Skagfirðingabók - 01.01.1983, Blaðsíða 75
BRÉF BALDVINS EINARSSONAR
Eptir á ad hyggia! Svo þú skiliir mig áhrærandi Exam-
en, þá á madr ad svara skrifligu spursmálunum fyrst, sem
varar í 4 daga, og svo kemur þad munnliga Examen einum
mánudi seinna og þad á eg nú eptir.
Fréttir eru hédan engar nema ad prísar eru hér ekki háir
á íslenzkum vörum, kemr þad medfram til af því, ad
Cholera morhus hindrar kaupferdir og mök vid adrar
þjódir. Lýsid er nú komid ofan í sinn vanal. prís, 24—28
dali, ullin er bezt, og tólgin er réttgód. Kornvörurnar
verda aptr med betra verdi ad ári, því uppskéran hefir
verid ríkuglig.
Cholera morhus er komin til Berlín og Víen, en miklu
er hún þar vægri enn hún hefir verid annarstadar í sumar,
og einkum er hún vægilig í Berlín, þar deya skialdan yfir
20 á dag og stundum og optast ekki fleiri enn 8 — 10 og
aldrei hafa fleiri verid veikir í senn enn 114 og eru þó
innbúarnir í Berlín 5 sinnum fleiri enn á öllu Islandi. í
Vínarborg er sykin nokkud skiædari, en einkum er hún í
því frábrugdin frá því sem hún hefir verid annarstadar ad
hún allrahelst legst á metordamenn, líkliga af því ad þeir
hafa bordad og drukkid nógu rífliga. Ekki er Cholera lík
svarta dauda held eg, og aldrei held eg ad hún komi út til
Islands, og þó hún kiæmi þar, held eg hún yrdi ekki miög
skiæd, vegna stormanna og ens óróliga vedrlags.
Frá útlondum er ekkért nýtt frétta merkilegt, nema ad
Rússar hafa tekid Warschau eptir þriggia daga barattu, en
pólski herinn fór út hinumegin úr borginni, og hefir hann
ekki gefist upp ennþá, en líklega mun hann verda ofrlidi
borinn, og þá er allt komid undir nád og miskun Keisar-
ans, en eg held ad hann til allrar lukku verdi nádugr, því
þad er líka klókast fyrir hann
Eg ætla nú ekki ad skrifa fleirum enn þér í þetta sinn,
því eg hefi nú engan tíma. eg bid þig því ad bera kiæra
kvedju mína náúngum mínum öllum saman, Módr minni
73