Vestfirska fréttablaðið - 08.12.1983, Blaðsíða 14
AUSTURLÖND
i
Vofur reika um sviðinn svörð.
Sundrung hatrið magnar.
Drýpur regn á dæmda jörð.
Dauðinn sigri fagnar.
vestfirska
Iri H V 1 FRÉTTABLAÐIÐ
[Bókin"]
j ellefu j
j líf kom-j
jin út j
..þetta er um konu £
| konu sem hefur ellefu líf, ef I
| svo má segja, tveim lífum •
| meira en kötturinn. Þetta er |
I vestfirsk kona, svo bókin I
• kemur til með að vekja at- |
J hygli hér um slóðir,— Þetta !
■ er glefsa úr viðtali við ■
| Steingrím Sigurðsson fjöl- |
I listamann, þar sem hann I
I var að segja fréttamanni Vf. ■
J frá bók sem hann var að ■
■ skrifa í sumar. Viðtaliö við .
I Steingrím var birt hér í g
| blaðinu í haust. Þá var |
| Steingrímur geysilega dul- |
| arfullur um hver sú kona |
I væri sem bókin átti að fjalla I
J um, en blaðið upplýsti að ■
! það væri Brynhildur !
■ Björnsson ,,sem lagði |
I gjörva hönd á margt hér |
I vestra á árum áður, starf- I
I aði sem bóndi, sjómaður, ■
[ kennari og setjari þessa ■
! blaðs, svo eitthvaö sé !
■ nefnt,-- eins og það var ■
| orðað þá.
I Nú er bókin komin út hjá I
I bókaútgáfu Arnar og Ör- ■
[ lygs og ber það sérstæða ■
J nafn: Ellefu líf. Ekki er að J
I efa að þar getur margt for- |
| vitnilegt að lesa fyrir Vest- |
I firðinga þar sem tveir svo I
■ sérstæöir persónuleikar ■
J sem Brynhildur og Stein- J
I grímur leika stærstu hlut- |
£ verkin.
r
| Svartsýnisspárnar hrynja
nú hver um aðra og vonandi
verður framhald á því. Menn
J höfðu spáð að togveiði-
bannið í Þveráf mundi
standa fram yfir áramót og
rækjuveiðibannið í Djúpinu
| sömuleiðis. Hvorug spáin
stóðst, búið er að opna
Þverálinn og reyndar Kögur-
grunnið Ifka og Djúpið var
opnað á þriðjudaginn. Sum-
I ir rækjuveiðimannanna voru
í tilbúnir f stakknum og stíg-
vélunum og hlupu strax um
borð. Aflinn fyrsta daginn
var misjafri, mest um þrjú
tonn og niður í sáralftið.
| Flestir fóru svo út í gær,
| þrátt fyrir vonskuveður.
Rækileg ofanígjöf
í Vestfirska fréttablaðinu frá
17. nóv. sendir Guðmundur
Rósmundsson skipstjóri í Bol-
ungarvík mér tóninn og er rödd
hans ófögur. Þar sem Guð-
mundur ber á mig hrein ósann-
indi, fyrir utan svívirðingar, er
ekki hjá því komist að gefa
honum “rækilega ofanígjöf"
eins og hann telur sig umkom-
inn að gefa öðrum.
Blaðið hefur eftir Guðmundi,
að hann hefði “eftir Ingvari
Hallgrímssyni fiskifræðingi, að
tvær rannsóknaferðir hefðu
verið farnar um Djúpið áður en
veiðarnar hófust og að mikið af
seiðum hefði veriö í bæði
skiptin. Samt leyfa þeir sér að
láta hefja veiðarnar, sagði Guð-
mundur. Þetta eru hrein ósann-
indi og tilbúningur Guðmundar
Rósmundssonar. Samkvæmt
þessum ummælum Guðmund-
ar, hefðum við átt að vita að
seiðagengd væri yfir lokunar-
mörkum, en látið opna Djúpið
samt. Heldur Guðmundur Rós-
mundsson virkilega, að nokkur
maður trúi svona grófum ó-
sannindum?
