Skagfirðingabók - 01.01.1980, Blaðsíða 186
SKAGFIRÐINGABÓK
fólkið þorði ekki að ráða sig í sveit, því alltaf gat síldin komið.
Þannig var þetta víða í kauptúnum norðanlands.
I haust var slátrað hér á Sauðárkróki, á þremur sláturhúsum,
alls 18.500 kindum, en árið áður 21.477 kindum. Meðalþyngd á
dilkum var 13.27 kg. (2614 pund); árið áður 12.06 kg. í Hofs-
ós og Kolkuós var slárað 2.174 kindum; árið áður 3.255 kindum.
Meðalþyngd var 12.08 kg. (liðug 24 pund); árið áður 11.22 kg.
Um Haganesvík og Siglufjörð er það að segja, að þar var slátrað
4.259 kindum; árið áður 4.071 kind. Meðalþyngd var 12.18 kg.;
árið áður 11.77 kg.
Fækkun sláturfjárins stafar fyrst og fremst af því, að í fyrra
var nálega hverju lambi slátrað og fullorðnu með meira móti,
vegna hinna hröktu heyja, einnig hve margar ær voru geldar, eins
og nefnt var hér að framan, og svo munu ýmsir hafa sett töluvert
á af lömbum síðastliðið haust.
Mestur hluti kjötsins var fryst til sölu utan og innan lands.
I október fóru héðan á 7. þúsund kroppar til Englands. Seldist kjöt-
ið bæði fljótt og vel á um 25% hærra verði en í fyrra, en enginn
veit þó með vissu, hvert verður endanlegt verð kjötsins, því mik-
ið er enn eftir óselt í landinu, sem fer ekki héðan fyrr en seinni
partinn í vetur. Hross voru keypt hér í sumar og haust, og var
hæst verð fyrir beztu hesta 160 krónur. Bezt var verð á þriggja vetra
hestum, frá 90—130 krónur. En samt var fremur lítið selt.
A þessu ári sögðu af sér prestskap þeir sr. Hallgrímur Thorlacius
í Glaumbæ og sr. Arnór Árnason í Hvammi í Laxárdal. Er það
nú í lög komið, að enginn má sitja í embætti eftir að hann er 70
ára. Eru þeir báðir búnir að ná þeim aldri, en þó hinir ernustu til
líkama og sálar. Standa nú köll þeirra óveitt. Þjónar Sauðárkróks-
prestur Hvamms- og Ketusóknum, en Glaumbæjarprestakalli
skiptu þeir á milli sín Miklabæjar- og Mælifellsprestar. Er þetta
ekki ósvipað því, er stórveldin eru að bæta við sig nýlendum. En
hvort það er eins hollt fyrir kirkju og kristindóm læt eg ósagt, enda
munu þessir söfnuðir fullkomlega óska eftir að fá sína eigin
presta, því framúrskarandi erfitt er fyrir Sauðárkróksprest að þjóna
184