Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 6
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 1920 er árið sem telja má að gúmmístígvél hafi orðið almannaeign á Íslandi. Vatnsstígvél eða vaðstígvél sáust fyrst í íslenskum verslunum um aldamótin 1900. IÐNAÐUR Rannsókn Eftirlitsstofn- unar EFTA (ESA) á því hvort orku- samningar vegna fyrirhugaðs kísil- vers PCC á Bakka við Húsavík feli í sér óheimila ríkisaðstoð getur tekið allt að tólf mánuði. Sveitarstjóri Norðurþings segir heimamenn anda rólega þrátt fyrir að þeir hafi beðið í um áratug eftir iðnaðaruppbygg- ingu á svæðinu. „Á meðan þessi óvissa ríkir anda menn rólega en auðvitað hefur þetta gríðarlega mikið um það að segja hvernig við náum að spila úr okkar málum og þróa okkar sam- félag áfram. Við treystum því á að menn leysi þetta,“ segir Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings. ESA tilkynnti á miðvikudag að stofnunin hefði efasemdir um að væntar tekjur af orkusölu Lands- virkjunar til þýska fyrirtækisins væru nægar miðað við áætlaðan kostnað við byggingu og rekst- ur Þeistareykjavirkjunar. Einnig telur ESA óljóst hvort nærri fimm milljarða króna fjárfesting, sem nauðsynleg er til að tengja verk- smiðju PCC og virkjunina við flutningskerfi Landsnets, kunni að fela í sér ívilnun til þýska fyrir- tækisins sem yrði þá fjármögnuð með auknum kostnaði notenda sem fyrir eru. „Ég veit ekkert hvort né með hvaða hætti þetta mun hafa áhrif á framgang verkefnisins. Þetta er fyrst og síðast mál á milli Lands- virkjunar og PCC sem þau þurfa að leysa. Við erum að vinna eftir okkar tímalínum og þetta hefur sannarlega engin áhrif á fyrri úrskurði ESA sem snúa að þeim samningum sem Norðurþing og ríkið gerðu við PCC,“ segir Krist- ján. Forsvarsmenn PCC komu hingað til lands í síðustu viku og tilkynntu þá að lokaákvörðun um byggingu kísilversins yrði ekki tekin á þessu ári eins og til stóð. Sögðust þeir vona að ákvörðun gæti legið fyrir fljótlega eftir áramót þegar fjár- mögnun verkefnisins yrði komin á hreint. Kristján segir aðspurður að sveit- arfélagið ætli ekki að hefja jarð- vegsframkvæmdir á Bakka fyrr en ákvörðun PCC liggur fyrir. „Ég reikna ekki með því. Ég held að ef að menn rýna í það sem hefur gerst í Helguvík þá ætti það að vera víti til varnaðar,“ segir Krist- ján og vísar til ákvörðunar bæj- aryfirvalda í Reykjanesbæ um að hefja undirbúning komu kísilvera í Helguvík áður en öll verkefnin eru í hendi. Kristján bendir einnig á að Norð- urþing hefur átt í samskiptum við önnur fyrirtæki sem hafa sýnt Bakka áhuga. Eitt þeirra er félagið Klappir Development sem hefur kynnt áform um byggingu 120 þús- und tonna álvers á svæðinu fyrir bæjaryfirvöldum. „PCC hefur sýnt það í verki að fyrirtækið vill vera fyrst inn á svæðið og á meðan hafa viðræður við aðra ekki staðið yfir. Ég held því að allir séu sammála um að þessi rannsókn megi ekki taka allt að ár ef það er mögulega hægt að komast hjá því.“ haraldur@frettabladid.is Kísilverið getur tafist um ár en Húsvíkingar anda rólega Sveitarstjóri Norðurþings segir heimamenn rólega þrátt fyrir að rannsókn ESA á orkusamningum við PCC geti tekið allt að tólf mánuði. Jarðvegsframkvæmdir á Bakka hefjast ekki fyrr en lokaákvörðun þýska fyrirtækisins liggur fyrir. Framkvæmdir í Helguvík víti til varnaðar. Önnur verkefni í biðstöðu á meðan rannsókn stendur yfir. BAKKI VIÐ HÚSAVÍK ESA samþykkti í mars síðastliðnum ríkisaðstoð sem Norður- þing og ríkið veittu PCC í formi skattaívilnana og framkvæmdastyrks. KRISTJÁN ÞÓR MAGNÚSSON Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, seg- ist ekki eiga von á athugasemdum frá ESA vegna raforku- samnings fyrirtækisins við Landsvirkjun vegna kísilversins sem United ætlar að reisa í Helguvík. „Við höfum hlerað hvort þetta sé eitthvert vandamál en svo er ekki því við erum að kaupa raforku sem er til og það er ekki verið að byggja nýja virkjun fyrir okkur. Því er ekki verið að bera virkjunarkostnað saman við það sem við erum að kaupa. Svo er ég viss um að við borgum hærra raforkuverð en álverin, samkvæmt meðalverði sem birt er í ársskýrslu Landsvirkjunar, og því get ég ekki séð að