Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Síða 10

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Síða 10
Vísindin eiga ekki sökina heldur oflæti mannsins á öld vísindanna. Maðurinn er einfaldlega ekki guð og fyrir það hefnist grimmilega ef menn hyggjast taka sér hlutverk hans. Maðurinn rauf algildan sjóndeildarhring gagnkvæms þegnskapar í þeirri veröld þar sem hann átti heima. Hann hafnaði sinni eigin óhlutbundnu reynslu, og persónulega vitund sína og samvisku hrakti hann í baðherbergi húss síns, rétt einsog þetta væri eitthvað ein- dæma persónulegt sem engum kæmi við. Maðurinn hefur losað sig við ábyrgð með þeim rökum að þar fari „blekking hins huglæga“, en í staðinn hefur hann komið sér upp tálsýn — eins og nú er komið í ljós — hættulegri en nokkur hinna gömlu: Það er ímyndunin um hlutlægni sem sé laus við mannleg einkenni og byggð á skynsamlegum skilningi á alheimi, óhlut- stætt líkan af meintri „sögulegri nauð- syn“, en hámarkið er þó draumsýn um „almannafarsæld“ sem hægt sé að reikna á vísindalegan hátt og ná með tæknilegum aðferðum einum saman. Farsældin verði fundin og skilgreind á rannsóknarstofum og gerð að veruleika í smiðjum stóriðn- aðar og skrifstofuveldis. Það að miljónir manna verða fómarlömb þessarar tálsýn- ar í vísindalega reknum fangabúðum — það er ekki áhyggjuefni „nútímamanns- ins“ (svo fremi að hann lendi þar ekki sjálfur og komist þá heldur betur til vit- undar um sinn eigin náttúruheim). Vita- skuld mun einstaklingsbundin meðaumk- un heyra til heimi persónulegra hleypi- dóma sem hefur verið afnuminn og vikið til hliðar fyrir Vísindum, Hlutlægni, Sögulegri nauðsyn, Tækni, Kerfinu og Stjórnsýslunni. Þessi fyrirbrigði eru áhyggjulaus því þau eru ekki persónur. Þau eru óhlutstæð og án nafns, ævinlega marksækin og þess vegna fyrirfram álitin saklaus. Og hvað þá með framtíðina? Hver skyldi svosem fást um hana eða gera sér áhyggjur, þar sem tímavídd eilífðarinnar er meðal þess sem hefur verið komið fyrir í nefndu einkabaðherbergi eða jafnvel vísað til lands ævintýranna?! Að svo miklu leyti sem vísindamaður hugsar til þess, hvemig umhorfs verður eftir tvö hundruð ár, þá gerir hann það einvörð- ungu sem prívatmaður og afskiptalaus at- hugandi; hann gæti rétt eins hugað að efnaskiptum veggjalúsar, útvarpsboðum slagæðanna eða jarðgasi annarra reiki- stjama. Og stjómmálamaður nútímans? Hann hefur alls ekkert persónulegt tilefni til að fást við þvílík mál, síst ef það skyldi ógna möguleikum hans til endurkjörs — ef hann er þá starfandi í landi þar sem kosningar tíðkast. 2 Tékkneski heimspekingurinn Václav Belohradský hefur sett fram þá athyglis- verðu hugmynd að skynsemisandi nú- tímavísinda, sem grundvallast á getu til að hugsa óhlutbundið og á þeirri forsendu að til sé ópersónuleg hlutlægni, hafi ekki að- eins átt frumkvöðul á sviði náttúruvís- inda, Galilei, heldur einnig á sviði stjóm- mála: Sá væri Machiavelli, en hann varð fyrstur til að móta (og vissulega með undirtón beiskrar hæðni) kenninguna um það að pólitík væri tæknifræði valdsins. Hægt er að halda því fram að upphaf nútímaríkis og nútímavaldstjómar sé — þrátt fyrir undarlegar krókaleiðir sögunn- ar — að finna einmitt hér, sem sé enn og aftur í því andartaki þegar mannleg skyn- 8 TMM 1990:1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.