Jökull


Jökull - 01.12.1956, Page 33

Jökull - 01.12.1956, Page 33
skarð. Gekk drjúgan undan brekunni, en tveir stjórnuðu sleðanum, og höfðu eitt band hvoru- rnegin að framan. Síðan var keyrt á fullri ferð niður irrekkuna, en hún var löng og mátulega brött. Er komið var niður á lægðina fyrir ofan Skeiðarárjökul, varð færið verra, aðallega ójafnt og mishæðótt. Veðrið var með afbrigðum gott, eins og það hafði verið alla leiðina, ef til vill fullmikið af sólskini. Við urðum að ganga með hlífar fyrir andlitinu, til þess að verjast sól- bruna. Um kl. 11 var sólbráð orðin svo mikil, að við tjölduðum. Þarna sváfum við til kvölds og lögðum aftur af stað rétt eftir miðnætti 2. júlí í fimmta áfanga. Nú var ætlunin að komast í Hermannaskarð. Þegar við héldum af stað, var allhvasst norðan eða norðvestan. Við gerðum tilraun með að setja upp segl á sleðann, til þess að létta dráttinn, en þar sem vindur var of mikið á hlið og færi afar óslétt, gekk það ei eins og við höfðum von- að, en léttir var þó að. En þegar vindstaðan breyttist, var ekki um annað að ræða en að halda áfram að draga eins og áður. Okkur mið- aði sæmilega og komum í Hermannaskarð kl. 9.30. Var nú eldað háfjallasúkkulaði og síðan lagzt til svefns. Þá var veðri brugðið, þoka sigin á fjöll og suddaði úr þokunni. Hófst nú sjötti áfangi, og var upp Oræfa- jökul að sækja. Lagt var af stað um miðnætti i niðaþoku, og mundum við vart hafa haldið áfram, ef eigi hefði notið við skriðbílabrautar þeirra Guðmundar Jónassonar, sem hann hafði sagt að lægi að Hvannadalshnúk. Oft þótti okk- ur ekki valin stytzta leiðin, en þokan hélt okkur við hana. Þarna var sums staðar mjög bratt, færið blautt og drátturinn því mjög þungur. A leiðinni upp rofaði einu sinni aðeins til í aust- urátt, og sáum við þá Þuríðartind blasa við. Annars sáum við aldrei neitt alla leiðina og vorum orðnir dauðuppgefnir, er við loksins tjölduðum utan til í Tjaldskarði — enn í niða- þoku. Leit ekki vel út um draurn okkar, að fá heiðskírt á hæsta tindinn. En vonin lífs er verndarengill! Daginn eftir var veðrið eins. Haldið var af stað kl. 13 og enn fylgt sporum Guðmundar fónassonar. Er við höfðum gengið í tvo tíma, rofaði allt í einu til, og framundan á hægri hönd blasti Hvannadalshnúkur við í allri sinni dýrð. En brátt hvarf hann aftur í þokuna. Var nú haldin ráðstefna og sú ákvörðun tekin, að halda áfram. Var tjaldað skammt frá Knapp kl. 7 þ. 4. júlí og ætlunin að biða þar eins lengi og tími leyfði og snúa við og halda á tindinn, ef upp birti. Þegar við fórum að sofa um 10-leytið, var farið að rigna, svo að ekki var nú útlitið gott! Þegar við vöknuðum kl. 18.30, var sæmi- lega bjart, sól á lofti. Var nú tekið óspart á dugnaðinum, snúið til baka, lausir við áhyggjur og sleðadrátt, og kl. 22.30 vorum við komnir á tindinn. Var útsýnið ógleymanlegt, þó ekki sæ- ist til byggða, því að þokan lá í ullarbólstrum yfir öllu, aðeins hæstu tindar stóðu upp úr laugaðir skini kvöldsólarinnar. Félagi okkar, Ijósmyndarinn, festi þessa dýrð á mynd, eins vel og fjölvísum manni úr þeirri stétt er fram- ast unnt, en allir óskuðum við hver öðrum til hamingju með giftusama ferð, sem hér með var staðreynd. Var svo hraðað för til baka, farangur upp tekinn og lagt af stað um nóttina kl. 3.30 þ. 5. júlí. Gekk ferðin mjög að óskum niður jökulinn, milli Knapps og Rótarfjallshnúks, þó að leita yrði fyrir sér um leiðir og krækja fyrir sprungur. Kl. 6.30 lauk ferð á jökli, og hófst. nú erfiðasti kafli ferðarinnar, að bera allt silt hafurtask um urð og grjót, þó að niður í rnóti væri. Samt tók það enda eins og annað í heimi hér, og niður að Knappavöllum komum við um morguninn kl. 11.30 og höfðum þá verið á ferðinni í 15]/2 klukkustund. Á Knappavöllum skiptum við okkur á bæina og fengum góðar viðtökur. Þaðan fórum við með bíl til Fagur- hólsmýrar og daginn eftir með flugvél til Reykja- víkur. Var það þægilegur og skemmtilegur endir á velheppnaðri ferð. Að lokum vildum við benda þeim á, sem kynnu að fara svipað ferðalag, að ætla sér ekki of nauman tíma, því að mikið er fyrir svona ferð haft og illt að geta ekki dokað við einn eða fleiri daga til jress að draumurinn rætist. Ekki mátti miklu muna hjá okkur vegna tíma- leysis. Svo tökum við undir orð Guðmundar frá Miðdal: Gangið á Hvannadalshnúk, allir þér, sem eigið þess nokkurn kost, og ykkur mun aldrei iðra þess. Björguin Ólafsson. ABSTRACT. Five young men travelled from the hut Jökulheimar to Grimsvötn and from there to Orœfajökull, where they ascended Hvannadalshnúkur in fine loeather. From tír- œfajökull they xoent to Fagurhólsmýri on the South Coast tuhere they took an air plane lo Reykjavik. The whole trip from Reykjavik and back took nine days. 31

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.