar seint á kvöldin, full af lífi.
Síðan er beðið á fimm tíma fresti þess á milli
sem mennirnir drekka te og reykja sígarettur.
Þetta er dásamlegt líf.“
Margir hafa veitt því athygli að útlit Krumma
hefur einnig breyst töluvert upp á síðkastið.
Hann tók að sjálfsögðu stakkaskiptum er hann
lék Jésú sjálfan í Jesus Christ Superstar í Borg-
arleikhúsinu í vetur og var því orðinn alskeggj-
aður fyrir hlutverkið. Krummi hefur einnig sett
up gleraugu.
„Það er langt síðan ég byrjaði að ganga með
gleraugu. Málið er að ég var ekki mikið með
þau í leðurbuxunum. Ég var svo mikið að
rokka. En í dag er þetta þægilegt. Ég sé allt
í móðu og ég vil ekki að fólk haldi að ég sé
með stjörnustæla því ég sé það ekki,“ út-
skýrir Krummi og brosir.
Það er nóg að gera hjá söngvaranum
þessa dagana og segist hann enn vera
í rokkinu þó svo að leðurbuxurnar hafi
fengið að víkja fyrir hippalúkkinu. „Ég er
enn á fullu í rokkinu. Var að klára að taka
upp plötu með Daníel Ágústi og Esju. Plat-
an kemur út í sumar sem er mjög spennandi.
Svo ætlum við strákarnir í Mínus að taka upp
akústik plötu í sumar. Það er nóg að gera,“ seg-
ir söngvarinn og er mikil kyrrð yfir honum. „Ég
er einhleypur, nýfluttur inn í piparsveinaíbúð
og reyni að lifa lífinu einn dag í einu.“
Krummi BjörgvinS:
Brúð-
kaupið
Bíður
Oddný Sturludóttir var stödd í
útvarpsstúdíói Rásar 2 síðast-
liðinn sunnudag í þættinum Út
úr plötuskápnum. Þar spjallaði
Oddný um daginn og veginn við
þáttastjórnandann. Þar sagðist
Oddný ætla að eyða sumrinu í
Hrísey þar sem þau hjónaleys-
in eiga lítið hús saman. Hún
sagðist einnig hlakka til að vera
viðstödd brúðkaup stúpdóttur
sinnar. Hallgerður Hallgríms-
dóttir, elsta dóttir rithöfundar-
ins Hallgríms Helgasonar og
blaðamaður á Nýju Lífi, ætlar að
ganga í það heilaga. Það þýðir
líklegast að brúðkaup Hallgríms
og Oddnýjar verði að bíða betri
tíma, en Oddný bað Hallgrím
einmitt um að giftast sér í febrú-
ar á þessu ári.
Sara María í Nakta apanum skartar nú heljarinnar litskrúðugu tattúi yfir öxlina:
Sér ekkert eftir tattúinu
Sá um
uppvaSkið
Tökum á Dagvaktinni lauk um mán-
aðamótin en þættirnir eru hugsaðir
sem framhald af Næturvaktinni sem
sló í gegn á Stöð 2 í vetur. Dagvaktin
var tekin upp í Bjarkarlundi, skammt
frá Reykhólum þar sem tökulið og
leikarar voru í góðu yfirlæti. Þrátt
fyrir að það væri í verkahring starfs-
fólks hótelsins sá Jón Gnarr alfarið
um uppvask á hótelinu á meðan á
tökum stóð. Jón vann sem yfirupp-
vaskari í Svíþjóð á sínum tíma og
finnst gott að dreifa huganum með
þeim hætti. Byrjað verður að sýna
þættina í september.
Krummi í Mínus lagði
leið sína til Marokkó á
dögunum. Þetta var ferð-
in sem breytti lífi hans.
Hann varð fyrir andlegri
uppgötvun yfir fegurð-
inni og fólkinu í Mar-
okkó.Hann lifir fyrir
einn dag í einu og er
einhleypur.
„Ég er búin að ætla að fá mér tattú
yfir allt bakið í mörg ár. Ég var komin
með mynd sem ég ætlaði að fá mér en
var alltaf svo mikið að bíða eftir rétta
tækifærinu. Ég held að ég hafi eigin-
lega bara verið að taka því of alvar-
lega að vera ekki búin að finna hina
fullkomnu mynd en síðan er þetta
bara ekki þannig,“ segir Sara María Ey-
þórsdóttir, eigandi Nakta apans, sem
sló til á tattúhátíðinni sem haldin var
á dögunum og fékk sér stærðarinnar
litskrúðugt húðflúr á öxlina sem nær
niður á upphandlegg.
„Ég er búin að fara á tattúhátíðina
síðan hún fyrst var haldin og hef allt-
af ætlað að fá mér tattú en var með
áhyggjur af því að vera ekki með hina
fullkomnu mynd. Það var bara alveg
rétti tímapunkturinn núna. Ég kom
tvisvar til þrisvar og fylgdist með lista-
mönnunum að störfum og það var
einn með þann stíl sem mér finnst
flottastur, Jason June heitir hann. Ég
bað hann um að teikna mynd handa
mér mynd sem hentaði mér bara svo
pótrúlega vel.“
Sara segir að þetta tattú sé þó bara
byrjunin. „Ég varð bara að byrja ein-
hversstaðar og hætta að taka þessu
svona alvarlega. En mig langar enn-
þá í tattúið á bakið.“
Hún segist þó taka eftir því að
fólk sem sjái tattúið fái oft nett sjokk.
„Ég er búin að þurfa að vera mikið á
hlýrabol síðan ég fékk mér tattúið til
að leyfa því að anda og þegar ég stóð
fyrir utan Prikið um helgina á hlýra-
bolnum að spjalla við vinkonurnar
kom hópur af mönnum sem héldu
að ég væri dyravörður,“ segir hún
hlægjandi. „Það hefur þó ekki kom-
ið ein sekúnda sem ég hef séð eftir
því að hafa fengið mér tattúið og ég
held að ég eigi aldrei eftir að sjá eftir
því. Þeir sem þekkja mig segja líka að
þetta sé voðalega mikið ég.“
krista@dv.is
Sara María með nýja
tattúið sara hefur ætlað að fá
sér tattú í mörg ár og sló nú til
á tattúhátíðinni.
„Ég er einhleypur, nýfluttur
inn í piparsveinaíbúð og reyni
að lifa lífinu einn dag í einu.“
Cat StevenS vel
Andlegur í Marokkó Krummi
segir dvöl sína í fez í Marokkó
hafa verið eina mestu og bestu
upplifun lífs hans.
Enn í rokkinu Krummi segist enn
vera í rokkinu þó svo að hann sé
byrjaður að ganga með gleraugu.
Væntanleg er plata frá Esju í sumar.
Einnig ætla Mínusmeðlimir að taka
upp akústik-plötu á næstu mánuðum.