Vestfirska fréttablaðið - 04.07.1985, Blaðsíða 5
vestlirska
rRETTABLADIS
5
segir Veiga í viðtalinu. Þarna er Ólöf,
Á endurfaæfingardeildinni er æfingasalur, búinn nýtfskulegum tækjum. Veiga fylgist
grannt með að æfingarnar séu rétt framkvæmdar.
{ æfingasalnum geta ungir sem aldnir þjálfað á sér kroppinn eins og þarf. Hún gerði
æfingamar af mikilli röggsemi.
tii sín sjúkraþjálfara til að leiðbeina
starfsfólki sínu í raun stórgrætt á
því?
„Ég held það, þegar fram í sæki-
ir. Þess vegna hafa sum fyrirtæki
ráðið til sín sjúkraþjálfara, til
dæmis Landsbankinn í Reykjavík.
Og líklega er frystihúsið í Bolung-
arvík að ráða til sín sjúkraþjálfara í
hálft starf.”
fá rétt álag á vöðvana styrkja suma,
slaka á öðrum, o.s.frv. Svo kennum
við því að bera höfuðið rétt ef það
er bólgið í öxlum, eða þá að sitja
rétt ef verkurinn er neðar eða okk-
ur finnst þörf á því. Það þarf alltaf
að vega og meta hvern einstakling
með tilliti til vinnu hans, einkenna,
líkamsbyggingar ofl.”
ar, þær eru besta tækið. Maður fær
tilfinningu fyrir því hvar aumu
blettirnir eru. Það er margt fólk
sem hefur litla tilfinningu fyrir að
nota nöðvana, það hefur kannski
ekki tilfinningu fyrir því hvenær
það situr beint, heldur kannski að
það sé alltaf beint, en er það ekki.
Við reynum að auka fólki meðvit-
kannski of lin, ég ráðlegg þeim en
ég læt íþróttamennina síðan ráða
því sjálfa hvort þeir vilji taka þá
áhættu að byrja eða ekki. Sjúkra-
þjálfari spurði einu sinni þjálfara
hvort hann mundi fara eftir því sem
hann mælti með fyrir íþróttamann,
hann svaraði því neitandi, sagðist
mundu nota mann ef hann þyrfti á
honum að halda.”
10 manna hóp og höfum ákveðið
æfingaprógramm sem við förum í
gegnum með hverjum og einum í
fyrsta tímanum. Síðan gerir fólk
æfingamar sjálft, en við erum til
staðar ef eitthvað kemur upp á og
til að koma í veg fyrir að fólk geri
æfingamar vitlaust.”
— Þú sagðir að þér hefði ekki
fundist veita af svona tímum í
ggður til að sitja allan daginn
Fólk situr of mikiö.
— Eru frystihúsin góður mark-
aður fyrir sjúkraþjálfara?
„Já, en ekki bara þau. Við höfum
verið að telja það saman hér hvað-
an okkar sjúklingar koma og er út-
koman sú að þeir séu í raun ekkert
fleiri frá frystihúsunum heldur en
frá skrifstofum, og öðrum starfs-
greinum, t.d. sjómannastéttinni.
Kyrrsetan hefur þar mikið að segja,
fólk situr of mikið. Það þarf að fá
einhverja hreyfingu á móti þessari
kyrrsetu. Líkaminn er ekki byggður
til að sitja allan daginn, hann er
byggður til að hreyfa sig. Svo eru
fjarskalega margir sem ekki sitja
rétt. Þess vegna ráðleggjum við
fólki við kaup á stólum. Stór hluti
okkar sjúklinga þjáist af svoköll-
uðum álagssjúkdómum, vöðva-
bólgum og bakverkjum, vegna
mikils og rangs vinnuálags.”
— Hvað geriði fyrir mann sem
kemur inn með vöðvabólgu, t.d. í
öxlum?
„Hann fær yfirleitt hitameðferð.
Við reynum að mýkja þá vöðva
sem er bólgnir og kennum fólki
undantekningarlaust æfingar til að
Kvíði getur valdið
vöðvahólgu.
— Hefur stress ekki áhrif í þessu
sambandi?
„Jú, mjög mikil. ” Og nú réttir
Veiga blm. teikningu af vítahring
manns sem þjáist af taugaspennu.
Sú spenna getur orsakað verk og
verkurinn getur aukið taugaspenn-
una, þannig að verkurinn versni.
„Maður sem er kvíðinn spennir sig,
og fær verk sem leiðir til vöðva-
bólgu. Til að brjótast út úr víta-
hringnum er mjög mikilvægt að
finna orsakir upphaflega kvíðans.
