Húnavaka - 01.05.2001, Page 88
86
HUNAVAKA
Ekki minnist sá er þetta ritar að á ósjálfræðisköstum hafi borið meðan
Guðrún dvaldi í Vatnsdalnum en hann var samtíða mæðgunum á heim-
ili foreldra sinna í Þórormstungu frá 10. maí til 29. júní vorið 1922 og
man glöggt eftir þeim. Er lítils háttar frásögn fyrr í þessum þætti byggð á
þeim kynnum og hvergi kemur annars staðar fram að getið sé um þenn-
an krankleika Guðrúnar. En að hún væri heilsuveil og vanmegnug vegna
þess var alntæli. Hugsanlegt er líka það sem talið var í hennar heintahér-
aði að hún gerði sér krampaköstin upp en engan dóm er hægt á það að
leggja. Guðrún fluttist til Siglufjarðar árið 1939 í skjóli dóttur sinuar er
þá var þar búsett. Það styður það sem áður er sagt er hún hverfur með
öllu úr framfærslu As-
____ hrepps. Eftir að Guð-
^ .. r rún flutti til Siglu-
fjarðar dvaldi hún að
mestu á sjúkrahúsi þar í
bæ og andaðist 20. nóv.
1947, að ætla má södd
lífdaga.
Hugur þess er jDenn-
an þátt ritar hafði lengi
staðið til þess að kom-
ast betur ofan í mál
Benedikts Jónassonar
og Guðrúnar Runólfs-
dóttur en minni hans frá æskuárum í Vatnsdal náði til. Er hann fregn-
aði, svo að segja af tilviljum, að Guðrún hefði endað æfi sína norður á
Siglufirði og þar hefði dóttir hennar verið búsett, varð það til þess að
hafist var handa um að fara ofan í málið svo sem unnt var. Nærtækar
voru sveitarbækur Ashrepps frá umræddum tíma, geymdar á Héraðs-
skjalasafninu á Blönduósi, þá var gott að leita til góðkunningja míns og
sýslunga, Jóns Torfasonar íslenskufræðings frá Torfalæk, um heimildir á
Þjóðskjalasafni Islands þar sem hann starfar. Hefir hann verið óþreytandi
að leita gagna og senda mér, þessurn málum viðkomandi. Eg átti símavið-
töl við kunnuga menn fyrir austan fjall er vissu deili á Benedikt og nefni
ég þar fyrst og fremst Ragnar Böðvarsson, þá bónda á Kvistum í Ölfusi, er
nú vinnur á Selfossi að ættfræðistörfum fyrir Rangæinga. Varð það fast-
mælum bundið að hann liðsinnti mér og leiðbeindi ef ég kæmi sjálfur
austur og kynnti mér „söguslóðir“ Benedikts og konu hans, Guðrúnar.
Fjögur dl fimm ár liðu þar til tækifæri gafst til þess að taka sér fyrirhug-
aða ferð á hendur sem loks varð af í lok maímánaðar 1998. Ragnar
reyndist dl staðar og skagfirskur vinur minn, Jóhann Guðmundsson (Jói
í Stapa), lagði til farkosdnn frá Selfossi og veitti okkur auk þess skemmtí-
7...'. • \ . : . ‘ói
Greinarhöfundur og Guöjón bóndi á Grímsstöðum í
vettvangskönnun. Ljósm.: Jói í Stapa.