Jökull - 01.12.1970, Blaðsíða 89
Skeiðarárjökull austanverður. í bréfi með
mælingaskýrslunni segir Ragnar í Skaftafelli:
„A síðari hluta sumars 1969 kom smá hæðar-
bunga á Skeiðarárjökul í stefnu héðan frá bæn-
um séð á HvirfilsdalsskarÖ við norðurenda
Lómagnúps. Þessi bunga hjaðnaði að mestu,
þegar leið á veturinn. Ef til vill hafa hinar
óvenjumiklu rigningar það sumar (1969) haft
áhrif á skrið jökulsins, og það orsakað þessa
hækkun á jöklinum, sem þó var aðeins stundar-
fyrirbrigði. I júlimánuði 1970 kom fram örlítil
hækkun á jöklinum aftur á sama stað, þ. e. a. s.
í stefnu á Hvirfilsdalsskarð Annars staðar eng-
in breyting.
Frá mánaðamótunum júlí/ágúst til loka októ-
ber hefur fyrrgreind hæðarbunga á Skeiðarár-
jökli hækkað það mikið, að nú (19. nóv. ’70)
verður að færa sig 7,5 m hærra hér í brekkum
Skaftafells til að sjá sömu klapparsyllu handan
jökulsins og sást áður en hækkun hófst. Lítils-
háttar hækkun má sjá nú á jöklinum í stefnu
framan við Lómagnúp. Hins vegar hefur jökull-
inn heldur lækkað séð til Súlutinda, og virðist
standa í stað við Færinestinda."
Skeiðará. Um Skeiðará ritar Ragnar Stefáns-
son hinn 19. nóv. ’70: „í ársbyrjun rann Skeið-
ará enn tvískipt, bæði í eystri og vestri far-
veginum. I janúar lagði ís yfir ána og var hún
farin á traustu haldi allt fram um páska. Áin
óx hægt og rólega af vorleysingunum og var
farið yfir hana á vörubílum fram til mánaða-
móta maí—júní. Þegar kreppa tók að ánni af
frosti í janúar, þornaði eystri farvegurinn alveg
og fluttist vatnið í þann vestri, og hefur það
gerzt undanfarna vetur, og bendir það til þess
að lítill hæðarmunur sé frá útfalli árinnar og
að þeim stað, sem vatnið skiptist undir jökl-
inum.
Þegar vaxa tók í ánni af vorleysingum og
sumarhita, kom fljótlega vatn í eystri farveg-
inn. í júní var vatn í vestri farveginum orðiö
lítið, ágætt á hestum, þornaði alveg í júlí.
í júli var óvenju litið vatn i Skeiðará. Man
ég hana vart svo litla í þeim mánuði. Ollu
meira vatn var í henni í ágúst, en áin var
mjög vatnslítil í september, en í hlýindum og
rigningum í lok þess mánaðar óx hún gífur-
lega og hélzt mikið vatn í henni þar til að-
faranótt 11. okt., að vatn í henni snöggminnk-
aði, en þó hélzt allmikið vatn í henni alveg út
þann mánuð, þótt það færi smáfjarandi.
Skeiðará kemur undan jökli smáspöl frá
fjalli. Rennslissvæði hennar er líkt og fyrri ár.
Fellur að mestu til sjávar sem áður í einum
ósi á austanverðum Skaftafellsfjörum, þó renn-
ur nokkurt vatn austur leirurnar í Svínafellsós."
Kviárjökull og Fjallsjökull. Flosi Björnsson
á Kvískerjum tekur fram í bréfi með mælinga-
skýrslunni, að yfirborð þessara jökla sé slétt-
ara en haustið ’69 og víðast hvar hafa þeir
lækkað. Við merki nr. 133 við Kvíárjökul er
allbreitt lón og jökultungan sjáanlega á floti.
Breiðamerkurjökull. Um Breiðamerkurjökul
segir Flosi: „Jökullinn hefur tekið litlum breyt-
ingum, fer heldur lækkandi. Að því er virðist
gengur ofurlítil tunga lengra út í Jökulsárlón-
ið en áður var. Hún er á takmörkuðu svæði
um Esjufjallarönd neðarlega og eitthvað austur
fyrir hana.“ „ ... sumarið 1969 féll Breiðá
nokkru austar úr skriðjöklinum en venjulega
og fyllti upp norðausturhorn Breiðárlóns, sem
þar mun hafa verið tiltölulega grunnt. Þar eru
nú siðan þurrir aurar. Áin flutti sig aftur til
vesturs um haustið."
Þorsteinn Guðmundsson segir í bréfi frá 21.
okt. 1970: „Við mælistöðina milli Jökulsár og
Stemmu gekk jökullinn fram í fyrra (1969) um
5 m og nú 80 m. Þá vil ég geta þess, að nú upp
á síðkastið hefur hann gengið til baka um 7 m,
má vera, að rigningarnar og hlýindin hér í
september og þessum mánuði hafi brætt fram-
an af brúninni. Ekki er sjáanlegt, að jökullinn
hækki neitt, er inn á hann kemur. Þó held ég,
að ég megi fullyrða, að jökullinn gangi fram
í Jökulsárlónið austanvert. Þar gengur stöðugt
tangi fram, sem alltaf brotnar af, og þar fyrir
er lónið alltaf fullt af ísjökum alveg fram í á,
en undanfarin sumur hefur lónið oft verið ís-
laust að mestu."
Skálafellsjökull. Skarphéðinn Gíslason tekur
fram í bréfi: „Um 1940 slitnaði jökullinn í
sundur fram af Hafrafelli."
Sigurjón Rist.
JÖKULL 20. ÁR 87