Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 15

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 15
15 Í Hafnarfirði er lífleg þjón- ustuhöfn fyrir skip, báta og áhafnir þeirra. Þar er meðal annars uppskipun, löndun, þurrgeymslur, kæligeymslur og frystigeymslur, útskipun til allra heimshorna, eldsneytis- afgreiðsla, veiðarfæraþjón- usta, siglingatækjaþjónusta, skipaviðgerðir, þar með taldar tvær flotkvíar, fiskmarkaður, sorphirða og gámaþjónusta. Ennfremur er í Hafnarfirði rúm- og skjólgóð smábáta- höfn með þremur löndunar- krönum, vatni, spilliefnaskýli og sorpgámum. Umsvif og framkvæmdir Hafnarfjarðarhöfn er sam- kvæmt heimildum ein elsta og öruggasta höfn landsins. Hún er í raun hjarta bæjarins vegna þess hvernig byggðin umlykur hana. Störf í hafnfirskum fyrir- tækjum, sem eru beint tengd höfn, eru um eða yfir 1.600 og um Hafnarfjarðarhöfn fara um 900.000 tonn af vörum á ári. Helsta starfsemi við höfn- ina er losun og lestun lausa- vöru, löndun og lestun sjáv- arafurða, losun og lestun olíu og asfalts ásamt losun og lestun hráefna og afurða til og frá álverinu og Gasfélag- inu í Straumsvík. Hafnarfjarðarhöfn er sér- hæfð í allri þjónustu við fiski- skip af öllum stærðum og gerðum. Í Hafnarfirði er öflug löndunarþjónusta, fiskmark- aður fyrir ferskan fisk, geymsla og framhaldsflutn- ingur á frystum sjávarafurð- um. Nokkur af öflugustu við- halds- og viðgerðarverkstæð- um Íslands eru í Hafnarfirði. Stærstu framleiðendur veiðar- færa og vinnslubúnaðar eru í eða í nágrenni Hafnarfjarðar, svo sem, Ísfell, Hampiðjan og fleiri. Núverandi hafnarsvæði er um 60 hektarar í Hafnar- firði og 4 til 5 hektarar í Straumsvík. Snar þáttur í atvinnulífi bæjarins Már Sveinbjörnsson hafnar- stjóri sem telur Hafnarfjarðar- höfn afar mikilvæga fyrir allt atvinnulíf í Hafnarfirði. Um 1.500 manns í bænum hafi með einum eða öðrum hætti atvinnu sína af hafnsækinni starfsemi; sjávarútvegi, álveri í Straumsvík og endurvinnslu. H A F N I R Hafnarfjarðarhöfn er sérhæfð í allri þjónustu við fiskiskip af öllum stærðum og gerðum. Hafnarfjarðarhöfn: Ein besta höfn landsins! Í Hafnarfirði er skjólgóð smábátahöfn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.