Vesturbæjarblaðið - 01.07.2007, Side 7
7VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2007
Íbúar í Grjótaþorpi virðast vera
nokkuð undrandi á þeim möguleika
að svokallað Gröndalshús verði
flutt í Grjótaþorpið af Vesturgötunni
í stað þess að vera flutt upp á Árbæj-
arsafn eins og áætlanir til þessa
hafa ætíð staðið til. Hugmyndir hafa
verið uppi um að staðsetja húsið
þar sem nú garður með leiktækjum
en garðurinn er eina opna útivistar-
svæðið í Grjótaþorpi og íbúar hafa
til þessa talið að garðurinn ætti að
vera til frambúðar með núverandi
ummerkjum.
Sverrir Guðjónsson er formaður
Íbúasamtaka Grjótaþorps, og býr við
hliðina á garðinum að Grjótagötu 6,
og segir að fyrsta vitneskja hans um
hvað hugsanlega stæði til hafi verið
sú að hann sá Stefán Örn Stefánsson
arkitekt hjá Minjavernd vera að mæla
upp garðinn en áður hafði Hjörleif-
ur Stefánsson arkitekt fullyrt það í
útvarpi að Gröndalshúsi væri ætlað-
ur staður í Grjótaþorpi, og ekki eðli-
legt að íbúarnir hefðu neitt um það
að segja. Sverrir segir það ekki bera
mikinn vott um íbúalýðræði en hann
segir þennan litla garð vera hjartað í
þorpinu og auk þess ekki um annað
útivistarsvæði að ræða til að staldra
við á, og raunar í miðborginni allri.
“Sá sem röltir inn í þennan garð
fær tilfinningu fyrir því hvernig Grjóta-
þorpið raðast saman og hvernig líf-
ið var hér áður fyrr. Það er töluvert
af börnum nú í þorpinu, og hlutfall
þeirra hefur aukist nokkuð, og það er
mikilvægt.”
Sverrir segir Minjavernd vera einka-
fyrirtæki sem eins og önnur fyrirtæki
sækist eftir verkefnum, en hafi hins
vegar hreiðrar vel um sig í borgar-
kerfinu, m.a. með ráðgjafarstarfsemi.
Reykavíkurborg er 40% hluthafi í
Minjavernd á móti einkaaðilum og
Stoðum sem m.a. eru í eigu Baugs,
og því telur Sverrir að setið sé beggja
vegna borðsins og því sé hætta á
að ákvarðanataka fari í nokkru mæli
fram bak við tjöldin og skilaboð verði
nokkuð óljós. Upphaflega hafi staðið
til að setja Gröndalshús nærri Vestur-
götunni í Grjótaþorpi, en horfið hafi
verið frá því vegna mótmæla. Einnig
hafi verið kannað að staðsetja það
á horni Garðastrætis og Túngötu,
þar sem minnisvarði um sjálfstæði
Eystrasaltslandanna stendur, en horf-
ið var einnig frá því.
“Pressan hefur líka aukist að koma
Gröndalshúsi hér niður eftir að Rit-
höfundasamband Íslands fékk hús-
ið að gjöf og Minjavernd var falið
að gera húsið upp. Ég tel að það úti-
loki að húsið fari upp á Árbæjarsafn
vegna þess að húsið yrði notað í 11
landa samskiptaneti Rithöfundasam-
bands þar sem rithöfundar geta sótt
um dvöl í því til skrifta. Ég minni líka
á að það hefur verið baráttumál end-
urlífgaðra Torfusamtaka að Gröndals-
hús fengi að standa áfram þar sem
það er.
Undirskriftasöfnun til að
mótmæla flutningi
Hafin er söfnun undirskrifta til að
mótmæla flutningi Gröndalshúss í
garðinn og segir formaður íbúasam-
takanna að almennt séu íbúar mót-
fallnir þessum hugmyndum. Í bréfi
til borgarstjóra 12. júlí sl., sem stjórn
Íbúasamtaka Grjótaþorps, þau Sverr-
ir Guðjónsson, Sólveig Eggertsdóttir
og Elín Edda Árnadóttir skrifa undir,
segir m.a. fyrirætlunum borgarstjóra
og borgarstjórar Reykjavíkur sé harð-
lega mótmælt að staðsetja svonefnt
“Gröndalshús” á leiksvæði barna í
Grjótaþorpi, ekkert samráð hafi átt
sér stað við nágranna sem hagsmuna
eiga að gæta eða Íbúasamtök Grjóta-
þorps.
Síðan segir m.a.:
Við íbúar Grjótaþorps höfum væg-
ast sagt afar slæma reynslu af sam-
skiptum við skipulagsyfirvald Reykja-
víkur í tíð fyrri borgarstjórna, þar
sem íbúalýðræði eru orðin tóm og
grenndarkynningar syndakvittun fyr-
ir fyrirfram ákveðnar framkvæmdir.
Réttmætar kærur vegna ólöglegra
aðgerða við hótel að Aðalstræti 16 og
hækkun Hlaðvarpans vegna nýs hót-
els hafa algjörlega verið virtar að vet-
tugi. Stjórn Íbúasamtaka Grjótaþorps
gerir alvarlegar athugasemd við til-
raunir til að þröngva Gröndalshúsi
inn í Grjótaþorpið án þess að leita af
heilum hug eftir vilja íbúanna.
Við vonum að breyting verði á sam-
skiptamunstri nýrrar borgarstjórnar.”
Byggingarár: 1962
Lengd: 25 m • Breidd: 12,5 m
AFGREIÐSLUTÍMI LAUGAR
Virka daga frá kl. 6:30 – 22:00
Helgar kl. 8:00 – 20:00
Sund er æðislegt
ı
VESTURBÆJAR
LAUG
ER LAUGIN Í ÞÍN
U HVERFI
Fjöldi gufu– og eimbaða: 3
Fjöldi heitra potta: 4
www.itr.is sími 411 5000
Íbúar Grjótaþorps segja
ekkert samráð haft um flutning
Gröndalshúss til þeirra
Sverrir Guðjónsson við álfasteininn í Grjótaþorpinu sem hverfur ef
af flutningi Gröndalshúss í Grjótaþorp verður. Sverrir býr í húsinu í
bakgrunninum og meðfram því yrði þröng gönguleið ef Gröndalshús
kæmi þarna.