Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 15
Ádrepur Örn Ólafsson Bókmenntatúlkanir Víða er grundvallarmunur gerður á vísindum, sem fjalla um náttúruna, og frœðum, sem fjalla um mannaverk. Vísindasjóður Islands kallar þetta raunvís- indi og hugvísindi. Þar er gengið svo langt að sjóðurinn starfar í tveimur deild- um. Eg býst við að það sé til að tryggja að fræði („hugvísindi") fái einhverja lágmarksfyrirgreiðslu, því raunvísindi þykja miklu fínni, og fá jafnan meira fé. Það byggist á þeirri útbreiddu skoðun, að þau ein séu alvöruvísindi, því þar sé hægt að einangra einstaka þætti fyrirbæris eða ferlis, til að athuga þá sérstak- lega, og rannsaka með tilraunum. Um þetta hefur m.a. enski heimspekingurinn Karl Popper fjallað í alþýðlegum bókum (má þar einkum telja Eymd sögu- hyggjunnar) og leitt að því sterk rök, að þessi aðgreining standist ekki, vísinda- Iegar aðferðir séu í meginatriðum alltaf hinar sömu gagnvart öllum viðfangs- efnum, þótt nánari vinnubrögð mótist að sjálfsögðu af hverju þeirra. Hér er ekki hægt að fara mikið út í þetta, enda nægja væntanlega einstök dæmi til að lesendur sjái að þetta er ekki eins einfalt mál og almennt hefur verið talið. Stjörnufræði telst til raunvísinda enda þótt trauðla verði þar beitt tilraunum að marki, og erfitt að aðgreina einstaka breytilega þætti. Hvað sagnfræði varðar, þá verður vissulega ekki beitt í henni tilraunum svo sem að láta Hitler vinna stríðið, eða Jón biskup Arason sigrast á siðbótarmönnum um miðja 16. öld. En sagnfræðingar hljóta þó að gera slíkar tilraunir í huganum, reyna að átta sig á því hvað hefði breyst og hvað ekki, hefðu úrslitin orðið önnur. Vissulega verð- ur ekki rakin löng, ímynduð atburðarás eftir þeim leiðum. En ítalski speking- urinn Macchiavelli fjallaði um stjórnmálafræði með sögulegum dæmum sem hann bar saman til að einangra sem best breytilega þætti, sýna áhrif mismun- andi viðbragða við svipuðum aðstæðum (í Furstanum sem hann reit árið 1513, og birtist 1987 á íslensku). Og ein hjálpargrein sagnfræði, fornleifafræði, er fyrir löngu orðin tilraunavísindi. Fornleifafræðingar vinna fæðu og klæði með verk- færum, hráefnum og aðferðum fornmanna, endurgera á sama hátt mannvirki þeirra, og komast þannig að raun um hvað til þurfti í mannafla og tíma. Þannig hafa miklar framfarir orðið í þekkingu manna og skilningi á mannkynssögu. Vísindasagnfræðingar hafa hrakið þá bábilju að raunvísindin sanni kenningar og afsanni, en fræðimenn geti í mesta lagi leitt líkur að sínum kenningum eða gegn þeim. Sjaldnast er um afgerandi sannanir að ræða í raunvísindum, og þá ekki heldur afsannanir á neinu sem máli skiptir, þótt Popper haldi því fram, og telji kenningar einmitt vera vísindalegar í þeim mæli sem þær eru hrekjanlegar, 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.