Fréttablaðið - 02.04.2015, Síða 30

Fréttablaðið - 02.04.2015, Síða 30
2 • LÍFIÐ 2. APRÍL 2015 ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Vilhelm Gunnarsson Lífi ð www.visir.is/lifid NUTRI REPAIR Viðgerð og uppbygging fyrir þurrt og skemmt hár. Inniheldur Argan olíu og ríkt af A- og E-vítamínum. Gagnrýni er áhugavert fyrir- bæri, í rauninni mætti kalla hana afl því hún getur bæði byggt upp og rifið niður. Uppbyggileg gagn- rýni er mannbætandi og getur haft þau áhrif að við tökum réttar ákvarðanir sem svo gera okkur hamingjusamari í kjölfarið. Það þarf ákveðinn kjark til þess að leita eftir gagnrýni því eins og það er gott að fá uppbyggilega gagnrýni er sárt að fá niðurríf- andi gagnrýni. Svo er það nú einu sinni þannig að sjálf þurf- um við að sigta frá og meta hvort við tökum mark á þeirri gagnrýni sem við fáum. Stundum getur nei- kvæð gagnrýni orðið til þess að við verðum enn staðfastari í að fara þá leið sem við erum á. Að sama skapi getur jákvæð gagn- rýni togað okkur upp úr tunnunni og beint okkur á rétta braut. Það er manninum eðlilegt að gagnrýna og meta lífið út frá reynslu og þekkingu en lífið er sífellt að koma okkur á óvart og ný þekking kemur sér fyrir í hug- arfylgsnunum, þá þurfum við að muna eftir því að uppfæra skoðanir okkar svo að við fest- umst ekki í fornu fari. Við berum ábyrgð á þeim orðum sem við látum út úr okkur. Orðin endur- spegla úr hverju við erum gerð í raun og veru; hverjar eru okkar hindranir og ótti. Þegar við rýnum til gagns getum við ekki annað en verið heiðarleg í skoðunum okkar og markmiðið er undantekningar- laust það að ná árangri, hvort sem það er fyrir okkur sjálf eða aðra. Niðurrífandi gagnrýni skil- ur fátt annað eftir sig en brot á eigin sjálfi. Það er eins og að drekka eitur og búast við því að hinn aðilinn, sem gagnrýnin beinist að, skaðist, eins og Nelson Mandela komst svo skemmtilega að orði. Venjum okkur á að vanda okkur við gagnrýnina og veljum að rýna til gagns, það gerir lífið svo miklu skemmtilegra og bjart- ara. „Þegar við rýnum til gagns getum við ekki annað en verið heiðarleg í skoðunum okkar.“ Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is CHEERLEADER OMI FOUR FIVE SECONDS RIHANNA FT. KANYE WEST & PAUL MCCARTNEY ELASTIC HEART SIA LAY ME DOWN SAM SMITH HOLD BACK THE RIVER JAMES BAY WHAT I DID FOR LOVE DAVID GUETTA FT. EMELI SANDE EARNED IT THE WEEKND THE NIGHTS AVICII TIME OF OUR LIVES PITBULL FT. NEYO UP OLLY MURS FT. DEMI LOVATO ELDHEITT Á ÍSLANDI Íslenski listinn er frumfluttur í hverri viku á laugardögum fyrir kvöldfréttir á Stöð 2. Hann er í umsjón hinnar gull- fallegu Óskar Gunnarsdóttur, sem sér einnig um morgun- þætti á FM957. Vinsælustu lögin þessa vikuna finnurðu á Spotify-svæði Heilsuvísis. því að þú skipuleggir sumarfríið með fjölskyldu og vinum. Láttu hugann reika og hugmyndaflugið fara á flug, hvert langar þig að fara og með hverjum? Hefurðu ferðast um landið? Notið sól- seturs á Vestfjörðum, sem er eitt það fegursta í heiminum? Lang- ar þig í hellaskoðunarferð eða leita uppi heitar laugar? Lang- ar þig mest af öllu að flýja land og leggjast á heita sólarströnd með kokteil í annarri hendi og góða bók í hinni? Hvert leitar hugurinn? Núna eru ferðaskrifstofurnar með hvert tilboðið öðru betra. Gerðu eitthvað skemmtilegt í sumar og njóttu þín. LÍFIÐ MÆLIR MEÐ … ERTU AÐ DREKKA EITUR? Gagnrýni er daglegt brauð í samfélaginu, hún getur bæði haft uppbyggjandi áhrif og rifið niður. Vandaðu þig þegar þú gagnrýnir og hafðu já- kvæðnina að leiðarljósi. NORDICPHOTOS/ GETTY Heilsuvísir 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 D -A 2 F C 1 6 3 D -A 1 C 0 1 6 3 D -A 0 8 4 1 6 3 D -9 F 4 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.