Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 81
gjörólíkri stöðu gagnvart raunveruleikanum en aðrar „eftirlíkjandi“ list- greinar. Þetta sérkenni ljósmyndarinnar stafar af því að hún hefur því sem næst sömu verufræðilegu stöðu og hluturinn sem myndaður var: „Ljósmynd- in sem slík og hluturinn sem slíkur deila með sér sameiginlegri verund, sem líkja má við fingrafar."10 Ljósmyndin er eins og „spor“ sem hluturinn skilur eítir sig, „afsteypa“ hans eða „dauðagríma". Ljósmyndin er „hluturinn sjálf- ur, hluturinn frelsaður undan þeim skilyrðum tíma og rúms sem stjórna honum“ og hlýtur verund sína með „tilfærslu raunveruleikans frá hlutnum til eftirmyndar sinnar.“n Ólíkt raunsæismálverki sem ávallt verður til fyrir tilstuðlan ákveðinna sjónrænna „blekkinga“ (svo sem notkun fjarvíddar- hrifa) er ljósmyndin því sem næst „náttúrleg afurð“ af sama toga og hlutur- inn, fyrirmynd hennar. Hún beitir engum sjónrænum blekkingum heldur „endurskapar heiminn í hans eigin mynd“12 og er þar af leiðandi á engan hátt eftirlíking hans í sama skilningi og raunsæismálverk.13 Bazin lætur þó ekki staðar numið við að varpa nýju ljósi á verufræðilega stöðu ljósmyndarinnar heldur beinir „kastara“ skilgreiningarinnar að kvik- myndagerðinni sjálffi. I því ljósi þykir honum sýnt að ljósmyndinni/kvik- myndinni beri ávallt að halda sig sem næst þessum „náttúrlega uppruna“ sínum. Öll meiriháttar frávik frá þessu verða þá til marks um nokkurs konar óeðli. Þannig lýsir Bazin t.a.m. formtilraunum þýsku expressjónistanna á öðrum og þriðja áratug aldarinnar sem „ofbeldi af öllum hugsanlegum toga gagnvart eiginleikum ímyndarinnar“.14 Kvikmyndin tengist hlutveruleikan- um órofa böndum, að mati Bazin, og ætti því að keppast við að sýna hann í eins hreinni mynd og mögulegt er. Hvers kyns óþarfa „meðhöndlun" myndefnisins (svo sem stílræn lýsing að hætti expressjónistanna eða „klippikúnstir“ í anda Eisensteins), allt sem gert er til að „bæta einhverju við“ hlutveruleikann, er eitur í hans beinum. IV Með þessum yfirlýsingum sínum var Bazin í rauninni að beina spjótum sínum í tvær áttir í senn. Annars vegar var hann að ráðast á ýmsar eldri kenningar um eðli kvikmyndarinnar sem víða máttu heita viðteknar — þá einkum kenningar Eisensteins, þar sem „táknræn klipping“ er gerð að undirstöðu kvikmyndalistarinnar. Hins vegarvar Bazin með þessu að gagn- rýna þá þróun — eða afturför, öllu heldur — sem hann taldi sig sjá innan stærsta geira kvikmyndalistarinnar, sögumyndarinnar, sem að mestu mátti heita laus við „myndrænt ofbeldi" að hætti þeirra Lang og Wiene eða Eisenstein og Vertov, en hélt þó samt sem áður ekki tryggð við veruleikann nema að takmörkuðu leyti. Sögumyndir væru vissulega flestar í raunsæis- TMM 1995:4 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.