Gripla - 01.01.1995, Page 28
26
GRIPLA
hnygur : og vpa oll adur sogd efne hef eg lofad ad vera J suare vid
uortt göda yfervalld : þo Jön giptast vilie : so hann þar vti öhyndradur
vera mætte : huoria eg nu þennan 20 Junij vtgefande er : 1636 : hier
hefur vndirskriffad :
Ellendur Ásmundsson : med E h
4. [20. júní 1636]
Kláus Eyjólfsson lýsir því að Jón Oddsson sé í réttri náð til að giftast.
Ekke helldur veit eg betur enn Jön Oddsson sie rett nadandis til ad
gyptast efter allre Reinslu sem ad hans malefne hnygur hier hefur
vnderskriffad :
Claus Eiölffsson :
med E hende s
Fólkið sem nefnt er í vitnisburðunum hér að framan kemur allt fram
í safnritinu Tyrkjaránið á íslandi 1627. Erlendur Ásmundsson var hér
fyrr nefndur til sögu. Ámundi Þormóðsson (d. 1675) var lögréttumaður
í Rangárþingi, bjó í Skógum undir Eyjafjöllum.47 Ólafur Egilsson
(1564-1639) er presturinn á Ofanleiti og Reisubókarhöfundur.
Þorsteinn Ormsson og Hallur Þorsteinsson voru meðal hinna her-
teknu sem komust aftur til föðurlandsins og báðir gáfu þeir til endur-
byggingar Landakirkju.48 Þorsteinn bar vitni um lát og greftran Vigfús-
ar Hannessonar, eins hinna herteknu.49 Kona Vigfúsar var Sigríður Sig-
urðardóttir. Vitni um meinlauslega og ávítunarlauslega hegðan hennar,
giftrar sem ógiftrar, báru prestarnir síra Ólafur Egilsson og Gísli Þor-
varðsson 9. apríl 1635, líklega sökum þess að Sigríði hefir boðist annar
maður.50
Kláus Eyjólfsson (1584-1674) er lögréttumaðurinn sem skrifaði frá-
sögn af Tyrkjaráninu og fyrr var getið. Hann var bróðursonur síra Ól-
afs Egilssonar og hefir líklega haldið Vestmannaeyjasýslu um og eftir
Tyrkjaránið og jafnvel lengur.51 Kláus hefir tekið vitni í málum Björns
47 Einar Bjarnason, Lögréttumannatal. Rvk. 1952-1955, 3-4.
48 Tyrkjaránið á íslandi 1627, 401, 403, 405, 407.
49 Sama rit, 418-419.
50 Vitnisburðirnir eru í AM 247 4to, bl. 76v-77r.
51 Sýslumannaœfir IV, 527-528; Sigfús M. Johnsen. Kláus Eyjólfsson, Rvk. 1927; Ein-
ar Bjarnason. Lögréttumannatal, 353-354.