Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 77

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 77
Bókmenntagagnrýni dagblabanna Hvernig nær þessi byggingargalli að rýra svo gersamlega gildi þeirrar frásagnar? Eða, ef henni er ekki komið nægilega vel til skila til að hún „fái líf og gildi í sjálfu sér,“ eins og Olafur víkur að í greinarlok, hvar brestur þá höfund frásagnarmátt? — Hér skortir tilfinnanlega ljósa afstöðu ritdómar- ans gagnvart því efni sem óneitanlega er í miðpunkti þeirrar sögu sem þó er sögð, til að lesandi fái áttað sig á málflutningi hans. Þessi ritdómur, eins og flestir ritdómarnir um þessa bók, hefði að skaðlausu mátt verða persónu- legri; gagnrýnandinn hefði mátt koma betur fram í dagsljósið með skoðan- ir sínar. Haustið er rautt Við víkjum næst að umfjöllun sem fyrsta bók ungs höfundar hlaut á síðasta ári: Haustið er rautt eftir Kristján Jóhann Jónsson. Skipta má ritdómum um þessa bók gróflega í tvo flokka. Annars vegar eru tveir gagnrýnendur sem finnst bókin athyglisverð og nýstárleg og gera nokkuð ítarlega úttekt á henni (Rannveig G. Agústsd., Dagblaðinu 11. nóv.; Örnólfur Thorsson, Þjóðv. 5—6. des.), en hins vegar þrír sem álíta verkið misheppnað, og af einhverjum ástæðum hafa þeir ritdómar einnig litla greiningu á sögunni að geyma (Illugi Jökulsson, Tíminn 1. nóv.; Jóhanna Kristjónsd., Mbl. 4. des.; Jón Viðar Jónsson, Helgarp. 6. nóv.;). Það er í raun afar merkilegt að sumum ritdómurum virðist fyrirmunað að veita þeim verkum sem þeim mislíkar gagngera bókmenntalega umfjöllun. Eg mun hér einkum skoða þessa þrjá ritdóma. Jóhanna kemur í byrjun ritdóms með þessa athugasemd, óneitanlega kryddaða háði: „Kannski er gott fyrir unga höfunda að byrja með því að skrifa dálítið vonda bók, þá verður að minnsta kosti enginn til að hafa uppi óhóflegar kröfur við þá næstu.“ Ekkert er í sjálfu sér að setja út á þá skoðun Jóhönnu að þetta sé „vond bók“, en nú vilja lesendur fá að vita ástæðuna. Fyrst fá þeir að heyra að henni sé „fyrirmunað að sjá, um hvað hann er að skrifa.“ Athyglisvert er að Illugi byrjar sinn ritdóm með svipuðum orðum: „Eg játa hreinskilnislega . . . að ég botna ekki vel í þessari bók. Hvað er höfundur að fara?“ Og Jón Viðar hefur svipað á boðstólum: Nú má vera að sá sem hér heldur um pennann hafi ekki haft þolinmæði eða löngun til að lesa rétt úr sögubrotum höfundar og að einhver stórmerkur fróðleikur um íslenskt nútíðarmannlíf hafi þar með farið fyrir ofan garð og neðan hjá honum. Þessir þrír ritdómarar eru hér að beita einhverju elsta og leiðigjarnasta ritbragði innan gagnrýninnar: þegar ritdómarinn játar í fullri hreinskilni 443
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.