Tvær kannanir fóru fram í
Djúpinu fyrir vertíð og báðar
sýndu umtalsverða seiða-
gengd, en í hvorugt skipti yfir
mörkum, og það vissu allir, sem
vita vildu. Ef Djúpið hefði ekki-
verið opnað, með seiðafjölda
undir mörkum, hvað hefði Guð-
mundur sagt þá? Ætli hann
hefði ekki spurt, hvaða rök
væru fyrir því, að halda Djúpinu
lokuðu úr því að seiðafjöldi
væri undir mörkum?
Hitt er svo annað mál, sem
Guðmundur Rósmundsson veit
jafnvel og ég hve oft seiði hafa
valdið miklum baga á haustin í
Djúpinu. Hann veit einnig, að
ekki er hægt að segja seiða-
gengdina fyrir, né heldur er
hægt að segja fyrir að haust-
lagi, hvort seiðagengd sé vax-
andi eða minnkandi, enda eru
dæmi úr Djúpinu um hvort-
tveggja. Aöeins er hægt að telja
seiðin og vita fjölda þeirra á
vissum stöðum á vissum tíma
og draga ályktanir af því.
Eftir þetta brambolt Guð-
mundar í blöðum og umræður
á Alþingi, hefur alvarlega komið
fram sú hugmynd að hefja
rækjuveiðar ekki fyrr en eftir
áramót og sleppa alveg haust-
vertíð. Það skyldi þá ekki vera,
að það yrði árangurinn?
Ingvar Hallgrímsson
Ný vatnslögn að Ljóninu
Undirbúningur að lögn við-
bótarvatnsleiðslu frá Úlfsár-
veitu að húsnæði Ljónsins á
Skeiði er hafinn, að því er Har-
aldur L. Haraldsson bæjar-
stjóri upplýsti blaðið um. Að
sögn bæjarstjóra er þetta gert
vegna þess að eitt skilyrða
þess að heimilað var að opna
verslanir aftur í húsinu var að
þar verði komið upp vatnsúð-
unarkerfi, af svokallaðri
Sprinkler gerð, en það setur
Patreksfjarðarbátarnir
réru djúpt eftir helgina og
komu allir þrfr með um 20
tonn hver á þriðjudags-
kvöldið eftir tvöfalda lögn,
og fluttu á land mjög góðan
fisk að sögn. Bátunum á
norðanverðum Vestfjörðum
gengur einnig þokkalega,
þegar gefur, hafa verið með
þetta 5—8 tonn í róðri.
Gæftir voru sæmilegar síð-
ustu viku, en í gær var kom-
in bræla svo að jafnvel tog-
ararnir voru að koma inn.
Flateyringar segja frá því og
hafa gaman að, að nú þegar
Sif er loksins farin að róa að
staðaldri, fái hún oft meiri
afla heldur en Ásgeir, sem
er miklu stærra skip.
TOGARARNIR
BESSI landaði 97 tonnum á
mánudaginn.
GUÐBJARTUR kom sama
dag með 56 tonn af þorski
og ýsu, skiptaverð kr.
499.117,00.
PÁLL PÁLSSON kom einnig
á mánudaginn og landaði
105 tonnum af góðum fiski,
aðallega þorski og ýsu.
JULÍUS GEIRMUNDSSON
kom á þriðjudaginn með
100 tonn.
GUÐBJÖRG landaði
130—140 tonnum af þorski
og ýsu í gær.
sjálfkrafa í gang vatnsúðum við
ákveðið hitastig. Kerfi þetta á
að vera komið í húsið fyrir febr-
úarlok, samkvæmt skilmálun-
um.
