Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Qupperneq 14
Í fyrradag hélt Svarthöfði að hinn mikli Davíð Oddsson væri end-anlega fallinn af stalli. Allt benti til þess að gamla kratakempan Jón Sigurðsson væri orðinn allt í öllu í því slökkvistarfi sem nú er loksins haf- ið eftir að Geir H. Haarde hafði horft allt of lengi fram hjá þeirri óþægilegu staðreynd að íslenskt efnahagslíf væri að fuðra upp. Í fyrradag heyrðist ekki múkk í Davíð og allt benti til þess að Geir hefði loksins fundið hjá sér döng- un til að halaklippa hann og setja út í kuldann. Þjóðnýting Landsbank- ans tók af öll tvímæli um að peninga- stefna Davíðs væri komin í þrot og að sú einkavæðing sem hann blés til fyrir nokkrum árum væri komin í öngstræti. Tilraunin mistókst og þegar Jón Sigurðsson var kallaður til fannst Svarthöfða eins og honum heyrðist í fjarska arfleið Davíð sturtað niður klósettið. Auðvitað átti Svarthöfði, með alla sína lífsreynslu, að vita betur. Davíð verður ekki settur út í horn fyrr en hann kýs að fara þangað sjálfviljugur. Og kappinn átti sviðið í gær, hvæsti og sýndi í sér tennurnar. Galdrakarlinn í Svörtuloftum byrjaði daginn á því að draga fjóra milljarða evra frá Rússum upp úr pípuhatti sínum. Hann var að vísu aðeins of fljótur á sér þar sem milljarðarnir voru ekki komnir ofan í hattinn þegar hann vippaði þeim upp. En þeir munu koma og allt mun falla í ljúfa löð. Davíð mætti svo sprækur í viðtal við Kastljósið um kvöldið og minnti þjóð sína á að hann hefði alltaf séð við útrásarköppun- um sem væru hinir mestu drulludelar, óreglumenn og brennuvargar. Þarna var svo dýrt kveðið að for- inginn vitnaði í ömmu sína en það gerir hann bara við sérstök tækifæri þegar allt er undir. Hann útskýrði síðan bráðláta töfrabragðið sitt og sagði að varla gæti neitt komið í veg fyrir að Rússarnir skæru hina íslensku vini sína úr gjald- eyrissnörunni. Lánið er að vísu ekki frágengið en hann Pútín er búinn að skrifa upp á að hjálpar- beiðni Íslendinga verði skoðuð með jákvæðum augum. Í fljótu bragði átti Svarthöfði erfitt með að trúa því að sjálfur Dav- íð gæti farið bónleiðina til Kremlar. Helsti efnahagsráðgjafi og hugmynda- fræðismiður Davíðs í gegnum tíðina, Hannes Hólmsteinn, hlyti að fá flog yfir því að kommakvikindi ættu nú að koma til bjargar eftir að hin dás- amlega nýfrjálshyggja setti landið á hvolf. Þegar betur er að gáð er auðvit- að fullkomlega lógískt að Davíð leiti til Pútíns og treysti honum frekar en einhverjum Svíadurgum og leiðinda Norðmönnum. Davíð og Pútín eru eiginlega andlegir tvíburar og auðvit- að liggur beint við að leita á náðir Vla- dimírs. Hann er maður sem hefur sýnt að orð hans standa og hann er þraut- góður á raunastund. Eitthvað annað en dulan hann Bush sem hefur nú loksins stig- ið fram sem ljótasta stelp- an á ballinu þegar Banda- ríkja- menn sendu Íslending- um fingur- inn í þess- um miklu hremmingum. Stuðningurinn við Íraksstríðið skilaði okkur engu þegar upp var staðið. Nú þegar Pútín er kominn inn í myndina er Davíð aftur sestur undir stýri og vonandi fer hann í eigin persónu á fund Pútíns til að sækja peningana. Þá er þetta gulltryggt í bak og fyrir þar sem margt er líkt með skyldum. Pútín hætti á dögunum sem forseti Rúss- lands en ræður samt enn öllu. Alveg eins og Davíð sem hætti sem forsætis- ráðherra en ræður samt enn öllu á Ís- landi. Medvedev fær bara að vera með upp á náð og miskunn í Rússlandi alveg eins og Geir Haarde hér heima. Blaðamenn fara í taugarnar á þeim báðum, Davíð og Pútín, og þeim leið- ist hvorugum að ganga milli bols og höfuðs á