Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 26

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 26
Tímarit Máls og menningar Lárus og Gunnar eru báðir á slóðum Fást-goðsögunnar og ofurmennis- hugtaks Nietzches í túlkun sinni, en Arnar Jónsson og Leiksmiðjan forðuðust þann skilning í uppfærslu sinni á Galdra-Lofti hið sögufræga ár 1968. Eyvindur Erlendsson leikstýrði. Leikhópurinn lagði áherslu á æsku Lofts eins og Jóhann Sigurjónsson ætlaðist til og hafnaði Fáststúlkuninni sem hafði gert Jóhanni sjálfum lífið leitt allt frá upphafi. Jóhann gerði ráð fyrir að Loftur væri 21 árs í leikritinu, „ungur og óráðinn", en strax í fyrstu uppfærslu verksins krafðist leikstjórinn þess að persónan yrði gerð minnst fimm árum eldri svo að hún félli að þeim Fástsskilningi sem hann lagði í hana. Jóhann lét undan.3 Loftur Arnars Jónssonar er taugaveiklað ungmenni, til hans eru gerðar kröfur úr öllum áttum, kröfur um ákvarðanir og ábyrgð. Hann víkur sér undan þeim af því að hann veit ekkert hvað hann vill. Ráðleysi hans og örvænting vex eftir því sem kröfurnar verða eindregnari, uns bilið milli ofstækisfullra hugmynda hans og veruleikans verður óbrúanlegt, þá missir hann vitið og deyr. Þessa túlkun telur Jón Viðar mjög góða en vill þó bæta um betur og undirstrika hið þjóðfélagslega svið verksins og þátt þess í örlögum Lofts. Loftur er nefnilega skólapiltur á Hólum og stéttskipt samfélag bisk- upssetursins getur verið táknmynd samfélagsins. Þeir sem hafa yfir Lofti að segja eru biskupinn og ráðsmaðurinn á staðnum, faðir hans. Þeir tveir eru fulltrúar hugmyndafræði (trúar) annars vegar og efnahagslífs hins vegar. Þeir gera hvor sínar kröfur sem fara ekki saman í orði en prýðilega á borði, ef maður stundar ekki mjög mikið út í pólitísk eða siðferðileg „smáatriði". En það gerir Loftur, segir Jón Viðar. Hann hvorki getur né vill ganga að hræsnisfullum leikreglum auðvaldsþjóðfélagsins, sem þó eru hluti af honum sjálfum, hann vill ekki troða annað fólk niður til að komast sjálfur af — en þó gerir hann það. I þessu felst mótsagnakennd uppreisn hans, klofningur og tortíming.4 Og þá erum við komin með fjórar mismunandi túlkanir á Galdra-Lofti, fjögur svör við því hvað „þjái svona þunglega hann Loft?“ En nú ber svo við að svörin vekja ekki færri spurningar en þau svara. Allar þessar túlkanir eiga það nefnilega sammerkt að þær leitast við að búa til rökfast- an, sannfærandi heildarskilning á leikriti sem virðist búa bæði yfir rök- leysum og þversögnum. Þessar túlkanir svara hreint ekki nógu vel grund- vallarspurningum eins og: Hvers vegna laðast, eða sogast Loftur að því „myrkri“ sem hann óttast um leið svo mjög? Elskar eða hatar Loftur Steinunni? Elskar hann Dísu í raun? Hvað með föður hans? Af hverju hrekkur Loftur undan öllum kröfum sem til hans eru gerðar? Hvað vill hann eiginlega, hvers óskar hann sér og hvers vegna? Og síðast en ekki síst 288
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.