Lögmannablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 23

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 23
lögMannaBlaðið tBl 01/13 23 Pistill forMAnns hlutverk við framkvæmd hlustunar að gæta hagsmuna sakbornings og þeirra sem hann talar við, án vitundar þeirra og vilja. Síðastnefnda atriðið kom til álita við setningu laga um meðferð sakamálamála nr. 88/2008, að danskri og norskri fyrirmynd. Frá því var því miður horfið með þeim rökum að það bætti litlu sem engu við aðkomu sjálfstæðs og óvilhalls dómara að málinu. Loks er nauðsynlegt að breyta lögum til þess að treysta trúnaðarsamband lögmanna, sem ekki hafa verið skipaðir verjendur, við umbjóðendur sína. byggist það á því að ríkissaksóknari virðist líta svo á að heimilt sé að hlusta á trúnaðarsímtöl þessara aðila og nota megi gögn um þau sem sönnunargögn í sakamálum, jafnvel þótt lögmaðurinn liggi ekki undir grun um að hafa framið afbrot. á það viðhorf er ekki hægt að fallast, enda sú niðurstaða ótæk í réttarríki. Til þess liggja að meginstefnu sömu rök og um verjendur. Trúnaðarskylda lögmanna er ein af grunnstoðum réttarkerfisins, ekki eingöngu í sakamálum. Hún liggur einnig til grundvallar við rekstur einkamála og er nauðsynleg forsenda þess að málsaðilar geti teflt fram ítrustu sókn og vörn. óttist umbjóðendur lögmanna að trúnaðarskyldan haldi ekki í reynd, næst það markmið ekki. Auk þess væri ella augljós hætta á að því væri frestað að fá grunuðum manni réttarstöðu sakbornings, og símtöl hans við lögmann sinn hlustuð á meðan. Augljóst er að fyrirmæli 1. mgr. 85. gr. laga um meðferð sakamála, um að upptöku með samtali sakbornings og verjanda skuli eytt þegar í stað, eru eingöngu sett til öryggis (ex tuto). óheimilt er draga einhverjar ályktanir af ákvæðinu um heimildir til símahlustunar eða framkvæmd hennar, hvort heldur þegar í hlut eiga sakborningur og verjandi eða sakborningur og lögmaður sem ekki er verjandi, eins og ríkissaksóknari virðist gera. Þá vekur athygli að ríkissaksóknari sleppir að geta þess að í umræddu lagaákvæði er einnig nefnt að eyða skuli þegar í stað upptökum með upplýsingum sem 2. mgr. 119. gr. laganna tekur til, en samkvæmt b­lið þess ákvæðis er lögmanni óheimilt að svara sem vitni spurningum um einkahagi manns sem honum hefur verið trúað fyrir í starfi. Stórt verk lítið mál Litlaprent ehf. | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | Fax 540 1801 | litla@prent.is prent.is

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.