Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
hafa tekið vel á móti Europris og í rauninni
vonum mínum framar. Við flytjum meira
en 90% af vörum Europris beint inn þannig
að milliliðir eru engir og þess vegna hægt að
bjóða vörurnar á svo góðu verði.“
Alinn upp í verslun
Segja má að Matti hafi
verið viðloðandi verslun
frá því hann fór að
standa í lappirnar. Faðir
hans, Sigurður Matthías-
son, rak verslunina Víði
allt þar til hann féll frá
á besta aldri, rúmlega
fimmtugur. Bræðurnir
Matthías og Eiríkur tóku
þá við rekstri Víðisversl-
ana og áttu þar gott og náið samstarf um
margra ára skeið. Þegar verslunin Víðir opn-
aði í Starmýri 2 á sjöunda áratug síðustu
aldar var hún með fyrstu sjálfsafgreiðsluversl-
unum á landinu og ein sú stærsta. Hún
þótti því framúrstefnuleg á þeim tíma. Síðan
opnaði Víðir einnig í Austurstræti 17 og
sá Matthías alfarið um þá verslun. Þeir
bræður opnuðu síðan stóra og mikla verslun
í Mjóddinni en á þeim tíma voru miklar
þrengingar í samfélaginu, lánafyrirgreiðsla
erfið og samkeppni að harðna með tilkomu
Miklagarðs. Hagkaup var þá líka með sterka
stöðu á matvörumark-
aðnum. Matthías segir
að þetta hafi verið mjög
erfitt tímabil í íslenskri
verslunarsögu og það
endaði með því að þeir
bræður urðu að loka
Víði með tilheyrandi
vonbrigðum fyrir fjöl-
skylduna. Eiríkur stofn-
aði síðan 10-11 búðirnar
sem gengu afar vel undir
hans stjórn. Baugur keypti þær verslanir af
Eiríki og eru þær enn í fullum gangi. Eiríkur
hefur helgað sig fjárfestingum og starfar við
þær í dag.
Matthías fór hins vegar að vinna fyrir
Nóatúnsbúðirnar þegar Víði var lokað og
starfaði þar í tíu ár, síðast sem framkvæmda-
stjóri. „Mér leið mjög vel í Nóatúni og átti
alltaf mjög gott samstarf við eigendur fyr-
irtækisins. Það var góður tími,“ segir hann.
Margir halda að slitnað hafi upp úr vin-
skap Víðisbræðra af því að samstarf þeirra
rofnaði þegar fyrirtækið fór í gjaldþrot, en
Matthías leiðréttir þann misskilning. „Það er
sem betur fer gott á milli okkar bræðranna,“
segir hann.
Allt öðruvísi viðskipti
„Pabbi var alltaf mikill kaupmaður og var
mjög framsækinn,“ segir Matti ennfremur.
„Hann byrjaði með verslun árið 1951 á
Fjölnisvegi og byggði síðan stórverslunina
í Starmýrinni. Það hefur margt og mikið
breyst í verslun frá þessum tíma, sérstaklega
hvað varðar allan innflutning. Hér áður voru
menn háðir heildsölunum sem voru á hverju
götuhorni í Reykjavík. Núna erum við partur
af Evrópu og viðskiptin eru á allt öðru plani
en áður tíðkaðist. Það tekur t.d. aðeins rúma
Fyrsta Europris-verslunin
var opnuð í Noregi árið
1992 en nú eru þær að
nálgast 160. Europris-
verslanir hafa nú þegar
verið opnaðar í Svíþjóð
og stefnt er að útrás til
Finnlands og víðar í Evrópu.
Skemmtileg mynd frá árinu 1975 í versluninni Víði. Sigurður Matthíasson kaupmaður með syni
sína tvo, Matthías (t.v.) og Eirík.
M A T T H Í A S Í E U R O P R I S