Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 56

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 56
56 Af góðum og vondum bókum Eydís Hörn Hermannsdóttir Frá fyrstu kynnum hefur mér þótt vænt um bækur. Eiginlega um of á tímabili þar sem mér nægði ekki að leggja bókina frá mér á náttborðið heldur bjó um hana á mjúku beði og breiddi jafnvel eitthvað yfi r hana til hálfs áður en ég lagðist til svefns. Oftar en ekki læddist inn samviskubit yfi r að hafa gert bókunum mishátt undir höfði og ég þurfti að fara aftur á fætur og gera eitthvað fyrir hinar bækurnar. Það var ekki bara innihald bóka sem skipti mig máli, útlit, viðkoma og titill hafði mikið að segja. Ég hafði unun af því að fl etta bókum, fi nna pappírinn og heyra skrjáfi ð og eyddi drjúgum stundum á bókasöfnum þar sem ég horfði á enda- lausar raðir af bókum og lét mig dreyma um að fá að raða þeim upp á nýtt. Kannski eftir lit eða stórar og litlar á víxl. Sumar bækur drógu að sér athygli en innhaldið olli vonbrigðum. Ég gerði til dæmis ítrekaðar tilraunir til þess að skilja bókina Nú er tréfótur dauður vegna þess að hún kallaði nánast á mig þar sem hún stóð í bókahillunni, lítil, létt, pappírinn mattur eins og ég vildi helst hafa hann og titillinn kom af stað ótal hugsunum: Hver er Tréfótur (hljómar sjóræningjalega), úr hverju dó hann, hvaða áhrif hafði dauði hans fyrst hægt var að skrifa heila bók um það? Ég náði ekki almennilega þræðinum en mér skildist fl jótlega að Tréfótur væri ekki söguhetja eins og ég átti að venjast. Bókin var samt í uppáhaldi hjá mér lengi. Öfugt við Tréfót var bókin Fílar gleyma engu eftir Agöthu Christie ólesanleg vegna útlits. Ég hafði lesið allar Agöthubækur sem ég komst í tæri við en þessi var til heima í ómögulegri útgáfu. Fyrir utan ljóta kápumynd voru hlutföll bókarinnar óvenjuleg, kápan var lin og blaðsíðurnar hálfglansandi. Að útliti slepptu var ég opin fyrir fl estum tegundum bóka en tók þó ævintýri fram yfi r annað. Fræðslubækur þóttu mér frekar leiðinlegar og tilgangslausar. Síst vildi ég lesa sögur sem gerðust á Íslandi í nútímanum og best var ef land í fj arska kom við sögu. Sögur um munaðarlausa drengi sem lentu í hrakningum en stóðu sig eins og hetjur og lentu að lokum Bækur og líf hjá góðu fólki voru lengi í uppáhaldi. Þegar ég var 10 ára vakti bókin Skræpótti fuglinn eftir Jerzy Kosinski athygli mína í einni bókahillunni heima. Sagan gerist í Austur-Evrópu án þess að talað sé um lönd og ég hafði aðeins óljósa hugmynd um staðsetninguna. Í stuttu máli segir þarna frá grimmd, fáfræði og hræðslu mannskepnunnar séð með augum og skilningi ungs drengs. Margir urðu til að hrylla sig yfi r því að ég skyldi lesa svo ljóta sögu og augljóslega átti margt í henni ekkert erindi við börn. Ég held samt að takmarkaður skilningur minn hafi hlíft mér og ég séð atburðina á svipaðan hátt og söguhetjan. Ég vorkenndi til dæmis skræpótta fuglinum sem sagt er frá í inngangi bókarinnar mun meira en mörgu af því fólki sem hlaut hræðileg örlög í sögunni. Skræpótti fuglinn vakti áhuga minn á þessu stórfenglega landi í fj arska og ég leitaði að fl eiri slíkum bókum. Eftir nokkra leit fann ég Berfætlinga eftir Zaharia Stancu og síðar Meðan eldarnir brenna sem rauk upp í fyrsta sæti. Ég fylgdi líka Maxím Gorkí eftir þar til hann komst á fullorðinsár og varð hálfl eiðinlegur. Í tvö ár renndi ég mér á sleða í nístandi kulda dúðuð í feldi eða hossaðist á vagnskrifl i undir brennandi sumarsól. Ég ferðaðist um borgir og bæi í Rússlandi, norður til Síberíu undir verndarvæng kósakka sem reyndust svo skúrkar en ekki hetjur, fram og til baka í gegnum fl est lönd í Austur- Evrópu og endaði að lokum á grískri eyju með bókunum Frelsið eða dauðann og Sól dauðans. Eftir að ég náði þessum gífurlega þroska sem einkennir mig í dag hef ég lesið allar þessar bækur aftur. Ég komst að því að sums staðar mátti klárlega lesa annað út úr atburðum en ég hafði gert sem barn, Mikalis höfuðs maður sem hafði borið höfuð og herðar yfi r aðra og haft réttlæti að leiðarljósi reyndist óforbetranleg karlremba og veiklundaður afturhaldsseggur á meðan móðir Maxíms Gorkí hafði örugg- lega dáið gegn vilja sínum og ekki við hana að sakast. Þegar ég hafði lokið lestri þessara verka fannst mér ég hafa lesið allt. Aldrei myndi neitt ná slíkum hæðum aftur, ég hafði lesið það sem máli skipti. Ég sneri mér því að meira léttmeti og las Grím grallara og fl eiri grínbækur af svo miklu kappi að faðir minn fékk áhyggjukast yfi r stöðnun og forheimskandi innrætingu. Í lífi mínu hafa komið nokkrir slíkir lestrarkafl ar þar sem ég heillast af landsvæði, fólki eða atburðum og les allt sem ég fi nn um efnið. Þegar ég komst yfi r andúð mína á raunveruleikanum hafði ég gjarnan landafræðibækur við hendina eða önnur uppfl ettirit og bar saman. Engar bækur hafa þó haft eins gríðarleg áhrif á mig og þær sem ég hef nefnt hér að framan og ég er afskaplega ánægð með að hafa ratað á þær fyrir fullorðinsaldur. Ef ég væri að lesa þær í fyrsta skipti í dag myndu þær efl aust verða til að veikja trú mína á mannkyninu, valda áhyggjum af þjóðarhreinsunum nútímans og grimmdinni sem leynist alls staðar. Sem barn sá ég hvað var rétt og hvað rangt, hver var góður og hver vondur og þótt þeir góðu fengju skell vissi ég að þeir myndu sigra að lokum, annars gæti heimurinn bara ekki virkað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.