Vesturbæjarblaðið - 01.07.2007, Síða 6
6 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2007
Finnur Björgvinsson arkitekt, sem býr að
Hávallagötu 43, segist halda að flestum finnist gott
að koma heim hvar sem þeir nú búa.
“Hávallagatan er staðsett á ákjósanlegum stað
í Reykjavík rétt við miðborgina í vesturbænum,
sunnanverðu við Vatikanið, eða réttara sagt Landa-
kotskirkjuna. Gatan liggur austur - vestur og það
þýðir að á morgnana, þegar sól er, er gengið beint
út í sólina, það er góð byrjun á deginum. Ekki sak-
ar að Vesturbæjarlaugin er í 5 mín. fjarðlægð og
hefst helst hver dagur þar hjá mér.
Þegar heim er komið eftir góðan vinnudag er gott
að fara út í garð slaka á fyrir kvöldmatinn þar sem
kvöldsólar nýtur. Það má til gamans segja að það sé
afar sjaldan sem hús séu til sölu í götunni, fólk held-
ur í þessi hús og oft haldast þau í fjölskyldum.
Lega Hávallagötunnar er mjög fín, nú á ég við
breytileika húsanna þegar gengið er frá Garðastræt-
inu inn á Hávallagötuna eru húsin þar einbýlishús
sem síðan breytast yfir í stærri hús, tvíbýlishús,
sem ég held að sé sér íslenskt fyrirbæri, og er kanns-
ki ekki sniðug íbúðarhugmynd. Þegar ofar kemur
í götuna (brekkuna) opnast gatan til norðurs út á
Landakotstúnið en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir
á Esjuna. Á haustdögum er Esjan í þvílíkri litadýrð
að það er ólýsanlegt.
Þegar komið er framhjá Landakotstúninu er komið
að heilstæðum parhúsum sem Gunnlaugur Halldórs-
son teiknaði á árunum 34-35, hann vann samkeppni
um þessi hús þessar byggingar gengust undir nafn-
inu Félagsgarður. Gatan beygist um Hofsvallagötuna,
og vestan við hana koma þessi sérstöku og fínu
parhús beggja vegna götunnar og gefa frábært og
einstætt umhverfi ,sem ég efast um að sé á fleiri
stöðum í Reykjavík. Þetta er funkisstíll aðeins stíl-
færður með þakköntunum. Þar sem gatan mætir
Bræðraborgarstig endar hún í gamla vesturbænum
þar sem enn standa gömul timburhús sem hafa ver-
ið byggð upp með Bræðraborgarstígnum áður en
Hávallagatan var til og myndar eins og lítið þorp við
enda götunnar.
“Það er gott að koma heim”
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
Við erum hér!
Arnar GuðborgDagný
Rakel KongaSilla
SALON REYKJAVÍK
Grandagarði 9 • Reykjavík • S. 568 5305
salon@salon.is
Vertu velkomin(n)!
Við erum flutt
út á Granda!
Hárgreiðslustofan Salon Reykjavík hefur
flutt sig um set úr Glæsibæ út á Grandagarð 5,
gegnt gamla Ellingsen húsinu.
Grandagarði 5 • Reykjavík • S. 568 5305
- segir Finnur Björgvinsson arkitekt á Hávallagötunni
Finnur Björgvinsson á bekk á Landakotstúninu með
Landakotskirkju í baksýn sem Guðjón Samúelsson
teiknaði. Á bekknum stendur: LOVING MEMORY
Frank and Ragnheiður Þorsteinsdóttir Guida MARRIED
MAY 11 1945. Þarna er hægt að tilla sér hvort sem er
á degi eða nóttu, mjög rómantískur staður.
Hvallagata séð til austurs. Við enda götunnar blas-
ir siglingamerki Reykjavíkur eins og hinn danski
prófessor Finns Björgvinssonar kallaði Hallgrímsturn-
inn. Það er óvenju gott að orientera sig í þessari frá-
bæru götu. Þar er alltaf gott að koma heim.
Kirkjulistahátíð verður í Hall-
grímskirkju 11. til 19. ágúst nk. og
eru einkunnarorð hátíðarinnar úr
Lofsöng Móse og Ísraelsmanna
í Exodus, annarri Mósebók, “Ég
vil lofsyngja Drottni” og tengjast
beint óratóríu Handels, Ísrael í
Egyptalandi. Stærstu verk kirkju-
tónbókmenntanna hafa ávallt ver-
ið á dagskrá Kirkjulistahátíðar og
í ár verða tvö stórverk flutt í upp-
hafi og við lok hátíðarinnar undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Messa
í h-moll eftir Johann Sebastian
Bach, eitt stórbrotnasta tónverk
allra tíma, verður flutt af Mótet-
tukór Hallgrímskirkju, sem fagnar
nú 25 ára afmæli sínu, og fjórum
heimsþekktum einsöngvurum,
Robin Blaze kontratenór frá Bret-
landi, og þremur af allra fremstu
túlkendum barokktónlistar um
þessar mundir, bassasöngvaran-
um Peter Kooij frá Hollandi, þýska
tenórsöngvaranum Gerd Türk
auk þýsku sópransöngkonunnar
Monika Frimmer. Tónleikarnir fara
einnig fram í Skálholtsdómkirkju
13. ágúst nk.
Hitt stóra tónverkið er óratórían
Ísrael í Egyptalandi eftir George
Frideric Handel, sem verður flutt
í fyrsta sinn á Íslandi á hátíðinni,
fyrst í Skálholtskirkju 17. ágúst og
síðan í Hallgrímskirkju á lokatón-
leikum hátíðarinnar 19. ágúst.
Kammerkórinn Schola cantorum
skipaður alls 24 söngvurum syng-
ur ásamt Robin Blaze sem fer með
aðalhlutverk óratóríunnar. Aðr-
ir einsöngvarar koma úr röðum
Schola cantorum og eru þau Krist-
ín Erna Blöndal, Þórunn Vala Valdi-
marsdóttir sópran, Elfa Margrét
Ingvadóttir sópran, Eyjólfur Eyjólfs-
son tenór, Alex Ashworth barítón,
Hrólfur Sæmundsson barítón og
Benedikt Ingólfsson bass-barítón.
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju
www.blomalfur.is
kíktu á nýju heimasíðuna....
góða skemmtun..
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Kaupi
hljómplötur (LP) helst
Jazz. Annað kemur
til greina.
Ingvar sími: 699 3014
& 534 9648.
AUGL†SINGASÍMI
511 1188
895 8298