Skagfirðingabók - 01.01.1983, Blaðsíða 47
BRÉF BALDVINS EINARSSONAR
væri þad ecki mikid, og þó madr vildi taka allar Rent-
urnar.
Eg hefi talad vid einn kaupmann hér, sem er gódr
kunníngi minn og annara íslendínga, hann heitir Ander-
sen,' og á systr Cancellieráds Biörnsens, hann er úngr
kaupmadr, trúrr og viss, og dugligr, en ecki mjög ríkur
enn þá, hann vill giarnan taka verzlunina uppá sig her í
borginni, og skióta siálfur töluverdu til. Hann segir ad ef
eg geti utvegad 4 eda 5 þúsund dali, skuli hann leggia hitt
annad til. Þetta væri nú ágætt í fyrstu ámedan menn
byriudu, og Bessi bródir væri ad læra; en hann skyldi
verzla heima á sumrin. Nú sýnist mér vandin hægr ef þid
hefdud dug forfedra Ydvarra, þid landar mínir. — Eg segi
ad þú skulir setia 3 eda 4 20 hundrada jardir í pant,
Sveinn1 2 í Haganesi eins, Nesmenn eins, Porsteinn á Lóni
eins, og Benedict á Hólum eins eda þá einhvöriir adrir í
þeirra stad, svoad þad fengist 4 eda 5000 dalir. Þú skrifad-
ir Stiftamtmanni og bædir hann um lánid, eda þid sem i
félaginu værud allirsaman, og tilnefndud jardirnar med
nafni og dyrleika sem þid vildud pantsetia og nefndud
penínga upphædina sem þid vildud fá til láns. Þegar
peníngarnir væru komnir þángad þá væri allt keipt inn
eptir Yckar fyrirmælum. —
Þú segir nú ad þóad verzlanin þannig kæmist í nockurra
manna hendr, þá hafi landid yfir höfud ecki mikinn ábata
af því, eg svara þér: þú getr aldrei vænt þess ad allir verdi
ríkir, náttúrunnar lög leyfa þad ecki í þessum heimi, en
þad er enganveginn ónýtt ad einstakir ríkir menn séu til í
1 Jens A. Andersen kaupm. í Kpmh., Steinunn systir Þórðar Björnssonar
sýslum., var kona hans.
2 Sveinn Sveinsson í Haganesi, Nesmenn: Sennilega ábúendur á Siglunesi,
Þorsteinn Daníelsson á Skipalóni, sr. Benedikt Vigfússon á Hólum.
45