Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 34
hef einnig fengið hrós frá ungum stelpum sem tala nú um kynlíf og geta sagt orðið píka. Líka frá móður sem nú talar við börn sín um kynlíf og kaupir smokka. Og foreldrana sem fóru að tala um raunveruleika uppeldis, án alls glans. Og öllum þeim lesendum sem segja mér að þeir lesi í hverri einustu viku og hafi gagn og gaman af. Ég er svo óendanlega þakklát ykkur í hjartanu. Ofurkraftur á lyklaborðinu Það er ekki hægt að neita því að þegar maður fær slíkan með- byr og yl frá samborgurum, þá losnar um eitthvað. Ég pikka að- eins fastar og hraðar á lyklaborð- ið. Ég þarf að koma miklu að og eina leiðin til þess er að tala við fólk, hreyfa við því svo það verði að gárum breytinga í sínu um- hverfi. Þannig aukum við skilning og manngæsku, með því að hreyfa við næsta manni sem svo ber kær- leikann og fróðleikinn áfram. Fyrst ég er svona á einlægu nótunum þá get ég alveg sagt þér, kæri lesandi, ég er að skrifa tvær bækur. Önnur er sérvalið saman- safn af þessum pistlum sem hafa birst hér í Fréttablaðinu og hin er bók um kynlíf fyrir unglinga. (Þó hún sé raunverulega einnig fyrir allt það fólk sem aldrei fékk kyn- fræðslu og vill fá hana beint í æð án allra krúsídúlla, bara hrein- an og beinan (og fyndinn!) fróð- leik). Ég er því ekki með öllu horf- in og mun áfram herja á land- ann með opnari og hreinskilnari umræðu um kynlíf, tilfinningar, samskipti og ástina, sem og kyn- fræðslu í grunn- og framhalds- skólum landsins. Hvað, eða hver, er í þínum vegi? Ég reyndar taldi lengi að ég mætti ekki skrifa bók. Það var eitt af því sem minnimáttarkenndin hvísl- aði í eyra mitt. „Þú ert sko enginn Andri Snær, Þorgrímur, Kristín Marja, eða Vigdís Gríms, og verð- ur aldrei, svo slepptu þessu bara,“ hvísluðu raddirnar. Sem betur fer þá náði hrósið ykkar að yfirgnæfa hvíslið og þegar þessi leiðinda- kór ætlar að byrja þá set ég bara Edith Piaf í eyrun og öskra „Non, rien de rien, je regrette rien!“. Það hefur nefnilega ekki alltaf verið svo að lífið sé dans á rósum en ég trúi því að þetta sé spurn- ing um að reyna að þrauka, draga lærdóm af aðstæðunum, hlusta á sterka fyrirmynd og fá sér súkk- ulaði. Stundum sökkar allt (svo ég sletti) og þá er bara allt í lagi að setjast niður, anda djúpt og troða í sig molum og syngja. Sérstaklega þegar ekkert annað er í stöðunni. Ég er Pollýanna í hjartanu og trúi á að við eigum að vera duglegri að hlusta á innsæi okkar og taka áhættu, sér í lagi ef hjartað öskr- ar á þig að fara af stað. Aðgerðar- leysi getur valdið eftirsjá en mis- tök eru hluti af reynslubankanum og mótandi afl. Eina leiðin er áfram. Það er svo margt ósagt og ógert í tengsl- um við samskipti og kynlíf og mitt verkefni snýst um miklu meira en einhverja spéhræðslu hjá mér yfir takmörkunum á eigin gáfum eða hégóma um að halda ákveðnu andliti út á við. Verkefni mitt snýst um að bæta heiminn og fólkið í honum. Og þá er bara í boði að halda áfram. Þú getur breytt heiminum Ég hef margoft sagt að ég ætli mér að breyta heiminum og ég ætla að standa við það. Þegar maður hefur stuðning, birtu og kraft frá sterkum einstaklingum þá skín maður áfram og stoppar ekki. Þú, kæri lesandi, hefur átt þátt í því að móta mig og styrkja. Það er vegna þín sem ég þrosk- ast. Ég er auðmjúk, tillitssöm og langar að bæta mig og verða betri manneskja, því það skiptir máli. Hvernig ég hegða mér, hvað ég segi og hvað ég geri skiptir máli. Það skiptir líka máli fyrir þig. Við skiptum öll máli því öll höfum við áhrif á manneskjurnar í okkar nærumhverfi. Segðu píka. Kauptu smokka. Notaðu smokkinn. Spyrðu: „Er allt í lagi? Finnst þér þetta gott? Má ég halda áfram?