Vesturbæjarblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 11
Grandahús á Hólmaslóð 2 á
Grandagarði er fimm ára gamalt
fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í
byggginu á frístundahúsum sem
eru allt frá 40 fermetrum upp í
172 fermetra, en það er stærðin
á stærsta húsinu sem byggt hef-
ur verið hjá fyrirtækinu. Það var
flutt upp í Skorradal. Grandahús
byggja einnig heilsárs einbýlis-
hús í Lettlandi funkiesstíl sem
eru um 127 fermetrar og Granda-
hús eru einnig að færa sig í inn-
flutning á bjálkahúsum.
Eigandi Grandahúsa, Jónas
Ragnarsson húsasmíðameistari,
hefur áralanga reynslu bæði hér-
lendis og í Færeyjum, og hann
hefur endursmíðað fjölda timbur-
húsa gegnum tíðina. Hann hefur
færa iðnaðarmenn með sér, en
Sverrir Sigurðsson sér um pípu-
lagningar og Magnús Lárusson
um rafvirkjun.
Jónas hefur m.a. starfað hjá
Ístaki við byggingu Smáralindar
og í Færeyjum við byggingu neta-
verkstæðis og sjúkrahúss hjá Phil
& Sohn. Jónas segir að fólk sem
komi til hans í kauphugleiðing-
um vegna frístundahúsa sé mjög
oft búið að móta sér fastar hug-
myndir um hvernig hús það vilji.
Grandahús sjá um teikningar á
húsum fyrir þá sem þess óska og
stundum er einnig útveguð lóð
undir frístundahúsið, en oftast er
fólk búið að ganga frá þeim mál-
um. Þær lóðir hafa verið um allt
land.
Aðspurður um sérkennilegustu
beiðnina eða sérkennilegasta hús-
ið, segir Jónas það líklega vera
bygging á 60 fm. húsi sem var
reist á stöplum yfir á, þ.e. áin renn-
ur undir húsið. Jónas segir að það
verk sýni berlega að ekkert þurfi
að koma á óvart í þessum efnum,
og raunar sé flest allt mögulegt,
þótt hugmyndin virðist nokkuð
óraunhæf í upphafi.
11VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2007
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
12
10
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000
„Hvað er með Ásum?“
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna.
Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta
Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings.
Laxárstöðvar í Aðaldal
Orka í iðrum jarðar!
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir
frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og
orkuvinnslu.
Kröflustöð í Mývatnssveit
Kraftverk
Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn-
ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu
sem tengist Landsvirkjun og orkumálum.
Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri.
Ljósafossstöð við Sog
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar
ásamt ferðamennsku og útivist norðan
Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en
haldið er upp á Fljótsdalsheiði.
Végarður í Fljótsdal. Opið 9–17 alla daga.
Líf í Þjórsárdal
Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á
Sprengisand og í Veiðivötn.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Heimsókn í Húnaþing
Kynnið ykkur orkumál og starfsemi
Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar.
Blöndustöð, Húnaþingi
Kynnist okkur af eigin raun
Heimsækið Landsvirkjun í sumar.
Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Komdu í heimsókn í sumar!
Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir
um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu.
Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum
Alltaf gaman á leikjanámskeið-
um!
Leikjanámskeiðið í Frosta-
skjóli fer vægast sagt vel af stað
þetta árið þar sem bæði börn
og hópstjórar hafa skemmt sér
meiriháttar vel í frábæru veðri.
Metskráning er á námskeiðin
þar sem allt að 50 börn eru
skráð í hverri viku. Börnin eru
á aldrinum 6-9 ára þar sem þau
verja deginum í á ferðalögum
um Vesturbæinn og borgina
alla.
Meðal annars hafa staðir eins
og Hallgrímskirkja, Listigarður
Einars Jónssonar, Fjölskyldu- og
Húsdýragarðurinn, Landnáms-
sýningin 871 +2 og Ráðhúsið
verið heimsótt.
Að auki hafa börnin farið í
leiki og notið veðurblíðunnar
í Hljómskálagarðinum, á Aust-
urvelli og Arnarhóli. Þau hafa
lært helstu glímubrögðin með
aðstoð þjálfara frá Glímusam-
bandinu, farið á Sumargrín,
Brúðubílinn og fengið einkasýn-
ingu Möguleikhússins á Pétri
og úlfinum.
Auk alls þessa fara börnin að
meðaltali í sundlaugar borgar-
innar 1-2 í viku.
Bland af
því besta
í Frosta-
skjóli
Grandahús byggja frístundahús
og einbýlishús í funkiesstíl
Jónas Ragnarsson húsasmíðameistari og eigandi Grandahúsa við eitt
frístundahúsið sem fyrirtækið byggir.
borgarblod.is