Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 60
Tímarit Máls og menningar beinlínis með myndum af innilokuðum konum, þannig að andstæðurnar milli hlutskiptis konunnar og skáldsins verða áþreifanlegri. Ljóðið / skantbúningi (1920, bls. 22) birtir ákaflega fallega mynd af konu sem er „ítur, dagbjört og frjáls“. Konan er á skautbúningi sem hún hefur saumað sjálf og með því fellt þörf sína til listsköpunar í þann viður- kennda farveg að skreyta sjálfa sig: List er, hve lagði rósir með litbrigðum höndin smá; það er sem þær lifi og angi, sem álfar felist þeim hjá. En ekki er allt sem sýnist með saumaskapinn; ef „að er vandlega gætt“ sést að eitthvað hefur farið úrskeiðis því “einstök spor snúa öfugt“. Við fáum að vita að öfugsporin stafa af því að einhver hefur legið á glugganum hjá henni. Af áhrifunum sem augu gluggagægisins hafa á konuna og því á hve jákvæðan hátt gægjunum er lýst hljótum við að álykta að hér sé elskhugi hennar á ferð: Frá glugganum yndisleg augu á hana skinu heitt; því titraði haga höndin. — O, heimur, þú veizt ekki neitt. Niðurstaða ljóðsins er sú að konan er sátt við innilokun sína en hún er langt frá því að vera frjáls, hún losnar aldrei undan karlveldinu. Meðan hún situr fyrir innan gluggann mun það fylgjast með henni gegnum gluggann og valda því að „fingrunum fipast“ þannig að sporin „snúa öfugt“. Vitund um innilokun og einangrun kvenna og áhrif karlveldis á list- sköpun þeirra kemur víða fram í þessum tveimur bókum, þótt sú vitund birtist ekki alltaf á jafn jákvæðan hátt og í ljóðinu hér að framan. Ljóðið / Drangey (1920, bls^29þfjallar um einangrun skáldkonunnar og útilokun hennar frá bókmenntahefðinni. Skáldkonan líkir sér við Gretti í útlegðinni í Drangey: „Jeg þarf að sækja mjer æskueld,/ því alein í Drangey bý jeg.“ En eldurinn sem konan þarf að sækja til meginlandsins er annar en sá sem Gretti skorti: „Jeg þarf að sækja mjer andans eld/ sem útlægur Grettir, um sundin“. Hún upplifir andlega útlegð sína eins og Grettir félagslega útlegð sína forðum. Sinn „andlega eld“ þarf hún að sækja til ríkjandi hefðar: „A meginströndu skín ljós við ljós./ Til lands 322
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.