Vatnslögnin, sem fyrir er að
húsinu flytur ekki nægilegt vatns-
magn fyrir tækin og því varð að
leggja nýja. Bæjarstjóri sagði að
efni hefði verið pantað í lögnina
og að hún mundi verða tilbúin í
tæka tíð. Áætlaður kostnaður er
kr. 116.000.00
DAGRÚN landaði 90 tonn-
um af þorski og ýsu þann 5. |
HEIÐRÚN kom 2/12 með 38 1
tonn.
Elín Þorbjarnardóttir land-
aði 44 tonnum 3/12.
GYLLIR landaði 72 tonnum
á mánudaginn.
FRAMNES I. landaði sama
dag 68 tonnum, mest karfa.
SLÉTTANESIÐ kom til ísa-
fjarðar þann 1. með bilaðan
gír og landaði þá 35 tonn- |
um, en er nú farið til Akur- I
eyrar til viðgerðar og eftir-
lits.
TÁLKNFIRÐINGUR landaði
70 tonnum af þorski og ýsu
2/12.
SIGUREY var á Bíldudal í I
gær að landa um 80 tonnum
af blönduðum afla.
SÖLVI BJARNASON liggur
enn við landfestar á Tálkna-
firði og sést lítið til manna- |
ferða þar um borð.
Styrktarsjóður húsbyggingar Tónlistarskóla ísafjaróar:
Heldur útímarkað á Silf-
urtorgi á laugardaginn
Nokkrir galvaskir félagar úr
Styrktarsjóði húsbyggingar
Tónlistarskóla ísafjarðar munu
standa fyrir útimarkaði á Silfur-
torgi laugardaginn 10. des-
ember, ef veður leyfir. Ætlunin
er að bjóða til sölu gómsætar
kökur af öllum stærðum og
gerðum, ásamt mörgum mjög
svo nýtilegum hlutum. Einnig
mun verða slegið á nokkra
lauflétta strengi, til að létta
skammdegið, en hvað það
verður vita fáir.
Eins og flestum er kunnugt er
markmið félagsmanna að afla fjár
til fyrirhugaðrar byggingar tón-
listarskólahúss. en húsnæðisskort-
ur háir mjög starfsemi skólans. í
desember í fyrra stóðu félagar
styrktarsjóðsins fyrir sams konar
útimarkaði með söng og dansi og
kunnu ísfirðingar vel að meta þá
uppákomu og er það ætlunin að
ekki takist verr til í þetta skiptið.
Isfirðingar, komið á torgið á
laugardag, eflið byggingarsjóðinn
og skemmtið ykkur um leið.
Jólafundur Nor-
ræna félagsins
Norræna deildin á ísafirði
hélt aðalfund sinn þann 12.
september s.l. í félaginu eru nú
um 100 félagar. Sambandsþing
Norrænu félaganna var haldið í
Hveragerði í húsnæði Garð-
yrkjuskóla ríkisins dagana 1.
— 2. okt. s.l. Formaður deildar-
innar, Þorbjörg Bjarnadóttir
sótti þingið. Þar voru rædd ým-
is skipulags- og efnahagsmál
sambandsins og var þingið hið
ánægjulegasta. Einn félagi úr
stjórn deildarinnar, Kristjana
Sigurðardóttir sótti sænsku
námskeið á Frumnesi í Svf-
þjóð, en slfk námskeið eru
haldin árlega fyrir Norðkollu-
búa.
Hinn árlegi jólafundur verður
haldinn í Húsmæðraskólanum
Ósk næstkomandi sunnudag,
11. des. klukkan 15.30.
Ymislegt verður þar til
skemmtunar, svo sem mynda-
sýning, einsöngur, upplestur
og svo kaffisopi og ýmislegt
jólagaman.
Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
Allir eru velkomnir.
BÍLALEIGA
Ncsvegi 5 — SúAavík — 94-6972-6932
Grc'iisfisvegi 77 — Kcykjavík — 91-37688
Sendum bílinn
Opiú allan sólarhringinn