Við reynum að hjálpa fólki til
þess.”
— Þannig að þið þurfið að vera
sleipar í sálarfræði líka?
„Já, það er heilmikil sálarfræði í
þessu. Fólk sem kemur til okkar
opnar sig gjaman um vandamál-
in.”
— Notiði einhver lyf við ykkar
meðferð?
„Nei, engin. Það sem við notum
eru ýmis hitaframkallandi tæki eða
bakstrar, djúphiti hljóðbylgjutæki.
Annars eru hendurnar mest notað-
und fyrir líkamanum sem það þarf
að bera alla ævi.”
Ætti að kenna fólki í
barnaskóla að beita
bakinu.
— Finnst þér fólk bera næga
virðingu fyrir eigin líkama?
„Ekki næga nei. Við segjum
stundum að fólk ætti að læra í
barnaskóla að beita bakinu rétt,
alveg eins og það lærir að lesa. Það
er talið sjálfsagt, en ekki að geta
beitt sér við alla mögulega vinnu.”
— En þið eruð nokkurs konar
leikfimiskennarar líka?
„ Ja, leikfimi er ein námsgreinin í
skólanum. Við lærum líka að
stjórna hópum, því við getum lent í
að vera með hóp.”
— Fáiði mikið af íþróttamönn-
um til ykkar?
„Töluvert. Og oft eru þeir erfiðir,
vilja alltaf fara svo fljótt af stað eftir
að þeir eru búnir að vera hjá okkur
og spilla þá oft fyrir sér.”
— Hafiði kannski lent í tog-
streitu við þjálfara út af þessu?
„Ekki ég persónulega. Ég er
Fólk fær meira út úr sinni
meðferð hér.
„Aðstaðan hjá okkur er orðin al-
veg ógurlega góð. Þó alltaf megi
bæta einu og einu tæki við er að-
staðan mjög fullkomin. Aðstaðan á
gamla sjúkrahúsinu var bókstaf-
lega engin og við vorum því búnar
að bíða lengi eftir að komast í þetta
húsnæði. Það var líka töluvert af
fólki sem ekki treysti sér til að gan-
ga stigana upp á loft til okkar í
gamla sjúkrahúsinu, þó hann hafi
verið ágætis þjálfun fyrir einstaka.
Fólk fær miklu meira út úr sinni
meðferð hér heldur en á hinum
staðnum.”
— Viltu kannski segja okkur
hvað fólki stendur hér til boða?
„Dagtímamir eru eingöngu fyrir
sjúklinga sem koma samkvæmt
læknisráði. Hver sjúklingur er hér í
hálftíma til klukkutíma, jafnvel
lengur ef fólk fer í sund á eftir eða
pott. Síðan byrjuðum við með opna
tíma á kvöldin af því okkur fannst
hreinlega ekki veita af hér í bæn-
um. Fólk getur hringt og pantað
fasta tíma. Síðan röðum við fólki í
bænum. Hvers vegna?
„Við höfum séð það á fólki sem
kemur í einstaklingsmeðferð til
okkar að það þarf að styrkja sig
meira, almennt; líkaminn er orðinn
það veikur. Með því að styrkja lík-
amann eykur maður líka viðnáms-
þrótt hans gegn kvillum. Við ætlum
okkur ekki að byggja upp nein
vöðvabúnt, heldur að auka vellíðan
fólks með auknu þreki og styrk.
Eldri borgarar
áhugasamir.
„I allan vetur höfum við verið
með leikfimi fyrir aldraða á Hlíf.
Það er virkilega skemmtilegt og
fólk sýnir mikinn áhuga. Svo eru
hér opnir tímar í sund fyrir eldri
borgara á morgnana frá 10 til 12 og
eru þeir mjög vel sóttir. Ég held að
þetta fólk sé farið að finna að það
þarf að hreyfa sig. Það finnur að
það er að stirðna og vill koma í veg
fyrir það.”
í lokin má geta þess að opnir
tímar standa almenningi aftur til
boða í september.
ið lærum líka að stjórna hópum”, segir Í lokin er upplagt að svamla svolitið i lauginni. Henni Sigrúnu fannst það a.m.k. alveg Svona á að sitja. Halda bakinu beinu, en með eðlilegum sveigjum. Varast ber að síga
afskaplega notalegt. Einnig er hægt að fara i nuddpott. saman eða draga upp axlimar. Stólbrún má ekki þrýsta aftan á lærin.