okkar samningur geti innihaldið einhvers konar ríkisstyrk,“ segir Magnús. Byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar samþykkti byggingarleyfi United Silicon í síðustu viku. Búið er að hanna verksmiðjuna og jarðvegsfram- kvæmdum á lóð fyrirtækisins er lokið. „Nú er að hefjast steypuvinna og verkið er því á áætlun,“ segir Magnús. Býst ekki við athugasemdum frá ESA MAGNÚS GARÐARSSON STJÓRNSÝSLA Niðurstaða umboðs- manns Alþingis vegna frum- kvæðisathugunar á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Stefáns Eiríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, verður ekki birt fyrr en í fyrsta lagi um miðjan janúar. Í tilkynningu sem birt var á vef umboðs- manns í gær segir að fyrrverandi innanríkis- ráðherra hafi óskað eftir fresti til að koma að frekari sjónarmiðum í tilefni af frumkvæðisathugun- inni. Umboðsmaður hafi fallist á þessa beiðni og veitt henni frest til 8. janúar næstkomandi. - jhh Umboðsmaður veitir frest: Niðurstaða birt eftir áramót UPPLÝSINGATÆKNI Skráðum versl- unum í vefgáttinni Kjarni.is hefur fjölgað um nærri helming frá stofn- un síðunnar snemma árs 2013. Þá voru skráðar 250 íslenskar netversl- anir, en þær eru nú tæplega 500. Þór Sigurðsson hjá Kjarni.is segir netverslun í sókn, verslunum hafi fjölgað mjög síðustu mánuði. „Velta netverslana eykst að sama skapi milli ára og vöruúrval eykst jafnt og þétt,“ segir hann og bendir á að samkvæmt könnun sem Hagstofan gerði á síðasta ári hafi 56 prósent Íslendinga notað netverslun síðustu 12 mánuði og velta numið um 1,4 milljörðum króna. Þór segir vöxt í netverslun hér á landi sambærilegan við nágranna- löndin, eða allt að 15 prósent milli ára. „Netverslun vex fimm til sex sinnum hraðar í heiminum en smá- söluverslun og íslenskir kaupmenn munu klárlega ekki sitja eftir, því mikil tækifæri eru í netverslun. Verslun á netinu nær með auðveld- ari hætti til stærri markaðssvæða en verið hefur,“ segir hann. - óká Forsvarsmaður Kjarna.is segir mikil tækifæri felast í verslun á netinu: Netverslunum fjölgar milli ára ÞÓR SIGURÐSSON Þór bendir á að vestanhafs hafi nýverið verið meira keypt á svokölluðum Cyber Monday-tilboðsdegi á netinu en á Black Friday-útsölunum. MENNING Akureyrarbær og Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands hafa gert með sér samning um fram- lög Akureyrarbæjar til rekstrar Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands á árunum 2015-2016. Markmið samningsins er að styðja við uppbyggingu hljóm- sveitarinnar sem meginstoðar sígildrar hljómsveitartónlistar utan höfuðborgarsvæðisins og stuðla að því að Akureyri verði þungamiðja öflugs menningar- starfs á landsbyggðinni. Akureyrarbær mun leggja til samtals 95 milljónir og greiða niður húsaleigu fyrir hljómsveit- ina. Fjárhæðir samningsins eru með fyrirvara um framlög mennta- og menningarmálaráðuneytis. - sa Akureyrarbær styrkir SN: 95 milljónir til Sinfóníunnar HANNA BIRNA KRISTJÁNS- DÓTTIR SJÁVARÚTVEGUR Þýsk dóttur- félög Samherja, Icefresh GmbH í Frankfurt og Cuxhavener Reed- erei GmbH í Cuxhaven, hafa keypt 20 prósenta hlut í einu stærsta sjávarútvegsfélagi Nor- egs, Nergaard AS, samkvæmt til- kynningu frá fyrirtækinu. Nergaard stundar veiðar, vinnslu og sölu sjávarafurða frá Noregi. Félagið rekur fimm togara og er með sex starfsstöðvar í Norður- Noregi. Ársvelta Ner gaard er um 35 milljarðar íslenskra króna. - ih Þýsk dótturfélög fjárfesta: Samherji eignast í norskri útgerð AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá STORMUR Á SUNNUDAG Fínasta veður víða á landinu í dag og lægir um landið austanvert er líður á. Suðvestanátt á morgun með snjókomu eða éljum sunnan og vestan til en aðra nótt gengur í norðan storm með hríðarveðri fyrir norðan. -5° 7 m/s -4° 7 m/s -7° 2 m/s -1° 9 m/s 5-10 m/s en 8-15 SV-til. 15-23 m/s. Gildistími korta er um hádegi 3° 18° -1° 11° 14° 3° 7° 7° 7° 23° 10° 17° 17° 12° 8° 7° 5° 8° -6° 7 m/s -4 15 m/s -7° 8 m/s -4° 9 m/s -8° 2 m/s -8° 3 m/s -12° 7 m/s 2° -2° -1° -4° -2° -4° -4° -7° -5° -6° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur SUNNUDAGUR Á MORGUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.