Jökull


Jökull - 01.12.1956, Page 41

Jökull - 01.12.1956, Page 41
 mu þglilgftgilif '* ; / / ■ INAJOKLU Gonipðcá (fíw tív: jriw íu! i<cvi*b!t £> ■ . ts immediate Surroundíngs Sigunjur "rtx'írartnsv.Ki 2. mynd. Leiðir Vatnajökulsleiðangursins 1956 um jökulinn. Leiðir fyrn flokksins eru sýndar með heildregnum línum, leiðir siðari flokksins, þær er ekki falla saman við fyrri leiðirnar, eru dregnar með brotnum línum. Ferhyrningar sýna tjaldstaði, þríhyrningar mælistaði og hringir snjó- gryfjur. — Map showing the routes of the Vatnajökull expedition 1956. Continuous lines: The routes of the first party. Dashed lines: The routes of the second party, ruhere not following the previous routes. Black squares: Camping places. Triangels: Trig. points. Open rings: Snow pits. stýrði að sjálfsögðu snjóbíl sínum, R-345, Hauk- ur Hafliðason stýrði vísli Jöklafélagsins, Jökli I, en Ólafur Nielsen stýrði vísli, sem hann og nokkrir félagar hans úr flugbjörgunarsveit- inni höfðu keypt og byggt yfir. Var sá skraut- legur mjög og kallaður Grendill. Var því heit- ið, að hann skyldi skírður, er hann kæmi aust- ur að samnefndum tindi. Nicholas Clinch, sem er amerískur lögfræð- ingur og liðsforingi, sem starfað hefur um hríð á Keflavíkurflugvelli, tók þátt í leiðangrin- um til að kynna sér íslenzka jöklaferðatækni og getu flugbjörgunarmanna, sem flugmenn á vellinum geta stundum átt líf sitt undir. Clinch er kunnur fjallaklifrari, sem hefur klifið marga torkleifa tinda bæði í Norður- og Suður- Ameríku. I liópi þeirra, sem aðeins ætluðu inn í Jök- ulheima voru m. a. Jón Eyþórsson, Þórarinn Björnsson verzlunarstjóri, sem verið hefur Jöklafélaginu haukur í horni bæði um skála- byggingu og jöklaferðir, og Úlfar Jacobsen, gjaldkeri flugbjörgunarsveitarinnar, en þátt- takendur Vatnajökulsleiðangra síðustu árin hafa flestir verið úr þeirri sveit. Eftir að hafa staldrað við lijá brúðlrjónun- 39

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.