Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 25

Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 25
25 bókasafnið 36. árg. 2012 fékk í upphafi styrk frá Evrópusambandinu og það var búinn til lítill evrópskur bókmenntavefur sem átti að vera sýnishorn af því hvernig svona bókmenntavefur gæti litið út. Ekki voru tök á því á þessum tíma að halda áfram með þetta evrópska verkefni en við ákváðum að halda áfram. Bókmenntavefurinn er mjög mikilvægur til þess að kynna íslenskar bókmenntir, bæði erlendis og innanlands. Viðbrögð notenda sýna það. Við erum stolt af því hve honum hefur verið haldið vel við, en úthaldið skiptir auðvitað miklu máli. Bókmenntagöngurnar fyrir erlenda ferðamenn eru gott dæmi um úthald, við vorum nánast að gefast upp, en gáfum því einn enn séns, þriðja sumarið og þá allt í einu varð sprenging. Það varð okkur mikil lyftistöng þegar Reykjavík varð ein af menningarborgum Evrópu og á sama hátt hefur líka skipt miklu máli að borgin var útnefnd bókmenntaborg UNESCO í ágúst 2011. Borgarbókasafnið tók mikinn þátt í umsóknarferlinu og fylgdi glæsileg skýrsla umsókninni um stöðu mála í borginni og þau verkefni sem framundan eru. Eitt verkefnið er hinn lestrarhvetjandi Sleipnir, bokmenntaborgin.is. Myndlist sem víðast Ég hef alltaf talið að myndlist eigi að vera sem víðast í umhverfinu, í almenningsrými eins og bókasöfnum, minnug þess hve myndverk, veggmyndir og leiktjöld Barböru Árnason í Melaskóla höfðu mikil áhrif á okkur börnin í skólanum. Mér var það því kappsmál að myndlist yrði mikilvægur hluti af rýminu í nýju aðalsafni en tvö föst myndverk eru á fyrstu hæðinni í Grófarhúsi. Annað er glerverk, Fagra veröld, tileinkað Tómasi Guðmundssyni, Reykjavíkurskáldinu, eftir Leif Breiðfjörð en brjóstmynd sem Sigurjón Ólafsson gerði af skáldinu er hjá. Hitt verkið er eftir Helga Gíslason, en hann umbreytti einni af burðarsúlum hússins þannig að verkið minnti á menningarhlutverk þess, þannig að súlan bæri uppi þetta hlutverk hússins. Súlan sem stendur í ,,þekkingarbrunni“ minnir á grundvöll okkar vestrænu menningar. Súluhöfuðið er stílfærður forngrískur, jónískur stíll. Það er dálítið gaman að segja frá því að svona rúmri viku áður en húsið var opnað hringdi Helgi í mig dálítið áhyggjufullur og sagðist ekki vita hvað hann ætti að láta listaverkið heita. Mér datt í hug að leita í brunn Snorra Hjartarsonar og fann strax heitið Óður, en orðið kemur fyrir í fyrstu ljóðlínu fyrsta kvæðis í fyrstu ljóðabókinni hans. Óður merkir meðal annars hugur, sál, vitsmunir, skáldskapur, kvæði, skáldagáfa. Bæði bókabíllinn Höfðingi og sögubíllinn Æringi eru fagurlega myndskreyttir að utan eftir annars vegar Gunnar Karlsson og hins vegar Brian Pilkington og vekja athygli hvar sem þeir fara. Þá er gaman að segja frá því að í vor var afhjúpað vegglistaverk í Ársafni eftir Kristínu Arngrímsdóttur, listamann en einnig starfsmann safnsins. Í öllum söfnunum gleður gesti fjöldi listaverka í eigu Reykjavíkurborgar. Í Borgarbókasafninu í Helskinki hefur um árabil verið starfrækt svokallað Artótek eða útlán/leiga/sala á mynd- list starfandi listamanna. Ég hafði um tíma reynt að selja hugmyndina um að Borgarbókasafn reyndi slíkt nú þegar húsnæðið bauð upp á það. Ráðamenn áttu erfitt með að sjá þetta fyrir sér, en svo vildi svo heppilega til að menn- ingarmálanefnd (pólitíkusarnir) fór ásamt okkur for stöðu- mönnum menningarstofnana Reykjavíkur í kynnisferð til Helsinki. Ég setti heimsókn í Artótekið finnska á dagskrána og eftir það voru allir einhuga um að hugmyndin væri góð, – ekki málið. Engu að kvíða Á þessum rúmu 33 árum sem ég hef starfað við Borgar- bókasafnið hafa eins og gefur að skilja orðið gífurlegar breytingar og takast bókasöfnin stöðugt á við samfélagslegar og tæknilegar breytingar. Þess vegna hefur Borgarbókasafnið undanfarin tvö ár tekið þátt, ásamt Amtsbókasafninu á Akureyri og Bókasafni Kópavogs, í samnorrænu verkefni, Nordic camps, öðru nafni Next library. Ég bind miklar vonir við það verkefni og það hefur sannað sig held ég að þetta hafi haft mjög góð áhrif á starfið í safninu. Á það hefur verið lögð áhersla að yngri kynslóðin, þeir sem taka við, taki þátt í þessu verkefni, fari í þessar vinnusmiðjur og að hún fái tækifæri til þess að koma með framtíðarhugmyndir. Eins mikilvægt og það er að yngri kynslóðin móti framtíðina þá er jafnmikilvægt að byggja á reynslu eldri kynslóðarinnar. Hverri kynslóð hættir til að telja að lítið hafi áunnist áður en hún tók við og alla vega í íslensku nútímasamfélagi er reynsla hinna eldri stórlega vanmetin. Í rúmt ár hefur svokallað samráð 12-14 starfsmanna innan safnsins unnið að gerð langtímastefnu Borgarbókasafns með aðgerðabindingu. Aðferðafræðin byggist meðal annars á gerð sviðsmynda, eins og það er kallað, og samstarfi við rýnihópa. Það er því engu að kvíða um framtíð Borgarbókasafns, sem mér þykir afar vænt um, eins og ég sagði í upphafi. Þegar upp er staðið er besta minningin mín tilhugsunin um allt það góða fólk sem ég hef unnið með innan Borgarbókasafns, innan Reykjavíkurborgar og innan bókasafna geirans hér á landi í á fjórða áratug. Óður, myndverk eftir Helga Gíslason. Á veggnum til vinstri er upphafið að kvæði Snorra Hjartarsonar, Í Úlfdölum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.