Skírnir - 01.01.1970, Blaðsíða 204
198
DAVÍÐ ERLINGSSON
SKÍRNIR
nokkurn veginn ugglausum niðurstöðum eru svo takmarkaðir sem á
sviði íslenzkra fornbókmennta. Hitt er óendanlega mikils virði, að
stíleinkenni og orðaforði séu rannsökuð sem nákvæmlegast. Lýsa
þarf máli og stíl einstakra bókmenntategunda, tímabila og ritskóla.
Þekkingunni á þessum efnum er vissulega ábóta vant. í þessu efni
hefur Hallberg lagt fram skerf, sem ekki verður ofmetinn. Það efni,
sem hann hefur safnað og unnið úr er orðið mjög mikið. Ritgerðir
hans, að ógleymdum þeim miklu samanburðartöflum og tilvitnana-
skrám, sem í bókinni eru, verða efalaust mikilsverð náma og undir-
staða þeim, sem fást við staðtölulegar málrannsóknir í framtíðinni.
Það liggur í eðli málanna, að ein sér nær staðtöluleg rannsóknar-
aðferð ekki til botns í þeim vanda sem við er að glíma í fornrita-
rannsóknum, en Peter Hallberg hefur sannað, að hún er nothæf til
þekkingarauka á ýmsan hátt. Stílrannsóknir eru fræðigrein, sem á
sér sjálfstæðan tilverurétt, þótt fram til þessa hafi þær oftast orðið
að víkja fyrir öðrum áhugamálum fræðimanna. Á íslandi hefur stíl-
fræði fornrita okkar verið minni gaumur gefinn en sums staðar ann-
ars staðar. Þetta hlýtur að breytast, og um leið kemur sá tími, er
starf Hallbergs að því að benda á og sanna gildi nýrra leiða verður
meira metið en enn hefur orðið.
Ánægjuefni er að sjá, hvernig aðferðin hefur breytzt og batnað í
meðförum hans síðustu árin. Einstök sjaldgæf orð hverfa ugglaust
oft úr sögunni við afritun, og venjuleg tengiorð geta leyst hvert ann-
að af hólmi nálega af sjálfu sér, en hin stílrænni atriði eins og tíðni
öfugrar orðaraðar og frásagnartíð má ætla að haldi sér betur í rit-
leifðinni. Óskandi er, að Peter Hallberg eigi enn eftir að þroska
aðferð sína og að aðrir verði einnig til að sinna verkum á því mikla
rannsóknarsviði, sem hann hefur opnað. í sambandi við slík störf
býr tölvan yfir miklum möguleikum. Það er reyndar verkefni fyrir
heilar stofnanir fremur en einstaklinga að vinna áfram á þeim
grunni, sem Hallberg hefur verið og er enn að leggja.
I nóvember 1969.
1 Yfirlit yfir þessi efni má t. d. fá af safnritinu Statistics and Style, útgef-
endur Ludomír Dolezel og Richard W. Bailey (í ritröðinni Mathematical
Linguistics and Automatic Language Processing. A Group of Monographs
and Textbooks). New York 1969.