Skagfirðingabók - 01.01.2001, Page 171
MÚRINN RAUÐI A HÓLUM
til skjóls, en allt bendir til þess að hlutverk hans hafi verið
annað og meira þegar hann var reistur. Ekki er hægt að útiloka
að hann hafi átt að vera sjálfstæð kirkja, en líklegra er þó að
hleðslurnar hafi verið eins konar viðbygging við kirkjuna sem
stækkaði hana og prýddi.
Það er skaði að þessi merka steinbygging skyldi þurfa að
víkja fyrir þeirri kirkju sem nú stendur á Hólum, þótt hún sé
nú ein merkasta bygging landsins. Múrinn hefði verið eitt af
því fáa sem eftir stæði af því stórveldi sem norðlensk kirkja var
síðla á kaþólskum tíma, auk þess að vera minnisvarði um
metnaðargjarnan norskan biskup á Hólastóli, þó sá héti Gott-
skálk en ekki Auðunn.
Heimildaskrá
Annálar 1400-1800 I. Reykjavík 1922-27.
Annálar 1400-1800 IV. Reykjavík 1940-48.
Ásgeir Jónsson: Siglt gegn vindi. Fjármálatíðindi, desember 1994.
Ásgeir Jónsson: Þá Skúli var yfirvald Skagfirðinga. Lesbók Morgunblaðsins, 29.
nóvember 1997.
Björn Þorsteinsson: Enska öldin ísögu íslendinga. Reykjavík 1970.
Ðiplomatarium Islandicum. íslenzkt fombréfasafn I-XIV. Kaupmannahöfn og
Reykjavík 1857-1949.
Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson: Ferðabók, 4. útgáfa. Reykjavík 1981.
Eyjólfúr Jónsson: Um Gottskálk Keniksson og aðra Hólabiskupa. Biskupasögurll.
Kaupmannahöfn 1878.
Guðbrandur Jónsson: Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal. Safn til sögu íslands og
íslenskra bókmennta V, nr. 6, Reykjavík 1919-29.
Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson og Vésteinn Ólason: íslensk bókmenntasaga I.
Reykjavík 1992.
Helge Finsen og Esbjorn Hiort: Steinhúsin gömlu á íslandi. Reykjavík 1978.
Kristján Eldjárn þýddi.
Hörður Ágústsson: Hóladómkirkjur hinar fornu. Kirkjuritið 1981, 3. hefti.
lslandske Annaler indtil 1578. Kristiania 1888.
Jón Jónsson Aðils: Skúli Magnússon landfógeti. Reykjavík 1911.
Magnús Már Lárusson: Auðun rauði og Hólakirkja. Árbók Hins tslenska fornleifa-
félags, 1960.
169