Lögmannablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 22

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 22
22 lögMannaBlaðið tBl 01/13 á DÖGUnUm SvArAðI innan ríkis­ ráðherra fyrirspurn á Alþingi um símahlustun. Svörin vekja fjölmargar spurningar um framkvæmdina. ríkis­ saksóknari á lögum samkvæmt að hafa ákveðið eftirlit með símahlustun. Því miður bendir margt til þess að eftirlitið sé ófullnægjandi. Hafa verður í huga að símahlustun er þvingunarráðstöfun sem skerðir friðhelgi einkalífs manna. meðal annars var spurt: (6) „Hve oft hafa samskipti grunaðs manns og lögmanns verið hleruð? Hvernig hefur verið farið með þau rannsóknargögn?“ (7) „Hve oft hafa samskipti lögmanns sakbornings við aðra en sakborning verið hleruð?“ ráðherra svarar með því að vísa til athugasemda ríkissaksóknara, en um þær segir: „Í svari ríkissaksóknara kemur fram að hann telji einsýnt að sumum liðum fyrirspurnarinnar sé ekki unnt að svara. Eigi þetta einkum við um 6. og 7. tölul., en gögn varðandi hlustanir séu ekki greind niður á þann veg að unnt sé að svara því sem þar er spurt um. Tekur ríkissaksóknari fram að heimilt sé að framkvæma hlustun hjá lögmönnum eins og hverjum öðrum, að uppfylltum lagaskilyrðum um úrskurð dómara o.s.frv. Hins vegar verði ekki séð hvaða tilgangi það þjóni að upplýsa sérstaklega um hlustanir sem beinast að þeirri starfsstétt, auk þess sem hér verði að hafa í huga þagnarskylduákvæði 3. mgr. 18. gr. laga um meðferð sakamála og 1. mgr. 22. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996. Þá bendir ríkissaksóknari á að sérstaklega sé um það fjallað í 1. mgr. 85. gr. laga nr. 88/2008 að eyða skuli þegar í stað gögnum sem hafa að geyma samtöl eða önnur samskipti sakbornings við verjanda sinn.“ Tilvitnuð ummæli ríkissaksóknara eru sérkennileg og villandi. Augljóst er að hlusta má síma lögmanna ef þeir eru sjálfir grunaðir um refsivert afbrot og lagaskilyrðum er fullnægt. Fyrirspurnin laut hins vegar ekki að því, heldur hinu hvort hlustað hafi verið á símtöl sakborninga við lögmenn sína, eða símtöl lögmanna sakborninga við aðra, án þeirra vitundar. Síðar hefur komið fram að ríkis­ saksóknari lítur svo á að ekki sé hægt að koma í veg fyrir að lögreglumaður hlusti á upptökur af trúnaðarsamtölum sakbornings og verjanda, þar sem hann þurfi að fara í gegnum upptökurnar og draga út það sem málið varði. á þá afstöðu er ekki hægt að fallast. Trúnaðarsamband verjanda og sakbornings er einn af hornsteinum réttlátrar málsmeðferðar. vernd þess í lögum og virðing fyrir því er grundvallarþáttur í að sakborningur geti undirbúið vörn sína í sakamáli á fullnægjandi hátt og á jafnræðisgrundvelli gagnvart ákæruvaldinu. Það er andstætt réttlátri málsmeðferð að rannsóknaraðilar geti hlustað á símtöl verjanda og sakbornings. ekki stoðar fyrir ríkissaksóknara að vísa til fyrirmæla 1. mgr. 85. gr. laga um meðferð sakamála þess efnis, að ef upptökur hafi að geyma samtöl við verjanda skuli þeim eytt þegar í stað, ásamt því að vísa til þess að þagnarskylda hvíli lögum samkvæmt á rannsóknaraðilum. málið er ekki svona einfalt. eftir stendur nefnilega að með því að hlusta á upptöku af símtali áður en því er eytt hafa rannsóknaraðilar getað aflað sér upplýsinga um málsatvik og fyrirhugaða vörn sakbornings á grundvelli trúnaðarsamtala hans við verjanda sinn, sem kunna að nýtast við rannsóknina og málatilbúnað ákæruvaldsins enda þótt þær verði ekki notaðar sem sönnunargögn í sakamáli. óhjákvæmilegt er að treysta trúnarsamband verjanda og sakbornings með lagabreytingum. Þá eru ýmsar leiðir til úrbóta við framkvæmd símahlustunar. Til dæmis að hlutlaus aðili eyði upp­ tökum með símtölum verjanda og sakbornings áður en lögregla fer yfir upptökur. Þá hlýtur að vera hægt tæknilega að stöðva upptöku þegar hringt er úr hinum hlustaða síma í tiltekin símanúmer. Loks kemur til greina að við uppkvaðningu úrskurðar um símahlustun skipi dómari sakborningi sérstakan lögmann sem hefði það Pistill forMAnns símahlustun og trúnaðarskylda lögmanna JÓnAs ÞÓr GUðMUnDsson Hrl.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.