Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 145
SKlRNIR
LEIKIÐ í HLÖÐUM OG Á PAKKHÚSLOFTUM
415
44. Grindavík. Góðtemplarar hófu leikstarfsemi í Grindavík upp úr
aldamótum og er vitað um sýningu á Skugga-Sveini 1903. Ari síðar
er risið góðtemplarahús og þar sýnt m.a. Ævintýri á gönguför og
leikritið Peningarnir sigra, eftir heimamann, Erlend Oddsson. Sjá
Jón Þ. Þór og Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: Saga Grindavíkur frá
1800-1974 (1996), 320-22; Bjarni Sæmundsson: „Um láð og lög“
(1942), 9; Faxi 10 (1961); Faxi 5 (1986), 182; leikskrá Leikfélags
Grindavíkur fyrir „I konuleit" (1944-45).
45. Hafnir. Leikflokkur frá Höfnum sagður hafa komið í gestaleik til
Grindavíkur á öðrum áratug aldarinnar og leikið Happið eftir Pál
Árdal í Templaranum. Sjá Saga Grindavíkur, 320-22.
46. Keflavík (241, 314, 469, 509). Fyrsta eiginlega leiksýningin var á
Nýársnóttinni eftir Indriða Einarsson 1884-85. Áður virðist ýmis-
legt leiksmælki hafa verið flutt í pakkhúsum kaupmanna, en nú var
það stór ný vöruskemma sem opnaði aðra möguleika fyrir sjón-
leikjahald. Leiksýningar voru síðan ekki óslitið, en Skírnir nefnir
t.d. leiksýningu á Rosmhvalanesi í annál 1893 og mun þar sennilega
átt við Keflavík fremur en Garðinn eða Sandgerði. Sjá ennfr. Bjarni
Guðmarsson: Saga Keflavíkur 1766-1890 (1992), 256-57; Marta
Valgerður Jónsdóttir: Keflavík íbyrjun aldar III (1989), 1057.
47. Hafnarfjörður (616, 599, 1547, 2366). Óvíst er um upphaf leiksýn-
inga í Hafnarfirði, en frá stofnun Flensborgarskóla (1882) er
leikstarfsemin í bænum talsvert tengd skólastarfinu. Einn af kenn-
urunum, Þorsteinn Egilson, fyrrverandi Kveldfélagi, ritaði leiki
um samtímaefni (Utsvarið, Prestkosningin), sem ýmist voru leiknir
í skólanum eða í góðtemplarahúsinu. Þannig voru Hrólfur og
Narfi leiknir 1893 í því húsi, sem þá var nýtt, en skólanemendur
léku Utsvarið í pakkhúsi Linnets kaupmanns. Leikstarfsemin hélt
áfram næstu áratugi með mismunandi krafti og um 1920 eignuðust
Hafnfirðingar annað leikskáld, Stein Sigurðsson. Sjá Lárus Sigur-
björnsson: Islensk leikrit 1645-1946, 89; Sigurður Skúlason: Saga
Hafnarfjarðar (1933), 646-47; Ásgeir Guðmundsson: Saga Hafn-
arfjarðar 1908-1983 I (1983), 36; III (1983), 97-101.
II. Fyrstu leiksýningar í skólum
1. Lærði skólinn í Reykjavík. Fyrstu leiksýningar á jólum 1847 og á
þrettándanum 1849. Holbergsleikirnir Erasmus Montanus og Hinn
önnum kafni (á íslensku). Sjá t.d. Lárus Sigurbjörnsson: „Islensk
leiklist eftir 1874“, 94.
2. Möðruvallaskóli í Hörgárdal, stofnaður 1881. Leikstarfsemi hefst
þegar. Nokkur leikrit eftir nemendur og kennara, sömuleiðis stað-
færsla á enskum leik eftir Guðrúnu Hjaltalín rektorsfrú (Olnboga-