Reykjalundur - 01.06.1968, Qupperneq 51

Reykjalundur - 01.06.1968, Qupperneq 51
Steindór Steindórsson frá Hlöðum skipaður skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Steindór hefur verið mikilhæfur og virkur félagi í Berkla- vörn Akureyrar og sambandsins frá stofnun þess. - o - Maí 25.: Sambandsstjórnin samþykkir fyrir sitt leyti að læknisbústaður Álafosshéraðs verði reist- ur í landi Reykj alundar. Oddi Ólafssyni og Árna Einarssyni var falið að gera samning við stjórn læknishéraðsins þar að lútandi. - o - Tilhögun Vöruhappdrættisins óbreytt frá f. á. þó með þeirri veigamiklu undantekningu, að settur var inn aukavinningur í 5. fl. sem var Chevrolet Camaro sportbíll að kaupverði nálægt 450 þús. kr. - o - Maí 24.: Sjálfvirk símstöð opnuð í Reykja- lundi. Stöðin hefur 10 talrásasambönd við sjálf- virka símakerfi landsins og 68 taltæki innan stað- ar. Stöðina má stækka eins og þörf krefur í fram- tíðinni. - o - Júní 6.: Látinn í Reykjavík Jónas Þorbergsson, fyrrv. útvarpsstjóri. Jónas var meðal stofnenda S. í. B. S. og ávallt síðan virkur félagi. 1. forseti á flestum þingum S. í. B. S. Áhrifamesti hvatamað- ur að byggingu Kristnesshælis 1927. ÞANNIG Á AÐ UMGANGAST FORELDRA Framhald aj bls. 33 Ef fjölskyldan er öll samankomin við matar- borðið borgar sig fyrir barnið að sitja graf- kyrrt, jafnvel þó því leiðist. Vegna þess að ef það stendur upp, heyrist þessi setning í níu til- fellum af 10: Fyrst þú ert staðin upp hvort sem er, viltu þá ekki hlaupa og ná í gleraugun mín? Oftast hafa þeir fullorðnu enga þörf fyrir gler- augun eða prjónana eða hvað, sem þeim kann að detta í hug að senda mann eftir, þeir mundu ekki láta sér til hugar koma, að þá vantaði þessa hluti, ef maður væri ekki staðin upp. Bezta ráð- ið er að sitja og hlusta á tal fullorðna fólksins. Það talar ótrúlega mikið, og því líkar vel að hafa eftirtektarsama áheyrendur. 4. Rifrildi: Þeir foreldrar eru til, sem rífast næstum aldrei neitt að ráði, en ég held þó, að allir foreldrar rífist, ef þeir ætla út að skemmta sér að kvöldi til. Þegar þau eru loksins búin að hafa fataskipti og eru orðin allt of sein og hvort um sig kennir hinu um - þá byrjar rifr- ildið. Oftast er báðum um að kenna, en öllum skal ráðlagt að leggja ekki eitt orð til málanna. Og heppilegast er að láta sem allra minnst á sér bera, leyfa þeim að rífast í friði. Þetta getur tekið þá nokkuð langan tíma, og þegar manni fer að leiðast að hlusta, getur verið ágætt að líta í góða bók. Hvað þetta snertis og margt annað, batna foreldrar sízt með aldrinum. 5. Þegar þau hœtta að reykja: Ef maður finn- ur einn góðan veðurdag á stofuborðinu bókina: „Hættið að reykja“, er voðinn vís. Ef þau fá þá hugmynd að hætta að reykja, verða þau svo geðvond að engu tali tekur, rjúka upp af hvaða smámunum sem er. En þau sitja fast við sinn keip að hætta reykingum - í nokkra daga. Því fyrr eða seinna rennur upp sá dagur að þau byrja aftur. Algengast er að þetta tímabil taki svona viku til tíu daga. Og maður verður sannarlega að taka á allri sinni þolinmæði á meðan. 5. Útvarp: í flestum fjölskyldum er eilífur á- greiningur um það hvaða útvarpsefni eigi að hlusta á. Faðirinn vill venjulega hlusta á erindi um efnahagsmál, þjóðmál og þess háttar. Móðirin vill heyra kvennaþætti og ævaforn danslög frá því að hún var ung. En börnin vilja hlusta á eitthvað sem vit er í, bítlamúsik og jazz. Það er þó yfirleitt bezt að láta fullorðna fólkið ráða, annars gæti því dottið í hug að fara að skoða einkunnabókina manns eða líta á skólahanda- REYKJALUNDUR 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.