Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
K
YN
N
iN
G
Tölvuskólinn iSoft – þekking varð til í fyrra
með samruna tveggja fyrirtækja, annars vegar
iSoft, sem sérhæfir sig í sérfræðinganám-
skeiðum, og hins vegar Tölvuskólanum Þekk-
ingu. Skólinn hlaut nú á haustdögum verð-
laun frá Microsoft fyrir nýsköpun í menntun
Microsoft sérfræðinga.
námskeið fyrir fólk allt frá byrjendum til
sérfræðinga
Guðmundur Pálmason, framkvæmdastjóri hjá
Tölvuskólanum iSoft – Þekkingu:
„Við hjá Tölvuskólanum iSoft-Þekk-
ingu höfum að markmiði að vera leiðandi í
símenntun í tölvu- og upplýsingatækni allt
frá byrjendum til sérfræðinga. Metnaður
okkar felst í því að útskrifa nemendur með
jafnt hagnýta sem fræðilega þekkingu í tölvu
og viðskiptagreinum sem gerir þá eftirsótta á
vinnumarkaði.
Við leggjum okkur fram við að hlusta
mikið á markaðinn og sinnum þörfum hans
og kröfum. Því endurskoðum við sífellt náms-
framboð okkar í takt við það sem bæði ein-
staklingar og fyrirtæki óska eftir. Það er mjög
jákvæður andi sem einkennir starfsemi okkar
því hann fylgir óneitanlega þeirri sköpunar-
vinnu sem á sér stað og veitir okkur í raun
ákveðið forskot líka.
Tölvuskólinn iSoft-Þekking leggur áherslu
á traust tengsl við atvinnulífið með því að hafa
hverju sinni á að skipa reyndum kennurum
með kennsluréttindi úr íslenska skólakerfinu,
kennara með alþjóðlegar vottanir, sem og fær-
ustu sérfræðinga af vinnumarkaði hverja á sínu
sviði.“
Fyrirtækjalausnir
Sérfræðingar í þjálfun
Microsoft Office 2007
» Excel
» Word
» Outlook
Microsoft Dynamics
» Nav 2009
» AX 2009
» CRM 4.0
Microsoft OCS 2007
Microsoft Sharepoint 2007
Microsoft SCCM 2007
Microsoft .NET Framework 3.5
Tölvuskólinn iSoft – Þekking
Jákvæður andi
einkennir starfsemina