Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 8

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 8
ekki vitsmunir til að taka upp þá stefnu í atvinnumálum og þjóðmálum, sem bindur enda á allar kreppur? Mál og menning fer nú af stað með lítið tímarit, sem iátið er fylgja ókeypis til félagsmanna, og ætlazt er til að komi út með hverri bók. Þessu litla riti ætlum við það hlutverk, að standa á verði um menningu þjóðarinnar, krefjast framfara og vekja áhuga fyrir nýjum verkefnum, taka undir hvert það menn- ingarmál, sem við álitum til gagns fyrir þjóðina, án tillits til þess hverjir bera það fram, glæða skilning á bókmenntum og listum, og kynna félagsmönnum það, sem efst er á baugi í menn- ingarmálunum. Við munum ekki taka gildan neinn barlóm eða víl, og viljum engan bölmóð heyra kveðinn yfir þjóðinni. Við vitum, að hún á nægan auð, þrek og gáfur, til að skapa sér menningarríkt lif. Engu að síður mun liún þurfa á því að halda að verja rétt sinn á hverju sviði og berjast fyrir hverjum nýj- um sigri. „Mál og menning“ mun af einurð og dirfsku leggja henni lið í þeirri baráttu. Til félagsmanna. Ég vil hyrja á þvi að flytja félagsmönnum og umboðsmönn- um þakkir fyrir síðastliðið ár. Að vísu höfðum við góða trú á lestrarhneigð þjóðarinnar, annars hefðum við ekki stofnað Mál og menning, en samt gerðum við okkur ekki vonir um jafn frá- bærar undirtektir og félaginu hafa lilotnazt, ekki jafn almenn- an og heitan áhuga manna um allt land. Það spruttu svo að segja hvaðanæva upp menn, sem fóru af kappi og sjálfsdáðum að vinna fyrir félagið. Þetta er eitt fegursta vitnið, sem við eig- um úr íslandssögunni um menningarlegt framtak þjóðarinnar, er hún verður gripin af heitu áhugamáli. Fyrsta bókin í ár. Við erum verulega ánægðir yfir því að geta liafið starfsemina i ár með útgáfu hinnar fögru skáldsögu, „Móðirin“, eftir Maxim Gorki. Mér finnst hún koma eins og þakklæti til félagsmanna, unaðsleg gjöf, sem ekki verður betri kosin. Ég efast um að það hafi verið skrifuð hetri bók, jafn djúp að mannúð, jafn töfrandi að fegurð og rík að fögnuði. Það er fögnuður sprottinn af þeirri sannfæringu, að allir menn á jörðinni eigi fyrir höndum ham- ingjusamt og fagurt líf. Hjarta móðurinnar, sem skáldið gefur svo fagra mynd af, lýkst fagnandi upp fyrir þeim skilningi, að ríki mannúðar og kærleika, sem er auðlegð hennar sjálfrar, eigi 2

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.