Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 53
blökumanninn er færð hundrað ár aftur í
tímann. Þar á Batman í höggi við Jack the
Ripper. Með þeirri sögu er Batman tengdur
við þann arf hryllings sem hefur fylgt bók-
menntum síðan Kobbi kviðrista limlesti
vændiskonur í Lundúnum, hann er settur
inn í samhengi hryllings og ævintýrabók-
4
mennta.
Endalaus barátta hans við Spaugarann
(The Joker) er vinsælt viðfangsefni í bók-
unum, enda Spaugarinn siðlaus með öllu,
fullkomlega brjálaðuren á stundum eins og
framlenging á villidýrshlið Batmans. Bat-
man ber ábyrgð á hrikalegu útliti Spaugar-
ans, náhvítu hörundi, grænu hári og
eilífðarglotti. Spaugarinn datt ofan í sýru-
ker í stympingum við Batman og kom ekki
upp úr sýrubaðinu fyrr en í á sem tók við
úrgangi úr verksmiðjunni þar sem þeir voru
að slást. Þegar Spaugarinn sá hvernig hann
var útleikinn trylltist hann af hlátri. Honum
fannst sem heimurinn hefði gert honum
óborganlegan og fáránlegan grikk, sem
hann túlkar á þann veg að heimurinn sé einn
brandari og að hann sé sjálfur aðalgrínið.
Við því er ekki nema eitt að gera, að ganga
af göflunum, gerast siðlaus til þess að geta
án samviskubits hefnt sín á þeim heimi sem
afmyndaði hann. Þannig eru þeir Batman
og Spaugarinn reknir áfram af hefndar-
þorsta en þó með mismunandi formerkjum.
Batman sækir úr regluföstum heimi þess
Spaugarinn kemur upp úr sýrubaðinu
(Úr Batman — The Killing Joke.)
TMM 1991:2
51