Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 23
Hvað segir bók þin, Þórbergur, um þetta vitfirrta ástand? HvaS segir þú í dag, þú mikli vandlætari og spámaður, er upphófst raust þína x Brófi til Láru og lézt hana gjalla af enn þyngra móði í Rauðu hættunni? Ég held, að fá fyrirbæri standi mér skýrar fyrir hugskots- sjónum en þeir stórpólitísku atburðir, sem nú eru að gerast og gerast munu á næstu árum í heiminum. Fyrir mér stendur það einnig ljóslifandi, hvernig liinar vinnandi stéttir mannkyns- ins ættu að snúast við gangi þeirrar byrjandi gereyðingar. Þessi bók min flytur samt sem áður engin svör við þeim vandamál- um. En í næstsíðasta kafla Rauðu hættunnar dró ég upp svo skýra mynd af meginatriðum alþjóðastjórnmálanna, að enn sem komið er, lief ég þar engu við að bæta. Ef einhverjir kynnu að óska skjótrar og skýrrar yfirlitsfræðslu og móralskrar upp- örvunar í þeim efnum, þá vildi ég mega ráða þeim til að lesa hleypidómalaust þennan kafla bókar minnar. Hann er eitt með þvi skárra, sem ég hef skrifað. Og þótt hann sé bráðum orðinn þriggja ára, þá hafa engir þeir atburðir ennþá gerzt á sviði heims- stjórnmálanna, er þar liafi haggað við einu einasta stafstriki. Vér álítum, að á þessum tímum sé aðeins eitt nauðsynlegt: að berjast fyrir því, hvar sem maður stendur, að fólkið láti ekki gera sig að leiksoppi þeirra afla, sem búa þvi sjálfu kvalir og tortímingu. Blekkingin, maya, er eitt þeirra viðfangsefna, sem ég hef flestu öðru fremur lagt mig í líma með að gagnhugsa og skilja. Og ég er i engum efa um, að rætur þessarar allsherjar blindni eru hvorki vaxnar upp úr Wallstreet né vopnaverksmiðjum herra Krupps i Essen. Þær eru runnar upp úr jarðvegi, sem við köll- um á vel þekktu leikmannamáli innræti einstaklingsins. Og það er þetta innræti, sem byggt hefir Wallstreet og gert hefur vopna- smiði að lieiðarlegri iðju. Og þessi nýja bók mín lýsir því kannski öllu öðru fremur, hvernig blekkingin leikur mennina. Hún hefði gjarnan mátt heita Bókin um blekkinguna. Ég vildi að lokum gjarnan mega taka það fram, að þetta bindi bókar minnar lýsir að mestu leyti ungu fólki, sem hvorki hefir skipað sér i sveitir með eða móti kúgurum og múgmorð- ingjum, enda gei-ist efni hennar tveimur árum áður en mann- kynið trýlltist. En hvað, sem segja mætti um hana frá sjónar- miði stéttabaráttunnar, þá hygg ég, að það verði ekki af henni skafið, að hún er lifandi verk um lifandi menn. Næsta bindi lýsir leikjum þroskaðra manna. 17

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.