“ Opnaðu augun. Segðu: „Mér þykir vænt um þig.“ Farðu í sleik. Elskaðu þig. Elskaðu líkama þinn. Elsk- aðu samferðafólk þitt. Virtu þig og aðra. Segðu takk. Vertu með í að breyta heiminum og bæta. Ást til ykkar allra inn í jólin og nýtt ár, við hitt- umst án efa á nýju ári, takk fyrir mig og sam- fylgdina! Þ á er komið að því. Ekki nóg með að formleg jól gangi í garð í næstu viku heldur er þetta einnig síðasti pistill- inn sem ég skrifa í Frétta- blaðið. Þetta hefur verið ævintýra- legur tími og það sem fáir vita er að fyrsti pistillinn eftir mig birt- ist árið 2006 í Fréttablaðinu. Þá var ég mjög innblásin af Carrie úr Beðmálum í Borginni og skrifaði um leitina að draumaprinsinum, og leitina að sjálfri mér. Ég man að ég áttaði mig alls ekki á því hversu margir, ef þá einhverjir, hefðu áhuga á þessum pistlum en ég hef alltaf skrifað svo þetta er bara órjúfanlegur hluti af mér og hver ég er. Kannski réttast að undirbúa þig. Þessi pistill er smá sjálfshátíð og það er von á væmni. Ekki segja að ég hafi ekki varað þig við. Fyrir fimm árum Þegar ég kom heim úr kynfræði- náminu hafði blaðamaður sam- band við mig og bauð mér að skrifa fyrir Fréttablaðið. Mér fannst það spennandi en jafnframt var ég hrædd við það því nú var ekkert hægt að skrifa bara um að vera í sleik á einhverjum skemmti- stað, nú þyrfti að skrifa af alvöru. Í fyrstu var ég mjög upptek- in af því að skrifa um rannsóknar- niðurstöður og vildi passa að hafa allt faglegt og flott. Mér fannst ég þurfa að sanna mig og ekki vera lengur þessi týnda stelpa. Ég gyrti mig í brók með nokkrum háskóla- gráðum, heimsferðalögum og sterk- um maka og settist við skriftir. Það var samt ekki fyrr en ég leyfði mér að slaka aðeins á og setti smá af mér í pistilinn þar sem þeir virki- lega flugu af stað og öðluðust sjálf- stætt líf. Orðin hreyfðu við lesend- um. Þakklæti Ég hef heyrt af konum sem hafa klippt út pistla og hengt upp inn Takk fyrir mig og gleðileg jól! Sigga Dögg kynfræðingur kveður síður Fréttablaðsins og skrifar lokapistil um ferðalagið sem skrifin hafa verið og þakkar lesendum innilega fyrir meðbyr, hrós og stuðning þegar hún heldur á vit nýrra ævintýra í kynfræðslu og bókaskrifum. Þegar maður hefur stuðning, birtu og kraft frá sterkum einstaklingum þá skín maður áfram og stoppar ekki. um kynlíf þá getur þú sent Siggu Dögg póst. sigga@siggadogg.is viltu spyrja um kynlíf? Ef þú hefur spurningu á kaffistofur og jafnvel lesið upp- hátt fyrir samstarfsfélagana. Ég hef heyrt af konum sem klippa þá út og safna þeim. Ég hef per- sónulega fengið hrós frá fallegum ungum herramönnum sem segja að skrifin hafi bætt þeirra sam- band og þeir hugsi nú öðruvísi. Ég „Þú, kæri lesandi, hefur átt þátt í því að móta mig og styrkja. Það er vegna þín sem ég þroskast. Ég er auðmjúk, tillitssöm og langar að bæta mig og verða betri manneskja, því það skiptir máli.“ JÓLAGJÖFIN HENNAR Smáralind facebook.com/CommaIceland Heilsuvísir 4 • LÍFIÐ 18. DESEmbEr 2015 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -B F 8 0 1 7 B B -B E 4 4 1 7 B B -B D 0 8 1 7 B B -B B C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.