Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 24
Morgunblaðið/Golli
Eddi þjálfari Eggert Jóhannesson segir að þessir dagar séu ógleymanlegir.
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hálf öld er liðin frá því að heims-
stjarnan Louis Armstrong, tromp-
etleikarinn og söngvarinn snjalli, með
rámu röddina, tróð upp í Háskólabíói
á fernum tónleikum ásamt hljómsveit
sinni, en það var 8. og 9. febrúar árið
1965. Tvennir tónleikar voru hvorn
dag og uppselt á þá alla.
Það var Knattspyrnudeild Víkings
sem stóð fyrir innflutningi stórstjörn-
unnar og tónleikahaldi. Þá var Egg-
ert nokkur Jóhannesson, betur
þekktur meðal okkar Víkinga, sem
Eddi þjálfari, bæði í handbolta og fót-
bolta um áratugaskeið, formaður
Knattspyrnudeildar Víkings. Eddi
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ákvörðun deildarinnar um að reyna
að fá Armstrong hingað til lands til
þess að halda tónleika hefði einkum
verið í fjáröflunarskyni fyrir deildina.
Eddi segir að hann og Ólafur Er-
lendsson, sem þá var formaður Vík-
ings og jafnframt starfsmaður Loft-
leiða, hafi fengið Einar Jónsson í
Sparisjóðnum til liðs við sig en hann
hafi haft ákveðna reynslu af því að
flytja inn til landsins erlenda
skemmtikrafta.
Vildu 25 þúsund $ tryggingu
Eddi sem formaður deildarinnar
undirritaði alla pappíra sem lutu að
samningum við stjörnuna. Undirbún-
ingurinn hafi að mestu verið á herð-
um Ólafs Erlendssonar og hans eigin
herðum, en þeir báðir hafi verið mikl-
ir aðdáendur Armstrongs. Þeir hafi
einnig notið dyggs stuðnings frá
sendiráði Bandaríkjanna við að und-
irbúa komu stjörnunnar til landsins.
„Jú, við vorum alltaf blankir í Vík-
ingi, því verður ekki á móti mælt. Það
var svo þremur eða fjórum dögum áð-
ur en Louis Armstrong og hljómsveit
áttu að koma hingað til lands, að okk-
ur barst skeyti frá umboðsmanni
hans í New York, að Armstrong
kæmi ekki nema við legðum 25 þús-
und dollara inn í Seðlabankann, sem
tryggingu fyrir greiðslu. Þeir treystu
sem sé ekki þessu fátæka félagi,
Knattspyrnufélaginu Víkingi, til þess
að geta staðið skil á greiðslum og
vildu tryggja sig fyrirfram með þess-
um hætti,“ segir Eddi.
Nú voru góð ráð dýr
„Nú voru góð ráð dýr, því enginn
okkar var það stöndugur að við gæt-
um bara snarað fram 25 þúsund doll-
urum, rétt si svona.
Það varð úr að ég snaraðist niður í
Seðlabanka, sem var þá í einni skúffu
hjá Jóhannesi Nordal í Landsbank-
anum í Hafnarstræti og setti íbúðina
mína að veði fyrir 25 þúsund dollara
hjá Jóhannesi. Eftir að þeir höfðu
fengið staðfestingu á þessu í New
York var ekkert því til fyrirstöðu að
Armstrong og fylgdarlið kæmu hing-
að til lands,“ segir Eddi.
Eddi segir að þetta hafi verið
ógleymanlegir dagar. Armstrong
hafði aðsetur á svítunni á Hótel Sögu
og hélt svo bara tónleikana í næsta
húsi, Háskólabíói.
„Það var frábært þegar við nokkr-
ir, sem stóðum fyrir tónleikahaldinu
fengum að snæða kvöldverð með
stjörnunni á Hótel Sögu og líður eng-
um okkar úr minni. Við borðuðum
með honum í svítunni,“ segir Eddi.
Eddi segir að Víkingur hafi ekki
fengið miklar tekjur af tónleikahald-
inu, þótt uppselt hafi verið. Skemmt-
anaskatturinn hafi verið svo hár að
hann hafi tekið lungann af hagn-
aðinum. „Það sem við græddum mest
á var pógrammið, sem var veglegt og
okkur tókst að selja mikið af auglýs-
ingum í það og tekjurnar af auglýs-
ingasölunni voru svona tveir þriðju
þess sem við höfðum upp úr krafs-
inu,“ segir Eddi.
Áritað prógramm fjársjóður
Eddi segir að nokkrir þeirra sem
stóðu að undirbúningi tónleikahalds-
ins, eigi prógramm tónleikanna áritað
af Louis Armstrong og félögum og
fari að sjálfsögðu með þá eign eins og
fjársjóð. (Sjá mynd af prógramminu).
Sigtryggur Sigtryggsson, frétta-
stjóri á Morgunblaðinu, var 14 ára
fótboltapolli í Víking þegar tónleik-
arnir voru haldnir í febrúar 1965.
Hann rifjaði upp þessa tónleika, sem
hann og aðrir Víkingspollar fengu að
fara á, í grein hér í Morgunblaðinu
17. nóvember árið 2007. Þar sagði
Sigtryggur m.a.: „En ljósmynd Óla
K. rifjaði einnig upp rúmlega 40 ára
gamlar minningar frá mögnuðustu
tónleikum sem ég hef hlýtt á um æv-
ina. Þetta var í Háskólabíói að kvöldi
9. febrúar 1965. Ég veit dagsetn-
inguna upp á hár því ég varðveiti enn
prógrammið frá tónleikunum. Louis
Armstrong og hljómsveit voru að
halda lokatónleikana í ferð sinni hing-
að. Merkilegt nokk var það Knatt-
spyrnudeild Víkings sem stóð fyrir
komu stórstjörnunnar hingað. Mitt
hlutverk og annarra ungra Víkings-
drengja var að selja tónleikagestum
prógrömm. Það var nóg að gera því
Veðsetti íbúðina
til að tryggja
greiðslur til Louis
Armstrongs
Hálf öld liðin frá tónleikum Louis
Armstrongs í Háskólabíói Knatt-
spyrnudeild Víkings flutti hann inn
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Satchmo Louis Armstrong, snilldar trompetleikari og söngvari, glaður í bragði að afloknum rakstri á Hótel Sögu.
Verð fr
á
KAI eru:
• Japanskir hágæða hnífar sem hafa verið framleiddir í yfir 100 ár
• Gerðir úr hágæða stáli
• Yfir 23.000 hnífar seldir á Íslandi
• Hnífar fyrir fagmanninn
jafnt sem áhugamanninn
Hágæða hnífar
SEKI MC
Shun Prem
iere
Pure koma
chi 2
Wasabi Bla
ck
2.250
kr.
Shun
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-54
Smart föt
fyrir
smart konur
Netverslun á
www.tiskuhus.is