Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 17
Sviðsmynd
hann, að engin vandræði væru við flutning ís-
bjarnarbúranna. Bezt væri að hafa þau á dekkinu,
sagðist hann áður fyrr hafa flutt slík búr alla
leið til New York og tekizt prýðilega. Virtist nú
„björninn unninn“ því það voru einmitt þessi
bjarnarbúr sem mestur vandinn stafaði af, því
að þau rúmuðust ekki undir dekki vegna þess hve
há þau voru. Nú urðum við ofsakátir og skund-
uðum til ferjunnar og náðum að stökkva um borð
síðastir allra. Ókum með fyrstu lest frá Malmö til
Lundar og sáum hátíðarsýninguna, dýrðlegt tab-
lau og glæsileg skemmtiatriði. Sátum síðan fjöl-
menna stórveizlu hjá Rhodin senior. Þar voru
allir kjólklæddir nema við Árni. Héldum ræður
og auk þess gekk ég til afmælisöldungsins í há-
sætinu og kyssti hann og hans ektakvinnun með
tilburðum sem mér er sagt að tíðkast hafi við
hirð sólkonungsins í Frakklandi. Árni hafði orð
á því, að ég væri ekki tiltakanlega feiminn veizlu-
gestur. Vorum ljósmyndaðir í bak og fyrir og
veittum blaðamönnum viðtal. Blöðin virtust gefa
þessu fyrirtæki okkar þá nokkurn gaum enda
létum við ekki minna yfir okkur en efni stóðu til,
sem sagt, alls ófeimnir. Gistum í næsta húsi við
dómkirkju þá víðfrægu í Lundi, þar sem Jón
okkar helgi upphóf sína englarödd fyrr á tíð.
5. dagur. Laugardagur 29/9.
Ákveðið var að mæta Rhodin í cirkusnum kl.
15. Hittum hann sjúkan í rúmi við góða hjúkrun
einnar ljúflegrar yngismeyjar. Dróst hann þó á
fætur og sýndi okkur allt það stórt og smátt, sem
flytja þyrfti og var bæði leiður og gugginn. Varð
tíðrætt um erfiðleika, einkanlega vegna samninga
Framhald á bls. 56
RF.YKJALUNDUR
15