Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 11

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 11
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 9 Markmið ENRICH verkefnisins (http://enrich.manuscriptorium.com) er að gera notendum aðgengilegar á netinu frá einum stað upplýsingar um menningararfleifð og stafrænar myndir. Til þess þurfa þátttakendur í verkefninu að búa til lýsigögn yfir skráningarfærslur og stafrænar myndir. Þessar upplýsingar og stafræn gögn verða gerðar aðgengilegar í gagnabanka, og fyrirmyndin að honum er stafrænt handritasafn í Prag í Tékklandi. Umfang og saga Þann 3. desember 2007 var hleypt af stokkunum í Prag samstarfsverkefninu ENRICH sem er styrkt af eContentPlus áætlun Evrópusambandsins. Heiti verk- efnisins ENRICH er skammstöfun fyrir European Networking Resources and Information concerning Cultural Heritage – Evrópskar net­ og upplýsingaveit­ ur um menningararfleifð. Verkefnið mun standa yfir í tvö ár og ljúka í desember 2009. Þátttakendur eru átján og koma frá tólf löndum. Ásamt Landsbókasafni taka einnig þátt tvær aðrar stofnanir sem varðveita íslensk handrit: Stofnun Árna Magnússonar í íslensk- um fræðum í Reykjavík og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn. Þessar þrjár stofnanir hafa nú tekið upp samstarf við skráningu og lýsingu á handritum sem eru í þeirra fórum og markmiðið er að búa til samskrá um íslensk handrit. Mun sú reynsla sem kemur til af ENRICH verkefninu ugglaust nýtast í því verki. Markmið ENRICH er að opna greiðan aðgang að stafrænum myndum af fornum heimildum sem eru varðveittar í evrópskum menningarstofnunum og skapa sameiginlegt sýndarumhverfi, einkum til rannsókna á handritum, en einnig vögguprenti, fágætum, gömlum bókum og sögulegum skjölum. Verkefnið byggist á reynslu sem fengist hefur af verk- efninu Manuscriptorium Digital Library (http://www. manuscriptorium.eu) en þar eru nú samtengd og gerð aðgengileg gögn frá 46 söfnum og mun fjölga með tímanum. ENRICH verkefnið mun, þegar gögnum frá öllum þátttökuþjóðunum hefur verið safnað saman, ná til því sem næst 85% stafrænna mynda sem fram til þessa hafa verið teknar af handritum í evrópskum þjóð- bókasöfnum og eru dreifðar um Evrópu. Á meðan verkefnið stendur yfir mun bætast við fjöldi gagna frá háskólabókasöfnum og öðrum stofnunum. Áætlað er að samstarfið muni veita aðgang að rösklega fimm milljónum stafrænna blaðsíðna. ENRICH verkefninu er beint, annars vegar að þeim sem eiga eða varðveita gögn, það er bóka-, minja- og skjalasöfnum, og hins vegar vísindamönn- um, háskólanemum og almenningi. Verkefnið mun gera þeim kleift að leita uppi og nálgast heimildir sem annars væru nánast óaðgengilegar. Auk stafrænna mynda af handritum og skjölum verður boðið upp á aðgang að tölvutækum textum, hjálpargögnum, hljóðskrám og myndum af kortum. Hluti verkefnisins er að virkja notendur. Þeir munu fá til afnota tæki til að safna saman, eftir eigin geðþótta, stafrænum afrit- um af skjölum og nýta sér gögnin til rannsókna. Þá er stefnt að því að bjóða upp á nokkurn fjölda tungu- mála innan gagnagrunnsins við leitir. Náin samvinna verður á milli ENRICH verkefn- isins og Evrópubókasafnsins (TEL – The European Library) og með þeim hætti verður verkefnið hluti af Stafræna evrópska bókasafninu (EDL – The European Digital Library). En Landsbókasafn tekur þátt í nokkrum verkefnum undir fyrrgreindum for- merkjum og greint er frá hér að ofan. ENRICH verkefnið byggist á öðru verkefni sem nefnist Manuscriptorium Digital Library. Innan þess er veittur aðgangur að upplýsingum um handrit og stafrænum myndum af þeim. Meginreglan við upp- byggingu þess verkefnis er að skráningar og lýsingar eru leitarbærar í Manuscriptorium gagnabanka en stafrænu myndirnar, sem eru notendum aðgengileg- ar, eru varðveittar hjá þátttakendum víðsvegar um Evrópu. Þetta er gert með þeim hætti að búin eru til lýsigögn fyrir gögnin – skráningarfærslurnar – og myndir af gögnunum. Þessar upplýsingar eru sóttar frá einstökum söfnum með svokölluðum OAI safnara (Open Archive Initiative). Lýsigögnin geyma teng- ingar við stafrænar myndir sem vistaðar eru í gagna- Örn Hrafnkelsson ENRICH Evrópskar net- og upplýsingaveitur um menningararfl eifð ��������� ����������� ���������� ��� ��������� �� ���������� ����������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.