Morgunblaðið - 23.12.2014, Síða 11

Morgunblaðið - 23.12.2014, Síða 11
Sýningin Árið 2012 hélt Tóta sýningu í Hafnarborg og varð bókin til í tengslum við sýninguna. Hún seldist fljótt upp og var því endurútgefin. Litríkt Verk Tótu eru ýmiss konar og hefur hún sérstakan áhuga á mynstri og öllum heimsins litum. Sjálf er hún litríkur og líflegur persónuleiki. nauðsynlegt og einhvers staðar verður maður að sleppa tökunum,“ segir Tóta og ljóst er að útkoman féll í góðan jarðveg því bókin seldist upp meðan á sýningunni stóð í Hafnarborg og hefur nú verið gefin út að nýju í öðrum búningi. Listmálari sem teiknar ekki Áður en Tóta lærði bún- ingahönnun lauk hún námi í mynd- list og strax í bernsku komu hæfi- leikar hennar í ljós. „Ég var mjög fljót að munda skærin sem krakki og klippti alls konar út. Maður var alltaf í dúkkulísum og að líma pappír eða efni utan á kubba og alltaf að búa eitthvað til. En það hvarflaði aldrei að mér að fara út í myndlist því mér fannst einhvern veginn að maður þyrfti að teikna til þess að verða myndlistarmaður,“ segir hún. Að unglingsárunum loknum sá hún ný form og aðrar áherslur innan myndlistarinnar og það varð til þess að sýn hennar breyttist. „Ég áttaði mig á því að allt mætti og að ég þyrfti ekki að vera einhver Rem- brandt. Þá hafði ég átt heima í Eng- landi í nokkur ár og fylgst með hippatímabilinu og svo pönkinu skella á þannig að það var mér allt í hag,“ segir Tóta. Tískan á milli heimsálfa Í verkum Tótu er mikil litadýrð en þar er einnig að finna kolsvarta list og snjakahvíta. Hún segist heillast af öllum litum og mynstur þykja henni ævintýraleg. „Mér finnst ótrúlegt að sjá hvernig tískan skilar sér á milli heimsálfa og þar er það mynstrið. Maður sér það þegar einhver fer að draga upp mynstur hvað það er margt líkt. Til dæmis bar ég saman á einu verki á sýning- unni minni í Hafnarborg eylöndin tvö Ísland og Japan og þar sér mað- ur áratugina speglast í mynsturgerð og svo hvað fagurkeranum konunni finnst fallegt.“ Tóta segist þó engan veginn átta sig á tískunni og þeim leiðum sem hún fer. „Þetta hefur oft verið þannig með fagurfræðina að maður veit ekki. Stígur hún með sunnanvindinum? Ég hef aldrei al- veg skilið hvernig hún berst,“ segir hún. Tíminn og tískan tengist sann- arlega búningahönnuninni og það þekkir Tóta afar vel. „Búningar sem eiga til dæmis að vera frá tímum Hinriks áttunda, sem maður hefur alveg séð. En maður sér samt 1980, þegar þeir voru búnir til. Maður sér tvö tímabil í einu tímabili því eitt- hvað sem manni finnst fallegt dreg- ur maður einhvern veginn með sér fram í dagsljósið þó að maður sé að gera búninga sem eiga að vera frá tímum Hinriks áttunda, svo dæmi sé tekið.“ Að njóta lífsins Lífið í sinni einföldustu mynd getur verið dásamlegt. Það þarf í það minnsta ekki að vera mjög flók- ið til þess að hægt sé að njóta þess. Rétt eins og titill bókar Tótu gefur til kynna hefur hún mjög gaman af lífinu. „Ég nýt lífsins á minn ljúfa einfalda hátt og má ekki vera að því að láta mér leiðast,“ segir Tóta. Hugur hennar er stöðugt að vinna og hún segist aldrei hafa nægan tíma. „Ég er stundum í halarófu á eftir heilanum og ég fer fram úr mér, alveg framan á staura því ég sá þá ekki.“ Víða í bók Tótu má sjá trúar- legt þema án þess þó að það vísi beint á einhverja eina trú. „Ég er bæði forlagatrúar, trúi bæði á hið góða og illa og held að maður geti búið hvort tveggja til. Barnstrúin er líka þarna en ég er ekkert endilega kristin. Það er ekki bara ríkistrúin heldur alheimstrúin. Trúin á hið góða í manninum. Ég held að hver trúarbrögð hafi fært mannkyninu eitthvað og Jesús Kristur lagði áherslu á kærleikann og það þykir mér svo fallegt,“ segir hún. Heim- spekin hefur líka átt þátt í að móta heimsmynd Tótu og segist hún hafa reglulega gaman af að velta tilver- unni fyrir sér. Alltaf eitthvað framundan Allar hugleiðingarnar eiga sinn þátt í að veita Tótu innblástur fyrir sína listsköpun, hvort sem það er búningahönnun, myndlist eða ann- að. Um þessar mundir vinnur Tóta að gerð leikmyndar fyrir sjónvarps- þáttaröð og þar á eftir tekur við spennandi sýning í Árbæjarsafni þar sem Tóta er sýningarhönnuður. Sýningin í Árbæjarsafni er henni sérlega hugleikin enda tvinnast þar saman sögur fólks í gegnum ald- irnar. „Þetta er reyndar ennþá á til- finningastiginu en sýningin fjallar um hið bleika hagkerfi kvenna frá aldamótum 1900. Hvað konur hafa gert til að búa sér til atvinnu, drýgja tekjurnar auk þess að sjá um börn og buru,“ segir hin fjölhæfa lista- kona Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, eða Tóta. Það er vel skiljanlegt að hún hafi ekki tíma til að láta sér leið- ast þar sem hver dagur virðist sann- arlega sveipaður ævintýraljóma og sköpunarkrafti. Þeir sem vilja skyggnast frekar inn í heim Tótu geta skoðað vefsíðu hennar, www.tota-art.com. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014 Starfsfólk Íbúðalánasjóðs óskar landsmönnum öllum gleði og friðar á jólum og gæfu á komandi ári. PI PA R \ TB W A • SÍ A • 14 4 79 4 www.ils.is Borgartúni 21, 105 Reykjavík sími 569 6900, fax 569 6800 Lokað aðfangadag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.