Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 4
Heilbrigðismál Þrjú íslensk verk- efni komust langt í samkeppni Nordic Innovation um nýbreytni sem stuðla á að því að eldra fólk geti búið lengur heima. Í dag eru kynnt verkefnin fimm sem urðu ofan á og verða valin til prufkeyrslu í höfuð- borgum Íslands, Danmerkur, Nor- egs, Svíþjóðar og Finnlands. Fjögur hundruð og fimmtán verk- efni voru send inn í keppnina, sem var opin öllum. Tuttugu og fimm voru í lokaúrtaki, en þar af voru þrjú íslensk: „TravAble“ sem gerir handhægar aðgengisupplýsingar, „Safe and Independent Living“ sem nemur sjálfkrafa ef fólk dettur og gerir viðvart, og „Thermal Winter Garden“ sem stefnir á að bæta heilsu aldraðra með auknu aðgengi að plöntum og sólarljósi. Í Stokkhólmi í Svíþjóð fór svo fram í vikunni, dagana 15. og 16. desember, sérstök kynning á verk- efnunum 25 fyrir dómnefnd sér- fræðinga á sviði frumkvöðlafyrir- tækja. Og þótt íslensku verkefnin hafi ekki komist lengra í þessari keppni, þarf það ekki að þýða enda- lok þeirra, eða annarra verkefna. Til dæmis fékk TravAble í vikunni 500 þúsund króna styrk frá Landsbank- anum til áframhaldandi þróunar. „Við erum að reyna að ná betri árangri í nýsköpun með því að setja hugmyndir úr öllum borgunum í einn pott,“ segir Dagur B. Eggerts- son, borgarstjóri í Reykjavík. „Verið er að velta upp hvernig ný tækni og nýjar lausnir geta nýst í velferðarþjónustu og ekki síst fyrir breytilegar þarfir fólks,“ segir Dagur og bendir á að kynslóðirnar sem séu að eldast séu um margt öðruvísi en áður var. „Fjölbreytni er meiri í þörfum og annars konar óskir.“ Dvöl á hjúkrunarheimilum er kostnaðarsöm og því hagkvæmt að stuðla að því að fólk geti verið lengur heima. Þótt það skipti sveit- arfélög máli bendir Dagur á að það skipti líka fólkið sjálft máli. „Við vitum að flestir vilja vera lengur heima ef þeim er gert það kleift og erum einfaldlega þeirrar skoðunar að við viljum mæta þessum óskum og nota eins mikla útsjónarsemi og hægt er til að styðja við fólk.“ olikr@frettabladid.is Farsímatrygging Þriðji hver farsími verður fyrir tjóni eða er stolið á fyrsta ári Söluaðilar: Nova og Síminn Viss ehf · Ármúla 7 · sími 445 4500 · www.viss.is Ný tækni í velferðarþjónustu Taka á í notkun til prufu í fimm höfuðborgum Norðurlanda verðlaunaverkefni í samkeppni Nordic Innov­ ation um leiðir til að eldra fólk geti búið lengur heima. Þrjú íslensk verkefni komust langt í keppninni. Á Hrafnistu og öðrum hjúkrunarheimilum fá aldraðir sem ekki ráða við að sjá um sig sjálfir þjónustu. Í samnorrænni sam- keppni er leitað lausna til að fólk geti verið lengur í eigin húsnæði. Fréttablaðið/Pjetur Þessi urðu ofan á Verkefnin fimm sem valin hafa verið til frekari prófana í höfuðborgum Norðurlandanna koma frá Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og tvö frá Nor- egi og eru af ýmsum toga. Svíþjóð „Piloxa“ er töflubox með snjall- símatengingu sem minnir notendur á að taka lyfin sín. Danmörk „siren“ kemur í veg fyrir fótamein af völdum sykursýki með hjálp hitaskynjara í sokkum. Noregur „Assistep“ er göngugrind í tröppur sem minnkar á líkur á því að fólk detti. „AbleOn showersystem“ er nokk- urs konar göngugrind í baðherbergi með festingu í sturtuvegg. Finnland „Nifty Neigbor“ snýst um að virkja nágranna til að aðstoða eldri íbúa. Við vitum að flestir vilja vera lengur heima ef þeim er gert það kleift. Dagur B. Eggerts- son, borgarstjóri í Reykjavík sveitArstjórNArmál Þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Reykjavíkurborg hefur fækkað um 10,9 prósent í ár. Þeir voru 3.080 á tímabilinu janúar til október 2014 en fækkaði niður í 2.745 á sama tíma- bili í ár. Það sem er sérstakt fagnaðarefni er að ungu fólki er að fækka mjög mikið hjá okkur og komast í vinnu segir að þróunina megi fyrst og fremst skýra með því að möguleikar á atvinnu- markaði hafi aukist og dregið úr atvinnuleysi. „Svo höfum við á velferðarsviði verið með ýmis átaksverkefni í gangi til þess að hvetja fólk þannig að það geti tekið störf þegar þau bjóðast. Þannig að ég held að þetta sé sam- bland af þessu,“ segir Kristjana. Starfsfólk á velferðarsviði hafi veitt þessum hópi fólks sérstaka athygli og hvatningu með stuðningi og ráðgjöf. Kristjana segir að fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð hafi byrjað að fækka 2011. En því hafi fækkað mjög ört á þessu ári. Hún fagnar þessari þróun. „Og það sem er sérstakt fagnaðar- efni er að ungu fólki er að fækka mjög mikið hjá okkur og komast í vinnu.