Sagnir - 01.06.1998, Side 64

Sagnir - 01.06.1998, Side 64
SAGNIR ‘ 9863 Ímyndunaraflið til valda Íslenskt fullveldi í 80 ár formleysa ríkjandi [...].14 RÓTTÆKNI HEFUR INNREIð SÍNA Innan skólakerfisins tóku mennta- skólarnir fyrstir við sér og á árunum 1968-70 tók að bera á róttækni í blöðum MR15 og MH.16 Gagnrýninni var sérstaklega beint að skólakerfinu en einnig var deilt á kapítalismann og stríðsrekstur Bandaríkjanna í Víetnam. Rót- tæknin átti hins vegar ekki eins greiða leið inn í Háskólann. Að vísu mátti einnig sjá ádeilugreinar í Stúdentablaðinu sem haustið 1969 var af ritnefnd kynnt sem „barát- tublað og umbóta, bæði í málefnum skólans og stúdenta og þjóðfélags- málum.“17 En í pólitíkinni bar Vaka sigurorð af vinstri mönnum allt til ársins 1971.18 Þess ber þó að geta að þrátt fyrir að Vaka væri hægrisinnuð var ekki þar með sagt að liðsmenn hennar berðust gegn öllum breytingum. Í kynningu á starfsemi hennar 1969 segir t.d. að Vaka berjist fyrir „aukinni þátttöku fólksins í stjórnmála- starfseminni; gegn flokksforysturæðinu, stirðnuðum stjórn- málaflokkum og samtryggingu valdsins.“19 Það bar einnig vott um aukna róttækni að félag vinstri manna, Verðandi, stóð að fjölmennum fundi gegn Víetnamstríðinu í Háskólabíói haustið 1969.20 Til að byrja með bar mest á gagnrýni á menntakerfið en það hafði raunar legið undir ámæli um skeið. Má þar meðal annars nefna skoðanakönnun Vikunnar frá 1965 meðal 16-20 ára unglinga en þar kom fram að æskan væri íhaldssöm að því undanskildu að henni fyndist skólakerfið vera úrelt.21 Í Stúdentablaði desembermánaðar 1968 segir t.d. eftirfarandi í leiðara: Margir hafa skrifað um málefni stúdenta að undan- förnu, þar sem mikil vakning á sér stað í röðum stúd- enta. Í þessum skrifum hefur mjög gætt misskilning og yfirborðsþekkingar. [...] Í Nýjum Vikutíðindum [...] er yfirfyrirsögn á forsíðu á þessa leið: „Háskólastúdentar í uppreisnarhug“. Þessi fyrirsögn er algjör rangtúlkun á þeirri hreyfingu, sem hafin er meðal stúdenta, en undirfyrirsögnin, „Háskólinn til skammar“ er því miður sönn. En þetta með upp- reisnarhug stúdenta er fjarstæða. Ef þetta stæðist væru allir menn, sem eru ómyrkir í máli og halda fram rétti sínum með málefnalegri baráttu, í uppreisnarhug.22 Á þessu má sjá að stúdentar voru ekki með öllu áhugalausir um eigin málefni en þeir voru hins vegar ekki tilbúnir til neinna aðgerða. Stúdentablaðið greindi frá þróun mála erlendis23 en það kom í hlut þeirra sem henni kynntust að eigin raun að bera byltinguna heim. Þannig er upphaf ´68 róttækninnar oftast miðað við töku íslenskra námsmanna á sendiráði Íslands í Stokkhólmi vorið 1970. Fram að þeim tíma hafði náms- mannahreyfingin haldið sig á mottunni en það voru íslenskir námsmenn erlendis með SÍNE (Samband íslenskra stúdenta erlendis) í broddi fylkingar sem riðu á vaðið og innleiddu þá róttækni sem átti eftir að einkenna náms- mannahreyfinguna næstu árin. Þröstur Ólafsson formaður SÍNE hélt því fram í viðtali að taka sendiráðsins hafi haft „geysimikla þýðingu“ til að ýta við yfirvöldum og hvetja stú- denta til baráttu.24 Um sumarið ályktaði SÍNE um nauðsyn óhlýðni gagnvart ósanngjörnum lögum. Í henni segir meðal annars: [Ó]lögleg innrás á skrifstofu er ekki nándar nærri eins alvarlegt og menntamisrétti vegna efnahags; ólögleg aðseta í byggingu er ekki eins alvarleg og þjóðarmorð í stríði. [...] Þeir, sem taka þátt [í] almennri óhlýðni, ættu að velja aðferðir, sem eru eins lausar við ofbeldi og mögulegt er [...] Í rökræðum okkar um almenna óhlýðni, megum við aldrei gleyma að við og ríkis- valdið erum aðskilin hvað snertir hagsmuni [...].25 Þeir sem réðust inn í sendiráðið í Stokkhólmi kröfðust þess að kjör námsmanna yrðu bætt auk þess sem hvatt var til sósíalískrar byltingar. Menntaskólanemar fylgdu þessu fordæmi eftir með því að yfirtaka menntamálaráðuneytið heima á Íslandi. Nálægt hundrað ungmenni áttu hlut að máli en af þeim voru einungis þrír háskólastúdentar. Talsmenn vinstri manna við Háskólann héldu því fram að beita yrði friðsamlegum meðulum við kröfugerðir.26 Meirihluti mennta- og háskólanema taldi sig til vin- stri upp úr 1970. Kosningar til Stúdentaráðs urðu pólitískari en áður hafði verið en vinstri menn komust þar loks til valda 1972. Þeir áttu eftir að halda völdum það sem eftir lifði ára- tugarins en Vaka sem fékk iðulega um 45% atkvæða hélt uppi Meirihluti mennta- og háskólanema taldi sig til vinstri upp úr 1970. Kosningar til Stúdentaráðs urðu pólitískari en áður hafði verið en vinstri menn komust þar loks til valda 1972. Hægri róttækni var líka til! Fyrir utan Ferðaskrisfstofu ríkisins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.