andstæðingum sínum. Eini grundvallarmunurinn er sá að Davíð er ekki jafn óvandur að meðulum og hinn rússneski félagi hans og þess vegna þurfa íslenskir blaðamenn ekki að óttast um líf sitt og leigja fíleflda líf- verði úr sérsveitum Björns Bjarnason- ar til þess að sofa svefni hinna réttlátu. Aðferðir Pútíns eru að vísu ódýrari og það hefði mátt spara ís-lenskri alþýðu fleiri milljarða og bjarga efna- hagslífinu frá miklum skráveifum ef Davíð hefði getað leyft sér að bera geislavirkt te fyrir Glitnis- menn frekar en að þjóðnýta bank- ann með þeim hörmungum sem enn sér ekki fyrir endann á. Miðvikudagur 8. Október 200814 Umræða Bestu vinir aðal svarthöfði Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Traustið getur ekki beðið, því það er okkar eina von. Traust og blekking Leiðari Þótt Íslendingar verði nú að snúa bökum sam-an er ekki hægt að horfa fram hjá ábyrgð yfirvalda á aðgerðum síðustu daga. Hinn sögulegi dómur má bíða um sinn, en við þurfum að skoða stjórn landsins eins og hún hefur verið í þessari viku. Niðurstaðan er sú að Seðlabankinn og leiðtogi Sjálfstæðisflokksins hafa beinlínis graf- ið undan trausti á stjórn landsins, allt fram á þessa stund. Við skulum gleyma því í bili hvernig Geir H. Haar- de nánast hunsaði vandann fram yfir ögurstund. Það vekur hins vegar gríðarlega tortryggni að Geir skyldi hafa lát- ið sem allt væri í lagi, að ekki þyrfti björgunarpakka og spennan væri horfin, á sunnudagskvöldi, aðeins örfáum klukkustundum fyrir neyðarástand. Það kennir þjóðinni að treysta ekki yfirvöldum á þessum tímum. Þjóðin lærir líka að treysta ekki yfirvöldum þeg- ar Geir stígur fram og segir vinaþjóðir hafa brugðist okkur, á sama tíma og Seðlabanki Svíþjóðar lýsir því að ekki hafi verið leitað eftir liðsinni hans og Norðmenn lýsa yfir vilja til að hjálpa Íslendingum. Þá er það ekki til að gefa þjóðinni traust land undir fætur að Geir skyldi leita hjálpar hjá rússneskum yfirvöldum, þeim hinum sömu og hann taldi ógna Íslandi fyrir rétt rúmum þremur vikum. Þjóðin og allur fjármálaheimurinn lærði ekki heldur að treysta ís- lenskum yfirvöldum þegar Seðlabankinn tilkynnti að samningur væri í höfn við Rússa um risalán til bjargar efnahagnum, þegar í ljós kom að svo var ekki. Bæði höfuð ríkisstjórnarinnar og Seðlabankinn rústa trausti á íslensk yfirvöld. Þegar allt um þrýtur getur traust á yfirvöldum verið það eina sem kem- ur í veg fyrir upplausn í samfélaginu. Það þykir góð regla að skipta ekki um hest í miðri á, en ef hann er draghaltur getur það reynst lífsbjörg. Traustið get- ur ekki beðið, því það er okkar eina von. Framundan er endurmat allra gilda. Við þurfum að fara yfir það, hvað var blekking og hvað var raunveruleiki í góðærinu. Við þurf- um að skoða hvernig stjórnvöld og Seðlabankinn komu því þannig fyrir að Ísland féll í lausafjárkreppunni. Við þurfum að vita hvort það hafi verið rétt hjá eigendum Glitnis að hann hefði getað stað- ið í lappirnar þegar ríkisstjórnin kippti þeim undan honum. Eftir- leikinn af þjóðnýtingunni þekkjum við, hún leiddi til algers van- trausts á íslenska efnahagskerfinu. Loks þurfum við að skoða hvort vandræði Íslands séu einungis vegna hagstjórnarlegra mistaka, eða hvort um lýðræðisvanda sé að ræða, með hliðsjón af pólitískri ráðningu í Seðlabankann, sem aðeins er hægt að leysa með til- færslu valds til Brussel. spurningin „Hvort er hættulegra, Rússar að leika stríðsleiki eða Íslendingar í útrásarvíkingaleik?