“ Magnús Már Guðmundsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í vel- ferðarráði Reykjavíkurborgar, tekur undir með Kristjönu. „Ég held það óski þess enginn að vera á fjárhagsaðstoð,“ segir Magnús Már. Samstarf við starfsendurhæfing- una Janus og starfsendurhæfingar- sjóðinn Virk, Vinnumálastofnun og fleiri hafi skipt mjög miklu máli. „Auðvitað er ekkert hægt að horfa fram hjá því að þetta er gott fyrir samfélagið að fá fleiri á vinnumark- aðinn,“ segir Magnús og bætir því við að fjárhagsaðstoð sé stór kostnaðar- liður hjá borginni. – jhh Þiggjendum fjárhagsaðstoðar fækkar um þrjú hundruð Magnús Már Guðmundsson á sæti í vel- ferðarráði. Fréttablaðið/HaG Sérstakt fagnaðar- efni að ungu fólki er að fækka mjög mikið hjá okkur og komast í vinnu. Kristjana Gunnarsdóttir, sviðsstjóri á vel- ferðarsviði Reykjavíkurborgar Dómsmál Hæstiréttur staðfesti í gær tveggja mánaða skilorðsbund- inn dóm yfir Oddi Hrafni Stefáni Björgvinssyni, betur þekktum sem Krumma í Mínus, fyrir brot gegn valdstjórninni. Oddur Hrafn var dæmdur fyrir að hafa sparkað í fót lögreglumanns við skyldustörf í júní árið 2013. Við aðal- meðferð málsins neitaði hann sök. Hæstiréttur gerði honum einnig að greiða allan áfrýjunarkostnað máls- ins og þar með talin málsvarnarlaun verjanda síns. Í dóminum segir að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að brot gegn valdstjórninni beri að líta alvarlegum augum. Þá var litið til þess að ekkert tjón hefði hlotist af háttseminni. – ngy Sparkaði í fót lögreglumanns Dómsmál Hæstiréttur  staðfesti í gær  fimmtán mánaða dóm yfir 67 ára gömlum karli fyrir vörslu á miklu magni barnakláms á formi hreyfi- mynda og ljósmynda. Tólf mánuðir af refsingunni eru óskilorðsbundnir. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að maðurinn hafði ekki áður verið dæmdur til refsingar og að málsmeðferðin hefði tekið of langan tíma. Við húsleit á hjá manninum í febrúar 2013 var lagt hald á tölvur, á annan tug harðra diska og minniskubba sem innihéldu samtals 34.837 ljósmyndir og 585 hreyfimyndir sem sýndu börn, eða fullorðna einstaklinga í hlutverki barna, á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Að miklu leyti var um sama efnið að ræða á ólíkum tölvum og diskum. – ngy Í fangelsi fyrir vörslu á barnaklámi Dómsmál Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki máli sínu til Hæstaréttar gegn Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðingi sem ákærð var fyrir manndráp af gáleysi og fyrir brot á hjúkrunar- lögum. Þetta kemur fram á vef ríkis- saksóknara. Ákæran sneri að því að Ástu hefði láðst að tæma loft úr belg barka raufarrennu þegar hún tók sjúkling úr öndunarvél þann 3. október 2012 og setti talventil í rennuna. Ásta neitaði alltaf sök í málinu. Fyrr í mánuðinum var hún sýknuð af ákærunni í Héraðsdómi Reykja- víkur með mikinn fögnuð. Við- staddir klöppuðu og grétu af gleði. Ásta Kristín þakkaði í dag fyrir allan þann stuðning sem hún fékk á meðan á málinu stóð, og þá sér- staklega síðustu vikurnar. Hún seg- ist vera aftur mætt til vinnu og að það hafi verið gott að hitta vinnu- félagana aftur. Þá verði komandi jól þau fyrstu í þrjú ár sem þetta mál hangi ekki yfir henni. Um er að ræða fordæmalaust mál og er þetta í fyrsta skipti sem starfs- maður Landspítalans er ákærður fyrir mál af þessu tagi. – ngy Ríkissaksóknari áfrýjar ekki sýknudómi Ásta Kristín andrésdóttir var ákærð fyrir brot á hjúkrunarlögum. Fréttablaðið/VilHelM Fyrr í þessum mánuði var Ásta sýknuð í Héraðs- dómi Reykjavíkur við mikinn fögnuð. 1 8 . D e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -9 3 1 0 1 7 B B -9 1 D 4 1 7 B B -9 0 9 8 1 7 B B -8 F 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.