Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 20
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SKÍRDAGUR | 20 Þessa dagana er ég svo-lítið slappur af lungna-bólgu. Fer samt niður í smíðastofu en get ekkert unnið af viti. Þetta hlýtur að lagast með vorinu og aldrinum,“ segir hinn 89 ára Jóhann Ingimarsson glettnislega. Hann er einn helsti frumkvöðull íslensks húsgagnaiðnaðar, rak smíðafyrir- tækið Valbjörk í áratugi og síðan verslunina Örkina. Eftir hann liggja líka mörg útilistaverk og málverk. Jóhann hefur búið á öldrunar- heimilinu Hlíð á Akureyri í tvö og hálft ár. „Ég kom fyrst í dagvist- un og þá datt mér í hug að opna hér smíðastofu. Það var látið eftir mér og ég held hún hafi komið mörgum vel, ekki síst heimilinu í heild. Það er leitað til okkar með viðgerðir og hitt og annað smotterí,“ segir hann kankvís. Smíðaði stóla Wegners Jóhann er fæddur á Þórshöfn á Langanesi. „Við vorum ellefu systk- inin, börn Oddnýjar Árnadóttur og Ingimars Baldvinssonar á Ingi- marsstöðum,“ segir hann. Kveðst hafa farið í gagnfræðaskólann á Akureyri og iðnnám líka áður en hann hélt til Kaupmannahafnar að læra húsgagnahönnun og innan- hússarkitektúr árið 1949. „Þegar ég kom heim þremur árum síðar fékk ég ekkert að gera og var að hugsa um að fara út aftur því þar bauðst mér verkstjórastarf í húsgagnaverk- smiðju. En sá þá auglýstar smíða- vélar á Blönduósi hjá Ísberg sýslu- manni, fór að skoða þær en leist ekki meira en svo á, sagði Ísberg þó að ég vildi kaupa þær en ætti enga peninga. Hann sagði að það væri í lagi, honum litist þannig á mig. Þannig startaði ég Valbjörk,“ rifj- ar Jóhann upp. „Fyrstu húsgögnin sem ég framleiddi voru borðstofu- húsgögn fyrir Iðnsýninguna 1952 í Reykjavík. Þau slógu í gegn og það bárust svo margar pantanir að ég tók tvo eigendur inn í fyrirtækið og þrjá lærlinga, þannig að reksturinn vatt fljótt upp á sig.“ Jóhann kveðst hafa teiknað öll húsgögn sjálfur sem framleidd voru í Valbjörk nema þau sem hann smíð- aði fyrir Amtsbókasafnið á Akur- eyri fyrir Gunnlaug Halldórsson arkitekt. Það voru stólar hannaðir af hinum þekkta, danska hönnuði Hans J. Wegner. „Gunnlaugur fékk leyfi hjá Wegner, þeir voru skóla- félagar en Carl Hansen & Søn hafa framleitt allt eftir Wegner annars,“ upplýsir hann. Húsgögnin aftur í tísku Á skömmum tíma gerði Jóhann Val- björk að stórfyrirtæki við Glerár- götuna, var líka með útibú á Ísa- firði, Siglufirði, Reyðarfirði og í Vestmannaeyjum og seldi húsgögn í margar verslanir í Reykjavík. „Starfsmenn voru um 70 þegar mest var en oftast milli 50 og 60. Stærsta verkefnið á ferlinum var húsgögn og innréttingar í Loftleiðahótelið við Reykjavíkurflugvöll. Svo smíðuðum við inn í fyrirtæki eins og Póst og síma, bankana og sjúkrahúsin, líka bari, stóla og borð inn í skemmti- staðina Röðul og Þórskaffi.“ Jóhann segir innréttingarnar úr Valbjörk eflaust flestar farnar á haugana en mörg húsgögn séu enn í einkaeign og fólk vilji ekki missa þau. „Skenkir og stólar eru orðnir dýrir ef þeir skipta um hendur því það merkilega er að þessi húsgögn eru aftur komin í tísku.“ Þar kom að Jóhann vildi hefja útflutning. „Ísland var orðið of lítið fyrir okkur. Við þurftum að hafa svo fjölbreytta framleiðslu sem var mjög dýrt,“ segir hann. „Ég var kominn með sambönd í Bandaríkj- unum og búinn að senda sýnishorn út, til dæmis af kolli sem ég teikn- aði og fékk pöntun á upp á 120.000 stykki. En ég fékk hvorki fyrir- greiðslu hjá bönkum né stjórnmála- mönnum svo ég gafst upp og seldi Valbjörk árið 1970. Ég fékk greitt í húsgögnum svo ég stofnaði versl- unina Örkina og flutti inn húsgögn frá Ítalíu og Þýskalandi. Ég þurfti aldrei að taka stór lán, Örkin gekk vel í höndum okkar hjóna og dóttir okkar rekur hana núna.“ Fyrstu húsgögnin sem ég framleiddi voru borð- stofuhúsgögn fyrir Iðnsýn- inguna 1952 í Reykjavík. Þau slógu í gegn. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ÞÚSUNDÞJALASMIÐUR „Þetta hlýtur að lagast með vorinu og aldrinum,“ segir Jóhann um lungnabólguna sem hrjáir hann þessa dagana. Hér er hann með eigið málverk á bak við sig. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Enn að smíða, gera og græja Akureyringurinn Jóhann Ingimarsson hannaði, smíðaði og seldi húsgögn í áratugi og er hugsanlega sá eini í heiminum sem smíðaði stóla Hans Wegner utan Danmerkur. Jóhann býr á öldrunarheimilinu Hlíð og fékk þar opnaða smíðastofu. Nýlegir skúlptúrar úr smiðju Jóhanns EIGULEGT Eins og hvalreki fyrir ungar stúlkur sem vantar hirslu undir snyrtidót og föt og líka afbragðs skrifborð. VINSÆL FERMINGARGJÖF Svefnsófi sem prýddi mörg heimili á tímabili. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON FRÁ IÐNAÐARSAFNINU Á AKUREYRI KOLLUR OG PARTÍBORÐ Þennan koll sendi Jóhann út til Banda- ríkjanna sem sýnishorn af framleiðslu sinni og fékk pöntun upp á 120.000 stykki, sem hann gat ekki sinnt. Hús- gagnið er líka ekta partíborð því hægt er að snúa plötunni við og þar er hún slétt. MYND/HÖNNUNAR- SAFN ÍSLANDS KLASSÍK Ekta borðstofustóll. MYND/HÖNNUNAR- SAFN ÍSLANDS HÆGINDASTÓLL Þeir teljast heppnir sem eiga svona stól í dag. Hillur smíðastofunnar á öldrunarheimilinu Hlíð geyma marga frumlega hluti sem Jóhann hefur dundað sér við að setja saman á síðustu árum. Hér má sjá sýnishorn af þeim. Útilistaverk eftir hann eru líka víða á Akureyri. M YN D IR/AU Ð U N N N ÍELSSO N 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 D -D 4 5 C 1 6 3 D -D 3 2 0 1 6 3 D -D 1 E 4 1 6 3 D -D 0 A 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.