Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Blaðsíða 76
76
Back man leikstýrði og Pálmi Gestsson leikari var einn þeirra
sem brá sér í hlutverk Björgólfs. Meðal annarra sem tóku að
sér hlutverk voru Björgólfur Thor, Bentína og tengdadótt-
irin Kristín Ólafsdóttir. Að sýningu lokinni þyrptust prúðbúnir
veislugestir, um áttatíu manns, upp á svið þar sem skálað var
fyrir Björgólfi og Þóru og veislunni framhaldið.57
Fréttina hef ég fengið staðfesta í öllum atriðum hjá heimildarmanni sem
var viðstaddur sýninguna. Hún opinberar það sérstaka hlutverk sem virt-
ustu menningarstofnanir þjóðarinnar höfðu fengið á þessum tíma ásamt
þjónkun sumra af þekktustu listamönnum landsins við vald fjármagnsins.
Atburðurinn er skýr en jafnframt ofurraunsæ birtingarmynd á einkavæð-
ingu menningarinnar eða tilfærslu valds yfir menningarstofnun frá hinu
opinbera til einkaaðila. Vald menningarlegs auðmagns forstöðumanna
stórfyrirtækja endurspeglast í viðburðinum sem er um leið táknræn tilraun
um menningarvæðingu viðskiptalífsins.
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
Stórbrotnar og glæsilegar menningarstofnanir hafa á undanförnum árum
orðið táknmyndir borga víða um heim og laða til þeirra fjölda ferðamanna.
Menningartengd ferðaþjónusta gegnir sífellt stærra hlutverki í atvinnu- og
tekjusköpun stórborga og í samkeppni þeirra í milli um ferðamenn, skap-
andi vinnuafl og framsækin fyrirtæki.58 Valdhafar á norðurlöndum hafa
leitast við að tengja menningarstefnu við aðra þætti samfélagsins og að
kosta menningu og listir óbeint með því að hvetja til samvinnu á milli
aðila menningar- og viðskiptalífsins í skipulagsmálum.59 Þessi þróun varð
sérstaklega áberandi frá tíunda áratug síðustu aldar en þá voru fyrstu at-
huganir unnar varðandi byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar í
Reykjavík.60 Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg stofnuðu fyrirtækið Austur-
57 „Veglegt brúðkaupsafmæli“, Orðið á götunni, 8. febrúar 2009. Vefslóð: http://eyjan.
is/ordid/2009/02/page/2/. Sótt 10. apríl 2009.
58 Carl Grodach og Anastasia Loukaitou-Sideris, „Cultural Development Strategies
and Urban Revitalization“ [rafræn útgáfa], International Journal of Cultural Policy,
4/2007, bls. 349–370, hér bls. 349–352.
59 Peter Duelund, „Cultural Policy: An overview”, The Nordic Cultural Model, ritstj.
Peter Duelund, Copenhagen: nordic Cultural institute, 2003, bls. 13–30, hér bls.
24.
60 Austurhöfn-TR sagan, (e.d). Vefslóð: http://www.austurhofn.is/displayer.asp?cat_
id=3. Sótt 23. júní 2009.
LOFTUR ATLi EiRÍKSSOn