Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 32

Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 32
Islensk málnefhd Vorið 1984 voru sett á Alþingi lög um íslenska málnefnd (nr. 80 1984). Þá hafði nefndin starfað tæp 20 ár sam- kvæmt reglum sem menntamálaráðherra setti henni. Málnefndarlögin tóku gildi 1. janúar 1985, og var skipað í nefndina frá þeim tíma í fyrsta sinn samkvæmt hinum nýju lögum. í nefndinni eiga sæti: Baldur Jónsson prófessor, formaður, Jón Hilmar Jónsson deildarstjóri, Jónas Kristjánsson prófessor, Kristján Árnason dósent, Þórhallur Vilmundarson prófessor, varaformaður. íslensk málstöð. Málnefndarlögin fólu í sér stofnun Islenskrar málstöðvar, sem tók formlega til starfa, þegar lögin öðluðust gildi í ársbyrjun 1985. íslensk málstöð er skrifstofa málnefndarinnar og miðstöð þeirrar starfsemi sem hún hefir með höndum. Málstöðin er einnig sam- starfsvettvangur málnefndarinnar og Háskóla íslands. Hún á heima í húsa- kynnum Háskólans, Aragötu 9, Reykja- vík, og er rekin sameiginlega af mál- nefndinni og Háskólanum. Forstöðu- maður er Baldur Jónsson. Aðrir fastir starfsmenn í fullu starfi eru Sigurður Jónsson frá Arnarvatni og Sigurður Konráðsson. Reglugerð. Nýlega var sett reglugerð um íslenska málnefnd og starfsemi íslenskrar málstöðvar. Hún er birt á öðrum stað hér í blaðinu. Rit Islenskrar málnefndar. Þrjár bækur eru nú komnar út í ritröð málnefndar- innar. Fyrst var frumútgáfa Tölvuorða- safns 1983. í fyrra komu svo út tvö allstór orðasöfn í ritröðinni, Orða- skrú úr uppeldis- og súlarfrœði og 2. útgáfa Tölvuorðasafns, aukin og endur- bætt. Nýju orðasöfnin eru bæði íslensk- ensk og ensk-íslensk og með hugtaka- skýringum á íslensku. í Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfræði eru um 4100 íslensk flettiorð og tæplega 2600 hugtök í Tölvuorðasafni. Þeir sem vilja fylgjast með vaxtarbroddi orðaforðans þurfa að eiga þessar bækur. Þær fást í bókaversl- unum. Málfregnir koma út tvisvar á ári Útgefandi: íslensk málnefnd Ritstjóri: Baldur Jónsson Ritstjórn og afgreiðsla: (slensk málstöð, Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530, (91) 622699, (91) 25088 Áskriftarverð: 250 krónur á ári Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf. ÍSLENSK MÁLNEFND

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.