Són - 01.01.2008, Page 139

Són - 01.01.2008, Page 139
LJÓÐ SEM BÍTA, ÖSKRA, STRJÚKA OG HVÍSLA 139 Höfundur birtir verulega falleg myndljóð í miðkafla bókar sinnar þar sem ort er um ljóðið og landslagið. Síðasti hluti bókarinnar er prósi, misljóðrænar hugleiðingar. Stefanía yrkir heim og fléttar saman minn- ingum sínum úr ólíkum heimsálfum. Lesendur rekast á framandi eðlur og íslenskar kindur. Íslensku jólasveinarnir skjóta upp kollinum en einnig jól veðurblíðunnar án ljósa. Um ferðalög Ferðalög koma víðar við sögu en hjá Stefaníu Gísladóttur. Sigurlín Bjarney Gísladóttir yrkir um ferðalög í Fjallvegir í Reykjavík sem kom út hjá Nykur og er að mati Silju Aðalsteinsdóttur skemmtilegasta ljóðabók sumarsins 2007.43 Fjöllin eru Sigurlín eins og öðrum skáld- um, hugleikin og fylgjast lesendur með ljóðmælanda ferðast um götur Reykjavíkur þar sem hann sér glitta í fjöll inn á milli borgarlands- lagsins. Sem betur fer er GPS-tæki með í för þannig ljóðmælandi veit alltaf hvar hann er staddur. Bókin samanstendur af löngum prósa- ljóðum, sem jafnvel mætti kalla örsögur, þar sem unnið er með tog- streituna milli fjalls og vegar, sveitar og borgar. Fjöllin eru stundum vinaleg, frek, flókin eða einföld en augljóst er að við getum aldrei komist undan þeim. Þetta er ljóst í ljóðsögunni „Fjöllin tukta þig til“ þar sem meðal annars segir:44 Fjöllin. Þessar freku þústir tukta þig til svo þú átt ekki stund- legan frið. Þú ert hvergi óhultur og engu breytir þótt þú forðist fjallvegi í Reykjavík, veljir troðninga milli húsaþyrpinga eða djúpar og dimmar kjallaraholur. Fjöllin leita þig alltaf uppi, fjöllin rata líka í kjallara og þau linna ekki látum fyrr en þú gengur inn á stöðina með játningu upp á vasann. Halla Gunnarsdóttir leggur líka í ferðalag í sinni fyrstu ljóðabók, Leitin að Fjalla-Eyvindi. Þetta er stutt bók, aðeins 27 ljóð, og í flestum þeirra er brugðið upp skyndimyndum á einföldu máli og hafa ljóðin öll staðaheiti að yfirskrift. Ljóðmælandi ferðast víða, m.a. til Tim- búktú, Sahara og Víetnam, hefur húmoríska sýn á viðfangsefni sitt og miðlar máli sínu af ágætum en hefði mátt leggja meiri rækt við myndmálið. Ljóðmælandi er hálfgerður Fjalla-Eyvindur, útlagi sem 43 Silja Aðalsteinsdóttir (2007). 44 Sigurlín Bjarney Gísladóttir (2007:30).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.