“ Stefán Pálsson er félagi í Samtökum hernaðarandstæð- inga. Hann hefur ekki sérstakar áhyggjur af að fyrirhugað stórt gjaldeyrislán frá rússum verði til þess að rússar taki stað bandaríkjamanna á Miðnesheiði. Mega rússarnir þá leika sér á Miðnesheiði? sandkorn n Svo virðist sem einhver innan ríkisstjórnarinnar hafi haft vit á því að ýta Davíð Oddssyni seðla- bankastjóra til hliðar. Altént hefur hann lítið sést í fréttum síðustu dag- ana eftir að hafa baðað sig í sviðs- ljósinu þegar hann hratt af stað skrið- unni með þjóðnýtingu Glitnis. Davíð mætti á fund efnhagsnefndar Alþingis vegna neyðarfrumvarpsins þar sem í hans hlut kom að útskýra að bankarnir sem hann einkavæddi yrðu að ríkisbönkum. n Geir Haarde forsætisráðherra myndar enn skjól fyrir Davíð Oddsson seðlabankastjóra þótt vitað sé að innan Sjálfstæðis- flokksins séu sífellt fleiri sem gera sér grein fyrir skaðanum sem hlot- ist hefur af seðlabanka- stjóranum. Klofningur innan flokks hefur komið í ljós þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir varaformaður hefur í tvígang snuprað Davíð opinberlega. Þá hefur hún gefið undir fótinn með aðild að ESB. Líklegt er að hún sé með þessu að styrkja stöðu sína innan flokksins til að taka við af Geir en það kann að vera eina vonin til að stjórnarsamstarfið við Samfylkingu haldi til einhverrar framtíðar. n Fall Landsbankans í hendur ríkisins mun kalla fram ýmsar breytingar á fjölmiðlum. Við- búið er að hugmyndir um að sameina rekstur Fréttablaðs- ins og Árvakurs séu nú út af borðinu. Árvakur er stórskuld- ugur og stendur á berangri eftir að Björgólfur Guðmundsson, einn aðaleigenda Árvakurs, missti Landsbankann. Nú er víst að Einar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Árvakurs, verður krafinn um rekstrarlega ábyrgð. Reikna má með að lífróður sé fram undan og niðurskurður. n Hin nýja bók um Hafskip þar sem rök eru færð fyrir því að framið hafi verið lögbrot við að knésetja félagið var opinberuð í fyrradag. Það var einn mesti spunasnill- ingur Íslands, Gunnar Steinn Pálsson, sem sá um að koma bókinni á framfæri. Nokkrir fjölmiðlar fengu smjörþefinn af henni fyrirfram gegn því að birta ekkert fyrr en á mánu- deginum klukkan 16. Vart eru dæmi um óheppilegri tíma því þetta var dagurinn þegar Ísland rambaði á barmi gjald- þrots og Hafskip hvarf í hafið. Heill Kompásþáttur var lagður undir málið en fékk enga at- hygli. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnúMer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSíMi: 512 7080, auglýSingar: 515 70 50. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Í slíkum aðstæðum sem hér komu upp var nauðsynlegt fyrir okkur að leita nýrra vina.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra um ástæðu þess að Ísland leitar lána hjá Rússum eftir að „vinaþjóðir“ höfðu neitað okkur um lán. - dv.is „Rússar hafa aldrei rétt þjóð innan Atlantshafs- bandalagsins fjárhagsaðstoð af þessu tagi svo ég viti til.“ Guðmundur Ólafsson hagfræðingur um að lán frá Rússum marki tímamót. - dv.is „Það er aldrei að vita.“ Gréta Morthens dóttir Bubba um hvort hún verði meira í sviðsljósinu á næstunni eftir að hafa tekið lagið með pabba í þættinum Gott kvöld. - DV „Við leituðum til íþrótta- fólks, fjölmiðlafólks og skemmtikrafta en engra stjórnmálamanna.“ Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmda- stjóri Skjá eins um „almannaheillaskilaboðin“ sem Skjár einn sýnir um þessar mundir til að vekja bjartsýni hjá landi og þjóð. - Fréttablaðið „Það er svo hrópleg geðveiki í gangi að það jaðrar við brandara.“ Bubbi Morthens segist hafa lifað við ónýtan gjaldmiðil nánast allt sitt líf. - 24 stundir bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.